Swedbank kærður vegna peningaþvættis Sænski bankinn flækist inn í meiriháttar peningaþvættismál sem hefur skekið norræna banka undanfarin ár. 7.3.2019 12:10
Líklegt að Brexit verði frestað hafni þingmenn samningi Fjármálaráðherra Bretlands segist viss um að breska þingið muni hafna því að ganga úr Evrópusambandinu án útgöngusamnings. 7.3.2019 10:47
Ísland fordæmdi morðið á Khashoggi í yfirlýsingu um Sádi-Arabíu Fastafulltrúi Íslands flutti yfirlýsinguna sem nokkur ríki í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna standa sameiginlega að. 7.3.2019 09:51
Fær að höfða mál fyrir hönd fósturs sem var eytt Karlmaður fær að höfða mál gegn heilsugæslustöð sem framkvæmdi þungunarrof og framleiðanda pillu sem fyrrverandi kærustu hans var gefin árið 2017 fyrir hönd fóstursins. 7.3.2019 08:41
Vísa þýska sendiherranum frá Venesúela Ríkisstjórn Nicolasar Maduro sakar þýska sendiherrann um að skipta sér af innanríkismálum landsins og að taka sér stöðu með öfgaöflum í stjórnarandstöðunni. 7.3.2019 08:01
Trump heldur að Kim valdi sér ekki vonbrigðum Fréttir hafa borist af því að Norður-Kórea byggi aftur upp eldflaugastöð sína. Trump Bandaríkjaforseti segist verða fyrir vonbrigðum með Kim Jong-un reynist það rétt en að hann trúi ekki að það gerist. 7.3.2019 07:42
Huawei stefnir Bandaríkjastjórn vegna banns Bandarísk stjórnvöld bönnuðu alríkisstofnunum að nota búnað kínverska tæknirisans. Fyrirtækið telur lagaákvæði sem bannið byggir á stangast á við stjórnarskrá Bandaríkjanna. 7.3.2019 07:30
Óttast að ungmenni hreyfi sig minna með seinni klukku Barnalæknir segir að lítið hafi verið gert úr göllum þess að seinka klukkunni í greinargerð starfshóps ráðherra, þar á meðal um neikvæð áhrif á hreyfingu ungmenna. 6.3.2019 14:24
Farþegum Wow air fækkaði um þriðjung á milli ára Sætaframboð flugfélagsins dróst einnig saman um rúmlega fjórðung í febrúar. 6.3.2019 11:56
Herjólfur í lokaprófunum í Póllandi Ekki liggur þó fyrir hvenær nýja ferjan verður afhent. Framkvæmdastjóri Herjólfs ohf. segir að mögulega hefjist siglingar fyrirtækisins með núverandi Herjólfi í lok mánaðar. 6.3.2019 11:20