Matvæla- og lyfjaeftirlitið gefur heimild til notkunar umframbóluefnis Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna (FDA) hefur lagt blessun sína yfir notkun umframefnis í lyfjaglösum sem innhalda Covid-19 bóluefnið frá Pfizer og BioNTech. 17.12.2020 06:33
Fjórum veitingastöðum veitt tiltal vegna sóttvarna Lögregla heimsótti á annan tug veitingahúsa í gærkvöldi í eftirliti með sóttvörnum vegna Covid-19 og voru flestir með allt til fyrirmyndar. Veitingamenn fjögurra staða fengu tiltal þar sem bent var á hvað mætti gera betur. 17.12.2020 06:12
47% farandverkamanna í Singapúr fengið Covid-19 Næstum helmingur erlendra farandverkamanna í Singapúr, sem hafa verið einangraðir á heimavistum frá því í vor, hefur smitast af SARS-CoV-2. Áður hafði verið greint frá 54.500 smitum en þau telja raunverulega 152.000. 16.12.2020 11:08
Fiskikóngurinn látinn taka vörur úr sölu: „Viljum við að þessar aldargömlu hefðir lognist útaf?“ Tveir fulltrúar heilbrigðiseftirlitsins heimsóttu Fiskikónginn í gær og skipuðu honum að taka nokkrar vörur úr sölu, þeirra á meðal harðfisk, hnoðmör, reyktan lunda og hákarl. 16.12.2020 09:37
Hrafnista biðlar til ættingja að „leggja eigin hagsmuni til hliðar“ Almannavarnir og sóttvarnayfirvöld hafa gefið út tilmæli til hjúkrunarheimila þar sem mælt er gegn því að íbúar fari útaf heimilunum til að dvelja hjá ættingjum yfir hátíðarnar. 16.12.2020 08:46
McConnell játar ósigur og óskar Biden til hamingju Möguleikar Donald Trump Bandaríkjaforseta á því að halda Hvíta húsinu þrátt fyrir öruggan sigur Joe Biden í forsetakosningunum eru nú litlir sem engir, eftir að Mitch McConnell, forseti öldungadeildar þingsins, gekkst við tapinu í gær. 16.12.2020 07:36
Hundruð þúsunda beitt misnotkun á opinberum stofnunum á Nýja-Sjálandi Að minnsta kosti 250 þúsund börn, ungmenni og fullorðnir sem dvöldu á stofnunum á vegum nýsjálenska ríkisins á árunum 1950 til 1999 sættu einhvers konar misnotkun, samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndar. 16.12.2020 06:39
Eignaspjöll og þjófnaðir í verslunum Tveir voru handteknir í gærkvöldi fyrir eignaspjöll. Öðrum var leyft að fara eftir samræður við lögreglu en hinn var látinn laus eftir skýrslutökur. 16.12.2020 05:56
4,1 stiga skjálfti á Reykjanesskaga Um klukkan 4.30 í morgun varð jarðskjálfti af stærð 4,1 um átta kílómetra norðaustur af Reykjanestá. Tilkynningar bárust af Reykjanesi og höfuðborgarsvæðinu um að skjálftinn hefði fundist þar. 16.12.2020 05:38
Segja þriggja fjölskyldna samkomur munu leiða til fleiri dauðsfalla Tvö af áhrifamestu heilbrigðistímaritum Bretlands hafa sameinast um leiðara í annað sinn í meira en hundrað ár og varað við því að ef stjórnvöld herða ekki aðgerðir yfir jól, frekar en að aflétta þeim, muni ástandið verða heilbrigðiskerfinu ofviða. 15.12.2020 13:45