Sektaður um nærri fjórtán milljónir króna fyrir að gera „peningamerki“ Rudy Gobert, leikmaður Minnesota Timberwolves, fékk heldur betur að borga fyrir að gera „peningamerki“ með fingrunum í tapi liðsins gegn Cleveland Cavaliers í NBA-deildinni í körfubolta um liðna helgi. 11.3.2024 22:30
Chelsea nálgast efri hluta töflunnar Chelsea nálgast efri hluta ensku úrvalsdeildarinnar eftir 3-2 sigur á Newcastle United á Brúnni í Lundúnum. 11.3.2024 22:00
Gísli Þorgeir leikmaður ársins í Þýskalandi Íslenski landsliðsmaðurinn Gísli Þorgeir Kristjánsson var í kvöld valinn besti leikmaður ársins árið 2023. 11.3.2024 20:39
Sveindís Jane skoraði í öruggum sigri Sveindís Jane Jónsdóttir var á skotskónum í öruggum fjögurra marka sigri Wolfsburg á RB Leipzig í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Lokatölur 4-0 og Wolfsburg áfram í harðri toppbaráttu við Þýskalandsmeistara Bayern München. 11.3.2024 20:31
Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku Sverrir Ingi Ingason stóð vaktina í hjarta varnar Midtjylland þegar liðið komst á topp dönsku úrvalsdeildarinnar i knattspyrnu. 11.3.2024 20:01
Lingard-æði í Suður-Kóreu Knattspyrnuferill Jesse Lingard var á hraðri niðurleið undir lok síðasta árs. Ekkert lið vildi semja við þennan 31 árs gamla sóknarþenkjandi leikmann og það virtist sem eini möguleikinn væri að setja skóna upp á hillu. Það er þangað til það barst tilboð frá Suður-Kóreu. 11.3.2024 19:16
Alex Freyr heim í Fram áður en langt um líður Alex Freyr Elísson mun ganga til liðs við uppeldisfélag sitt Fram á næstu dögum. Hann lék með liðinu allar götur til ársins 2023 þegar Breiðablik keypti hann. Þar náði hann aldrei að festa sig í sessi og er nú á leið aftur í Fram. 11.3.2024 18:31
Martinelli missir af leiknum mikilvæga gegn Porto Gabriel Martinelli, framherji Arsenal, verður hvergi sjáanlegur þegar liðið mætir Porto í leik sem það þarf að vinna með tveggja marka mun í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu annað kvöld, þriðjudag. 11.3.2024 17:46
Mættur í stærsta félag Íslands og vill hjálpa KR að vinna titla „Að fá að spila fyrir stærsta félag Íslands. Flestir titlar, sagan segir sitt. Ég er mjög sáttur að vera kominn hingað,“ sagði Axel Óskar Andrésson, nýjasti leikmaður KR í Bestu deild karla í knattspyrnu. Hann var eftirsóttur en valdi á endanum KR og stefnir á að sýna landi og þjóð hvað hann getur í sumar. 11.3.2024 07:00
Dagskráin í dag: Sveindís Jane, Hattarmenn í Keflavík og íshokkí Það er nokkuð fjölbreytt dagskrá á rásum Stöðvar 2 Sport í dag. Alls eru fjórar beinar útsendingar á dagskrá. 11.3.2024 06:00