Grænlensk lægð og bresk hæð beina mildum vindum til landsins Djúp lægð suður af Grænlandi og hæð yfir Bretlandseyjum beina til landsins mildri suðlægri átt, að því er fram kemur á vef Veðurstofu Íslands. 7.1.2024 08:27
Sprakk í hendi tólf ára drengs Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynning um flugeldaslys í póstnúmeri 105 í Reykjavík í gærkvöldi á þrettándanum. Flugeldur hafði þar sprungið í hendi tólf ára drengs. Þá var kveikt í bílum í Kópavogi og flugeld kastað inn á skemmtistað í miðborginni með tilheyrandi skemmdum. 7.1.2024 07:28
Fyrstu boð um að kviknað væri í framhaldsskólanum Eldur kom upp í sorpgeymslu við Framhaldsskólann á Húsavík á þriðja tímanum í nótt. Töluverður viðbúnaður var á vettvangi þar sem slökkviliði barst útkall um að eldur hefði komið upp í skólanum. Líkur eru taldar á að um íkveikju hafi verið að ræða. 6.1.2024 14:14
Icelandair í samskiptum við Boeing Icelandair á í samskiptum við bandaríska flugvélaframleiðandann Boeing vegna farþegaflugvélar Alaska Airlines sem gat myndaðist á skömmu eftir brottför. 6.1.2024 12:40
Prinsinn heima hjá Epstein vikum saman Andrés Bretaprins hékk á heimili athafna-og kynferðisbrotamannsins Jeffrey Epsteins í Flórída vikum saman, samkvæmt vitnisburði sem birtist í nýjum dómsskjölum. 6.1.2024 10:26
Lentu vélinni eftir að gat kom á farþegarými Farþegaflugvél á leið frá Portland í Oregon ríki í Bandaríkjunum til Kaliforníu varð að lenda 35 mínútum eftir brottför eftir að hluti vélarinnar féll af vélinni með þeim afleiðingum að stórt gat myndaðist í farþegarýminu. 6.1.2024 08:29
Útlit fyrir rólegt veður Það er útlit fyrir rólegt veður á landinu í dag. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. 6.1.2024 07:52
Kristján segir Hval ætla að krefjast skaðabóta Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals hf. segir fyrirtækið ætla að sækja bætur vegna þess stórfellda tjóns sem ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur um tímabundna stöðvun hvalveiða síðasta sumar hafi valdið félaginu og starfsmönnum þess, í ljósi álits Umboðsmanns Alþingis. 6.1.2024 07:20
Bendi ekki til tengsla við sjálfsvígshugsanir Viðamikil bandarísk rannsókn bendir til þess að engin tengsl séu á milli notkunar sykursýkis-og megrunarlyfjanna Ozempic og Wegovy og aukinnar tíðni sjálfsskaða-og sjálfsvígshugsana. 5.1.2024 15:44
„Talsverðar óskir“ Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags-og vinnumarkaðsráðherra, segir fund með fulltrúum verkalýðshreyfingarinnar sem fram fór í Ráðherrabústaðnum í morgun hafa verið góðan. 5.1.2024 15:01