Versta hitabylgja í Japan í eina og hálfa öld Hitabylgja sem gengur nú yfir Japan er sú versta í júnímánuði í tæplega 150 ár. Mikið álag er á raforkukerfi landsins vegna hitans og vara yfirvöld við því að ekki sé útilokað að grípa þurfi til skammtana. 28.6.2022 09:14
Facebook fjarlægir færslur um þungunarrofspillur eftir hæstaréttardóm Færslur þar sem konum eru boðnar svonefndar þungunarrofspillur hafa verið fjarlægðar af samfélagsmiðlunum Facebook og Instagram frá því að umdeildur hæstaréttardómur féll í Bandaríkjunum sem svipti konur stjórnarskrárvörðum rétti til þungunarrofs. 28.6.2022 08:40
Maxwell sögð á sjálfsvígsvakt í fangelsi Lögmaður Ghislaine Maxwell, sem var sakfelld fyrir aðild að glæpum Jeffreys Epstein gegn konum, segir að hún sé sjálfsvígsvakt í fangelsinu í Brooklyn þar sem henni er haldið. Til stendur að ákvarða refsingu hennar á þriðjudag en lögmaðurinn segir að það kunni að frestast. 26.6.2022 14:40
Sendi borgarstjóra Oslóar samúðarkveðjur Einar Þorsteinsson, starfandi borgarstjóri, sendi Marianne Borgen, borgarstjóra Oslóar og íbúum borgarinnar samúðarkveðjur vegna skotárásinnar þar í gær. Tveir létust í árásinni sem hófst fyrir utan bar sem er vinsæll á meðal hinsegin fólks. 26.6.2022 13:55
Neitar að láta yfirheyra sig nema lögregla birti upptökuna Maðurinn sem er ákærður fyrir hryðjuverk í miðborg Oslóar í fyrrinótt hefur neitað að láta yfirheyra sig nema lögregla birti upptöku af yfirheyrslunni í heild sinni opinberlega. Lögmaður hans segir hann óttast að lögreglan snúi út úr orðum sínum. 26.6.2022 13:18
Búa sig undir slag um þungunarrofspillu Hvíta húsið ætlar að reyna að koma í veg fyrir að ríki geti bannað svonefnda þungunarrofspillu í kjölfar Hæstaréttardóms um að konur eigi ekki rétt til þungunarrofs. Búast má við að tekist verði um málið fyrir dómstólum. 26.6.2022 11:24
Var í sambandi við öfgamann sem boðaði dráp á samkynhneigðum Maðurinn sem skaut tvo til bana og særði fleiri fyrir utan hinsegin bar í Osló í fyrrinótt var í sambandi við þekktan íslamskan öfgamann í Noregi. Sá boðaði fyrir skömmu dráp á samkynhneigðum á samfélagsmiðlum. 26.6.2022 10:02
Karl sagður hafa tekið við milljónum frá Katar Karl Bretaprins er sagður hafa tekið við milljónum evra í reiðufé á fundum sínum með fyrrverandi forsætisráðherra Katar. Fulltrúar konungsfjölskyldunnar fullyrða að féð hafi strax runnið til góðgerðasamtaka prinsins. 26.6.2022 08:19
Sprengdu íbúðarblokkir í Kænugarði Rússar vörpuðu sprengum á að minnsta kosti tvær íbúðarblokkir í Kænugarði, höfuðborg Úkraínu, eldsnemma í morgun. Borgarstjóri Kænugarðs segir að sjö ára gamalli stúlku hafi verið bjargað úr rústunum. 26.6.2022 07:53
Réðst á stúlkur og reyndi að ræna þær Ungur drengur í annarlegu ástandi réðst á tvær stúlkur og reyndi að ræna þær í gærkvöldi. Sló hann aðra stúlkuna með krepptum hnefa í andlitið en stúlkurnar náðu að komast undan til foreldra sinna. 26.6.2022 07:28