Lilja: Hryðjuverkin risavaxin breyta í bresku kosningunum Öfgaíslamistar ættu ekki að hafa dagskrárvald í kosningum, að sögn Lilju Alfreðsdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins. Hún telur að hryðjuverkin á Bretlandi geti haft áhrif á kosningarnar sem fara fram á fimmtudag. 5.6.2017 21:00
Trump ætlar ekki að stöðva vitnisburð Comey James Comey, fyrrverandi forstjóri FBI, mun að óbreyttu bera vitni um samskipti sín við Donald Trump Bandaríkjaforseta á fimmtudag eftir að Hvíta húsið gaf út í dag að Trump myndi ekki beita valdheimild sinni til að meina Comey um að tjá sig. 5.6.2017 19:10
Ölvuð kona ók á útsýnispall utan við Akureyri Kona á fimmtugsaldri var handtekin eftir að hún ók ölvuð utan í útsýnispall austan við Akureyri í hádeginu. Hún reyndi að aka áfram eftir að hafa skemmt bíl sinn töluvert. 5.6.2017 18:41
Heitasta fjarreikistjarna sem hefur fundist Hitinn í lofthjúpi KELT-9b er svo hár að vísindamenn telja að hann geti aðeins verið á formi frumeinda þar sem sameindir ná ekki að tolla saman. Fjarreikistjarnan er sú heitasta sem fundist hefur til þessa. 5.6.2017 18:15
Morðinginn sagður óánægður fyrrverandi starfsmaður Fimm eru látnir eftir að óánægður fyrrverandi starfsmaður gekk berserksgang á iðnaðarsvæði í Orlando í Flórída í morgun. Maðurinn svipti sig lífi eftir morðin. Hann er ekki talinn hafa nein tengsl við hryðjuverkahópa. 5.6.2017 17:10
Tíststormur Trump gæti skaðað „ferðabann“ forsetans Donald Trump Bandaríkjaforseti gæti hafa komið sér í klandur með orðavaðli sínum um ferðabann gegn múslímaríkjum á Twitter í morgun. Tístin gætu verið notuð gegn stjórnvöldum þegar tekist verður á um bannið fyrir Hæstarétti Bandaríkjanna. 5.6.2017 16:38
Þýskur ferðamaður látinn eftir bílveltu Maðurinn ók jeppa með hjólhýsi í eftirdragi sem fauk út af Suðurlandsvegi við Freysnes á fimmtudag. Hann er nú látinn á sjúkrahúsi í Reykjavík. 4.6.2017 16:56
Byggingaráform ógna langtímamælingum Veðurstofunnar Sérfræðingur á Veðurstofu Íslands varar við "skemmdarverkum“ á langtímamæliröð í Reykjavík verði umrædd byggingaráform að veruleika á lóð Veðurstofunnar á næstu tveimur árum. 4.6.2017 16:00
Samdráttur í áfengisneyslu í heiminum Bjórneysla dróst saman um 1,8% á heimsvísu í fyrra og áfengisneysla almennt tók krappari dýfu en undanfarin ár. 4.6.2017 12:37
Rannsóknar á Trump krafist í Sannleiksgöngum Andstæðingar og stuðningsmenn Donalds Trump Bandaríkjaforseta komu saman í Washington-borg í gær. Fjölmennasta samkoman var "Sannleiksganga“ þar sem rannsóknar á tengslum Trump við Rússa var krafist. 4.6.2017 12:11