Fjöldi mótmælenda handtekinn í Rússlandi Rússneska lögreglan hefur handtekið hátt í tvö hundruð manns sem tóku þátt í mótmælum til stuðnings Alexei Navalní, leiðtoga stjórnarandstöðunnar í landinu, í dag. Mótmælendur kröfðust þess að Navalní fengi viðunandi læknisþjónustu í fangelsi en læknar hans segjast óttast um líf hans. 21.4.2021 16:40
Stórtækustu böðlarnir utan Kína í Miðausturlöndum Fjögur af þeim fimm ríkjum sem tóku flesta af lífi í fyrra eru Miðausturlönd. Saman stóðu Íran, Egyptaland, Írak og Sádi-Arabía fyrir nærri því níu af hverjum tíu aftökum sem vitað er um með vissu í heiminum samkvæmt skýrslu mannréttindasamtakanna Amnesty International. 21.4.2021 13:43
Pútín segir vesturlöndum að halda sig á mottunni Stjórnvöld í Kreml ætla sér að bregðast harkalega við ef þau telja vestræn ríki fara yfir strikið gagnvart þeim. Þetta sagði Vladímír Pútín, forseti Rússlands, í stefnuræðu í morgun þar sem hann sakaði vestræn ríki ennfremur um aðild að „valdaránstilraun“ í Hvíta-Rússlandi. 21.4.2021 12:55
Leita horfins kafbáts við Balí Indónesíski sjóherinn leitar nú að kafbáti með á sjötta tug manna um borð sem hvarf við æfingar norður af eyjunni Balí. Óskað hefur verið eftir aðstoð yfirvalda í Ástralíu og Singapúr við leitina. 21.4.2021 11:04
ESB stefnir á kolefnishlutleysi með nýju loftslagsmarkmiði Aðildarríki Evrópusambandsins og Evrópuþingið náðu samkomulagi um að stefna að enn frekari samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda á þessum áratug sem á að gera Evrópu að fyrstu kolefnishlutlausu álfunni um miðja öldina. Íslensk stjórnvöld hafa þegar sagst ætla að taka þátt í nýja markmiðinu. 21.4.2021 10:46
Bandamenn Navalní handteknir í aðdraganda mótmæla Rússneska lögreglan handtók Kiru Jarmysh, talskonu Alexeis Navalní, og fleiri bandamenn hans í dag. Handtökurnar eru taldar tengjast mótmælum sem boðað hefur verið til um allt landið til stuðnings Navalní sem dúsir í fangelsi við slæma heilsu. 21.4.2021 09:21
Taka upp eigið áhættumat og leggja til að ráðherra geti hert reglur Íslensk yfirvöld ætla að taka upp eigið mat á áhættu við ferðalög vegna kórónveirufaraldursins frá og með 7. maí. Heilbrigðis- og dómsmálaráðherra gætu fengið heimild til að herða aðgerðir gagnvart ákveðnum ríkjum á grundvelli áhættumatsins. 20.4.2021 16:25
Telja losun færast í fyrra horf strax á þessu ári Tímabundinn samdráttur í losun gróðurhúsalofttegunda vegna kórónuveirufaraldursins í fyrra gengur nær algerlega til baka á þessu ári ef marka má spá Alþjóðaorkumálastofnunarinnar (IEA). Útlit er fyrir mestu aukningu í losun á milli ára í meira en áratug. 20.4.2021 14:05
Morrissey reiður út í Simpsons: „Hvar eru lögin sem vernda mig?“ Breski söngvarinn Morrissey sakar aðstandendur bandarísku teiknimyndaþáttanna um Simpson-fjölskylduna um „hatur“ í sinn garð eftir að gert var grín að honum í nýjum þætti. Handritshöfundur þáttarins hefur þó sagt að persónan sem fór fyrir brjóstið á söngvaranum sé ekki eingöngu byggð á honum. 20.4.2021 11:37
Leggjast gegn bólusetningarvottorði til ferðalaga Sérfræðinganefnd Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) leggst gegn því að ríki gerir sönnun fyrir því að fólk hafi verið bólusett gegn kórónuveirunni að forsendu fyrir því að það fái að ferðast á milli landa. Slíkt fyrirkomulag er talið auka á ójöfnuð og skapa nýjan ójöfnuð í ferðafrelsi í fólks. 19.4.2021 16:46