Uppbygging komin á fullt skrið þremur dögum eftir brunann Uppbygging er komin á fullt skrið í Kringlunni eftir að stórtjón varð í eldsvoða á laugardagskvöld. Næstum allar vörur í verslunum undir merkjum Kúltur eru ónýtar en eigandi vonar að hægt verði að opna aftur í haust eftir allsherjarniðurrif. 18.6.2024 21:31
Umdeild ákvörðun ráðherra og gosmóða yfir borginni Matvælaráðherra segir að þrátt fyrir að hún og Vinstri Græn séu á móti hvalveiðum hafi hún þurft að fara að lögum og leyfa veiðar. Hún vilji hins breyta lögunum og forsætisráðherra tekur undir að það þurfi að betrumbæta þau. 11.6.2024 18:07
Efast um heimild ráðherra til rannsóknar Barnamálaráðherra hafði ekki lagaheimild til að fela Gæða - og eftirlitsstofnun að rannsaka meðferðarheimili sem var á Laugalandi og Varpholti að mati Persónuverndar. Forstjóri stofnunarinnar segir miður þegar mál falla á formgalla. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. 10.6.2024 18:24
Loksins kominn heim eftir slysið á Íslandi sem umturnaði lífi hans Breskur ferðamaður, sem slasaðist alvarlega í bílslysi á Íslandi í apríl, segir kraftaverk að hann sé enn á lífi. Hann er loksins kominn heim eftir fimm vikur á sjúkrahúsi og hlakkar til að giftast sínum heittelskaða, eftir að þeir trúlofuðu sig á gjörgæslu Landspítalans. 10.6.2024 13:01
Áhyggjurnar enn til staðar og engin trygging Vestmannaeyjabær gerir alvarlegar athugasemdir við áform þýsks fyrirtækis um efnisvinnslu úti fyrir Landeyjahöfn. Bæjarstjóri segir alla innviði bæjarfélagsins undir; neysluvatn, rafmagn og samgöngur. 10.6.2024 12:05
Ný ógn við íslensk fyrirtæki og pönnukökumeistari krýndur Svokallaðar iðnaðarnjósnir eru raunveruleg ógn við íslensk fyrirtæki að sögn forstjóra Samtaka iðnaðarins. Utanríkisráðherra lítur það mjög alvarlegum augum að hópar netþrjóta beiti njósnum gegn Íslandi. Netöryggismálin verða í öndvegi í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. 9.6.2024 18:13
Kynferðisbrot tengt Polar Nanoq og annað áhlaup á Grindavíkurveg Enginn er lengur í varðhaldi í tengslum við rannsókn lögreglu vegna gruns um kynferðisbrot sem sagt er tengjast skipverja á grænlenska frystitoganum Polar Nanoq. Þrír voru handteknir en öllum hefur verið sleppt. Við fjöllum um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12. 9.6.2024 11:49
Borgarstjóri á hvolfi hátt yfir Reykjavík Fjölmenni lagði leið sína á Reykjavíkurflugvöll í dag þar sem efnt var til íburðarmikillar flugsýningar. Gestir gátu virt fyrir sér tugi flugvéla á flugvellinum sjálfum í miklu návígi. 8.6.2024 22:01
Tvö þúsund manns heimsóttu Guðna í síðasta sinn Fullt var út úr dyrum á Bessastöðum í dag, þar sem Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og Eliza Reid forsetafrú tóku á móti gestum á síðasta opna húsinu í forsetatíð þess fyrnefnda. 8.6.2024 21:27
Blóðbað við björgun gísla og bein útsending frá Grindavíkurvegi Íslensk stjórnvöld hafa ekki lagaheimild til að beita einhliða viðskiptaþvingunum gegn Ísrael. Þetta segir utanríkisráðherra sem segir þó ljóst að Ísraelsher hafi gengið of langt í aðgerðum sínum á Gasa. Íslenskir mótmælendur kalla eftir róttækari aðgerðum. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við mótmælendur sem komu saman í fjölmennri kröfugöngu í miðborginni í dag. 8.6.2024 18:19