Krefjast rannsóknar á notkun ráðherra á samskiptamiðlum Breski Verkamannaflokkurinn hefur kallað eftir rannsókn á notkun ráðherra á samskiptaforritum á borð við WhatsApp eftir að í ljós kom að undirráðherra í heilbrigðisráðuneytinu skipti um síma áður en rannsókn hófst á samskiptum hans. 5.8.2021 07:46
Eiturblöndur valda tvöfalt meiri dauða meðal býflugna Vísindamenn hafa komist að því að skordýraeiturblöndur geta valdið tvöfalt meiri dauða meðal býflugna en áður var talið. Þeir leggja til að haldið sé áfram að hafa eftirlit með notkun slíkra kokteila eftir að notkun þeirra hefur verið heimiluð. 5.8.2021 07:10
Álagið fyrst og fremst vegna almennra veikinda Álagið á bráðamóttöku Landspítalans er fyrst og fremst vegna almennra veikinda, fremur en vegna kórónuveirufaraldursins. Þetta segir Páll Matthíasson, forstjóri spítalans, í samtali við Morgunblaðið. 5.8.2021 06:34
Handtekinn fyrir líkamsárás, eignaspjöll og þjófnað Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöldi mann á veitingastað í Árbæ sem grunaður er um líkamsárás, eignaspjöll og þjófnað. Maðurinn var í annarlegu ástandi við handtöku og var vistaður í fangageymslu. 5.8.2021 06:16
Bein útsending: Það getur verið öðruvísi að eldast hinsegin „Rannsóknir erlendis sýna að þessi hópur aldraðra, sem þarf að fara að leita aðstoðar á borð við heimahjúkrun, forðast að nýta sér þessa þjónustu.“ Þetta segir Sandra Ósk Eysteinsdóttir um stöðu aldraðra hinsegin einstaklinga. 4.8.2021 16:30
Aðeins einn smitaðra heimilismanna með einkenni Tveir heimilismenn Grundar sem greindust með Covid-19 losna úr einangrun í vikulok. Hvorugur hefur fundið fyrir einkennum. Fyrr í vikunni greindust tveir smitaðir á Minni-Grund og er annar einkennalaus en hinn „með nokkur einkenni“. 4.8.2021 12:00
Hundrað og sextán greindust smitaðir í gær Alls greindust 116 smitaðir af kórónuveirunni innanlands í gær. Enn fjölgar í einangrun þar sem eru nú 1329 og hafa þeir aldrei verið fleiri. Þá er 1941 í sóttkví. 4.8.2021 10:42
Margir aðdáendur Pokémon Go vilja sóttvarnareglurnar áfram Margir aðdáenda snjallsímaleiksins Pokémon Go eru afar óánægðir með þá ákvörðun framleiðandans Niantic að vinda ofan af breytingum sem voru gerðar á leiknum þegar kórónuveirufaraldurinn braust út í fyrra. 4.8.2021 10:32
Sektaður fyrir ólöglegt vopnabúr: Notaði skriðdrekann sem snjóplóg Þýskur eftirlaunaþegi hefur verið dæmdur í 14 mánaða skilorðsbundið fangelsi og til að greiða 37 milljónir króna í sekt fyrir að eiga umfangsmikið safn ólöglegra vopna. Meðal gripanna var skriðdreki, sem var fjarlægður af heimili mannsins af þýska hernum. 4.8.2021 10:01
Langvarandi Covid-19 fátítt meðal barna Börn og ungmenni virðast sjaldan þjást af langvarandi einkennum í kjölfar Covid-19, samkvæmt niðurstöðum breskrar rannsóknar. Eldri börn eru almennt lengur veik en yngri börn. 4.8.2021 08:14