Úkraínski herinn hörfar frá Sieveródonetsk Eftir margra vikna hernaðarátök hefur úkraínski herinn ákveðið að hörfa frá Sieveródonetsk í Lúhansk-héraði til að forða því að verða umkringdur af Rússum. Héraðsstjóri Lúhansk-héraðs segir ekkert þýða að að halda kyrru fyrir í borginni og því hafi úkraínska hernum verið skipað að hörfa. 24.6.2022 15:25
Hráolíuverð heldur áfram að lækka Heimsmarkaðsverð á Brent-hráolíu lækkaði á föstudag og stefnir í lækkun aðra vikuna í röð. Olíuverð náði miklum hæðum í kjölfar stríðsins í Úkraínu en frá maílokum hefur Brent-olíuverð lækkað úr 120 bandaríkjadölum á tunnu niður í um 109, næstum tíu prósent lækkun. 24.6.2022 11:13
Play fagnar ári í háloftunum Í dag er eitt ár frá fyrstu flugferð PLAY sem var farin til London þann 24. júní 2021. Fleiri en 320 þúsund manns hafa nú flogið með félaginu og áfangastöðum flugfélagsins hefur fjölgað úr sex fyrir ári síðan í 25 talsins í dag. 24.6.2022 09:38
Vaktin: Úkraínska hernum skipað að hörfa úr Sieveródonetsk Stjórnvöld í Úkraínu hafa ákveðið að láta hersveitirnar sem barist hafa í Sieverodonetsk hörfa og segja ekkert vit í því að láta þær sæta mannfalli í langan tíma til að verja svæðið. Ríkisstjórinn segir 90 prósent allra heimila í borginni skemmd eða eyðilögð. 24.6.2022 08:26
Mannekla veldur ófremdarástandi um allan heim Fréttir berast nú víða að af biðröðum og seinkunum á erlendum flugvöllum. Margir Íslendingar eru farnir að hafa áhyggjur af því að ástandið muni bitni á ferðalögum þeirra. Upplýsingafulltrúar flugfélaganna Play og Icelandair segja mikla aukningu hafa orðið á „tösku-seinkunum“ og að ástandsins gæti um allan heim. 23.6.2022 16:34
Of há laun fyrir lítið bæjarfélag í fjárhagserfiðleikum Þór Sigurgeirsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi, var ráðinn bæjarstjóri bæjarfélagsins á fundi bæjarstjórnar í gær. Fulltrúar minnihlutans telja laun bæjarstjórans, sem eru 1,8 milljónir á mánuði, alltof há fyrir jafnlítið bæjarfélag og lögðu til að launin yrðu lækkuð um 500 þúsund á mánuði. 23.6.2022 14:20
Íslandsbanki herðir reglur um viðskipti starfsmanna Íslandsbanki herti reglur sínar um bankaviðskipti starfsmanna bankans þann 15. júní síðastliðinn. Með breytingunum er starfsmönnum einungis heimilt að eiga viðskipti með hlutabréf og skuldabréf bankans á opnu viðskiptatímabili og miðlurum bankans er alfarið meinað að versla með eigin reikning. 22.6.2022 17:24
„Ég var mjög hrædd og óttaslegin“ Berglind Bjarney Ásgeirsdóttir, íbúi að Miðvangi 41 þar sem skotið var á tvo bíla í morgun, sagðist hafa orðið óörugg og óttasleginn vegna ástandsins sem skapaðist í morgun. Henni fannst skorta nægilega upplýsingagjöf frá lögreglunni en einu upplýsingarnar sem hún fékk um málið heyrði hún í útvarpinu. 22.6.2022 15:45
Öryggismál ekki í lagi þegar ferðamaður lést Öryggismál í Gleðivík á Djúpavogi eru til skoðunar eftir að erlendur ferðamaður varð fyrir lyftara og lést í gær. Samkvæmt heimamönnum hafði kaðall sem átti að aðskilja gangandi og akandi umferð meðfram ströndinni verið tekinn niður vegna framkvæmda og var því ekki til staðar þegar banaslysið átti sér stað í gær. 22.6.2022 13:41
Aflýsingar á Heathrow vegna heilu fjallanna af farangri Aflýsa þarf 90 flugferðum frá Heathrow-flugvelli á morgun, mánudaginn 20. júní, vegna ófremdarástands í farangursmeðhöndlun. Risastór farangursfjöll hafa myndast á vellinum vegna ástandsins, sem hefur staðið yfir síðan á föstudag. 19.6.2022 23:46
Dagur brjálaður á blaðamannafundi: Króatía eins og frosinn kjúklingur í skyndibitakeðju EHF Handbolti
Um 150 Íslendingar í höllinni: „Fjárhagslega höfum við ekki bolmagn í að kaupa mörg hundruð miða“ Handbolti