Mikilvægt að íslenskan sé hluti af hverri tæknibyltinguu Menningar- og viðskiptaráðherra skrifaði í gær undir nýjan samning við sjálfseignarstofnunina Almannaróm um að gegna hlutverki miðstöðvar máltækni á Íslandi til ársins 2027. Almannarómur var eini aðilinn sem lýsti yfir áhuga á verkefninu. 3.10.2024 09:57
Gerir óþægilegt samtal auðveldara Ný launavakt, Rúna, gefur fyrirtækjum færi á að fá upplýsingar um laun starfsmanna mánaðarlega. Lausnin er hönnuð hjá Origo og er ætlað að auka gagnsæi í launum. Lausnin hefur verið í þróun í tvö ár og var opnuð fyrirtækjum síðasta föstudag. 3.10.2024 08:46
Ekkert skriflegt áhættumat og spurt hvort vinnan hafi verið áhættunnar virði Vinnueftirlitið segir að slysið í Grindavík í janúar, þar sem maður féll ofan í sprungu, megi rekja til þess að ekki hafi verið til staðar fullnægjandi áhættumat og að ekki hafi farið fram nægilega góð kynning á helstu hættum sem gætu steðjað að þeim sem ynnu á vettvangi. Þá veltir Vinnueftirlitið því fram hvort verkið sem var unnið hafi verið áhættunnar virði. 1.10.2024 10:50
Fimmti hver ökumaður með óeðlileg afskipti við slysstað Aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir þeim tilfellum fjölga þar sem almenningur hefur afskipti af störfum lögreglu við götulokanir við slysstað. Hann segir ríkar ástæður fyrir götulokun og alltaf reynt að búa til hjáleiðir. Rannsókn vegna alvarlegra slysa geti tekið tíma og þrifin sem fylgja. Framkoma fólks við slysstað á Sæbraut um helgina hafi verið dapurleg. 1.10.2024 08:48
Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Í fyrra var meðalaldur ungs fólks í Evrópu þegar það flutti að heima í 26,3 ára. Það er minna en það var árinu áður þegar meðalaldurinn var 26,4 ára. Hæsti meðalaldurinn er í Króatíu þar sem ungt fólk er að meðaltali 31,8 ára þegar það flytur að heiman. 1.10.2024 08:17
Rannsókn lokið á veikindum á hálendi í sumar Rannsókn embættis sóttvarnalæknis og Heilbrigðiseftirlits Suðurlands á veikindum á hálendinu í sumar er lokið. Í öllum tilfellum þar sem fengust sýni greindist nóróveira. Líklegt er að hún hafi smitast með snerti- eða úðasmiti, af yfirborðsfleti eða manna á milli. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands er með eftirfylgd á Rjúpnavöllum en þar fundust saurgerlar í neysluvatni. 1.10.2024 07:22
Halda styrktartónleika fyrir fjölskyldu Kolfinnu Eldeyjar Stór hópur listamanna á Akureyri heldur styrktartónleika fyrir aðstandendur Kolfinnu Eldeyjar Sigurðardóttur. Tónleikarnir eru haldnir næsta miðvikudag, 2. október, klukkan 20. Hildur Eir Bolladóttir verður kynnir á tónleikunum. 30.9.2024 13:15
Stefnt á að koma upp 98 hleðslustöðvum í Kópavogi Orka náttúrunnar, ON, mun á næstu vikum setja upp tugi hleðslustöðva í Kópavogi í samstarfi við bæinn. Hleðslustöðvar við Hálsatorg í Hamraborg voru teknar í notkun í vikunni. Þær eru fyrstu af 98 hleðslustöðvum á 14 stöðum í Kópavogsbæ sem verða sett upp í haust. 30.9.2024 12:52
Kennarasambandið hlynnt nýjum matsferli Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambands Íslands segir sambandið styðja nýjan matsferil stjórnvalda heilshugar. Það sé mikil þörf á bæta bæði innra og ytra mat skólakerfisins. Námsmatið verði að vera byggt á námsskrá og endurspegla að skólinn er án aðgreiningar, og fyrir alla. 30.9.2024 10:59
Helga Mogensen látin Helga Mogensen matarfrömuður og frumkvöðull lést sunnudaginn 29. september á líknardeild Landspítalans í Kópavogi, sjötíu ára að aldri. 30.9.2024 09:13