Hlýjar og rakar suðvestanáttir ríkjandi næstu daga Suðvestanátt verður á landinu sem flytur með sér hlýtt og rakt loft í dag og næstu daga. Varað er við allhvössum vindstrengjum á Ströndum og í kringum Öræfajökul í dag. 29.8.2021 08:39
Nemendur smitaðir í fjórum grunnskólum Kórónuveirusmit hafa verið greind í nemendum í fjórum grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu, þremur í Reykjavík og einum í Mosfellsbæ. 29.8.2021 08:11
Delta tvöfaldaði líkur á sjúkrahúsinnlögnum Fólk sem smitaðist af delta-afbrigði kórónuveirunnar var tvöfalt líklegra til að þurfa að leggjast inn á sjúkrahús en þeir sem fengu alfa-afbrigðið sem var algengast við upphafi faraldursins í Bretlandi. 29.8.2021 07:45
Telja miklar líkur á annarri hryðjuverkaárás Joe Biden Bandaríkjaforseti segir mjög líklegt að reynt verði að fremja aðra hryðjuverkaárás í Kabúl á næstu sólarhringum. Hann boðar áframhaldandi loftárásir á Ríki íslams sem lýsti yfir ábyrgð á sjálfsmorðssprengjuárásinni sem felldi á annað hundrað manns á fimmtudag. 29.8.2021 07:13
Ráðuneyti telur sig hafa svarað spurningum um umsvif útgerða Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið telur að allar þær upplýsingar sem óskað var eftir og heimilt var að birta hafi komið fram í skýrslu sjávarútvegsráðherra um eignarhald stórútgerða í íslensku atvinnulífi. Skýrslan hefur verið gagnrýnd fyrir að svara ekki þeim spurningum sem henni var ætlað. 28.8.2021 14:24
Tvær afganskar fjölskyldur komnar og fleiri á leiðinni Tvær afganskar konur sem stunduðu nám í Jafnréttisskólanum Gró á Íslandi eru komnar til landsins með fjölskyldum sínum. Utanríkisráðuneytið veit af fjórum Afgönum til viðbótar sem eru á leiðinni til landsins. 28.8.2021 13:16
Óttast hvorki dóm sögunnar né kjósenda Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður Vinstri grænna, sagðist ekki óttast dóm sögunnar um aðgerðir ríkisstjórnar hennar á kjörtímabilinu í ræðu á landsfundi flokksins í morgun. Þá sagðist hún ekki hafa áhyggjur ef kórónuveirufaraldurinn verður að kosningamáli. 28.8.2021 11:24
„Íslenska ákvæðið“ fríaði Ísland ábyrgð á tæplega árslosun Sérstakt ákvæði sem íslensk stjórnvöld komu inn í Kýótóbókunina á sínum tíma kom Íslandi undan ábyrgð á hátt í árslosun á gróðurhúsalofttegundum frá stóriðju. Þrátt fyrir að vera laus við ábyrgð á stóriðju stóð Ísland ekki við skuldbindingar sínar. 28.8.2021 10:34
Norska lögreglan skaut mann til bana Lögreglumenn skutu mann til bana fyrir utan veitingahús í Sarpsborg í suðaustanverðum Noregi í morgun. Ekki hefur komið fram hver maðurinn var né hvers vegna lögreglan skaut hann. 28.8.2021 09:38
Fellibylurinn Ida ógnar íbúum Lúisíana Íbúar við strendur Lúisíana á suðausturströnd Bandaríkjanna búa sig nú undir að fellibylurinn Ida gangi á land um helgina. Varað er við því að fellibylurinn muni „breyta lífi“ fólks sem er óviðbúið hamförunum. 28.8.2021 08:45