Söguleg heimsókn konungshjónanna í Jónshús Halla Benediktsdóttir umsjónarmaður Jónshúss í Kaupmannahöfn segir það afar merkilegt að Friðrik X Danakonungur komi, ásamt Höllu Tómasdóttur forseta Íslands, í heimsókn í Jónshús í dag. Það hafi aldrei gerst áður að þjóðhöfðingi Danmerkur sækir menningarmiðstöð Íslands í Kaupmannahöfn heim. 8.10.2024 10:14
Drottningin baðst afsökunar á því að geta ekki boðið betra veður Ríkisheimsókn Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, og Björns Skúlasonar eiginmanns hennar til Danmerkur hófst í dag. Forsetahjónin komu siglandi að gömlu tollbryggjunni í Kaupmannahöfn klukkan tíu að staðartíma þar sem konungshjónin, Friðrik X og kona hans Mary, tóku á móti þeim. 8.10.2024 08:50
„Þú hugsar bara: Hver var skotinn?” Leandro Mulinari afbrotafræðingur frá Svíþjóð segir hlutverk borgaralegra samtaka vanmetið þegar kemur að ofbeldi í litlum samfélögum. Það verði að styrkja hlutverk þeirra. Það sé ekki nóg að skoða hvar og hvenær ofbeldið eigi sér stað heldur líka hvaða áhrif það hefur og hver gæti verið ástæðan. 8.10.2024 07:02
„Það er af og frá að ég hafi brotið lög“ Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra segist ekki hafa brotið lög þegar hún frestaði brottvísun Yazans Tamimi í síðasta mánuði. Þá segir hún yfirlýsingar nýs formanns Vinstri grænna um að þingflokkur VG styðji ekki frekari breytingar á útlendingalögum ekki breyta neinu fyrir hana. Hún muni leggja fram þau mál sem eru á hennar þingmálaskrá. 7.10.2024 15:54
Ræstu út mannskap til að kanna frágang fleiri brunna Starfsmenn frá ÞG verktökum skoða nú frágang brunna við fjölda húsa sem verktakafyrirtækið hefur byggt síðustu ár. Annað hvort verði tyrft yfir eða skipt um lok og þyngri sett í stað stálloka sem nú eru. Tveggja ára drengur féll ofan í vatnsbrunn við heimili sitt Í Urriðaholti í Garðabæ á föstudag. 7.10.2024 11:11
Augljóst að ríkisstjórnarsamstarfið sé að nálgast leiðarlok Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður Framsóknarflokksins segir ekkert óvænt við samþykkt ályktunar á landsfundi Vinstri grænna um að ríkisstjórnarsamstarf Vinstri grænna, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks sé að nálgast leiðarlok var. Í ályktuninni segir meðal annars að ganga verði til kosninga næsta vor. Hún telur ekki ástæðu til að ræða ályktunina á fundi þingflokks Framsóknar. 7.10.2024 09:01
Skipti öllu máli að telja drykkina Formaður Matthildarsamtaka um skaðaminnkun, segir áríðandi að tekist sé á við vímuefnanotkun í samfélaginu með raunsæi. Nýtt vettvangsteymi á vegum samtakanna veitti skaðaminnkunarþjónustu og sálrænan stuðning á tónlistarviðburðum í sumar. 7.10.2024 07:02
Með húsaflutninga á heilanum Guðlaug Vilbogadóttir fornleifafræðingur segir ótrúlegt hve Íslendingar hafa verið öflugir að flytja hús landshluta á milli fyrir tíma krana- og flutningabíla. Guðlaug er með húsaflutninga á heilanum og skráir samviskusamlega niður sögu hvers hússins á fætur öðru, og gætir þess að eiginkona húseigenda sé tiltekin hverju sinni. 6.10.2024 10:01
Hvaldímír drapst af völdum bakteríusýkingar Mjaldurinn Hvaldímír drapst í kjölfar bakteríusýkingar sem hann fékk vegna sárs í munni eftir prik sem sat fast. Það sýna niðurstöður krufningar. Greint er frá þessu á vef norska ríkisútvarpsins, NRK. Engar byssukúlur fundust í mjaldrinum við skoðun. 35 sentímetra langt og þriggja sentímetra breitt prik var fast í munni mjaldursins og er talið að prikið hafi valdið sýkingu sem svo leiddi til dauða hans. 4.10.2024 09:03
Umferðarljósin rafmagnslaus vegna rafmagnstruflana Umferðarljós við Bústaðaveg og við gatnamót Háaleitisbrautar og Kringlumýrarbrautar biluðu urðu rafmagnslaus í morgun klukkan 08:50 og í gær klukkan 12:25 vegna rafmagnstruflana í orkuveri í Svartsengi og í gær vegna kerfisbilunar í Landsneti. 3.10.2024 13:00