Þjálfari Midtjylland segist vera með tvo bestu markverði deildarinnar í sínum röðum Bo Henriksen segir lið sitt vera með tvo bestu markverði dönsku úrvalsdeildarinnar, þá Elías Rafn Ólafsson og Jonas Lössl. Sá síðarnefndi er ekki enn orðinn leikfær að mati Bo en þegar það gerist verður ákvörðun tekin leik fyrir leik um hvor mun standa í markinu. 4.10.2021 21:31
Loks búinn að finna sér nýtt lið Hægri bakvörðurinn Serge Aurier er loks búinn að finna sér nýtt lið en hann fór frítt frá Tottenham Hotspur í sumar. Fílabeinsstrendingurinn samdi við spænska úrvalsdeildarfélagið Villareal í dag. 4.10.2021 20:46
Guðrún Erla talin vera að ganga til liðs við HK HK gæti borist góður liðsstyrkur fyrir komandi átök í Olís-deild kvenna í handbolta. Talið er að miðjumaðurinn Guðrún Erla Bjarnadóttir sé að ganga í raðir félagsins. 4.10.2021 20:01
Alex Þór skoraði sitt fyrsta mark í Svíþjóð | Ísak Óli spilaði í sigri Miðjumaðurinn Alex Þór Hauksson skoraði sitt fyrsta mark í sænsku B-deildinni er Öster gerði 2-2 jafntefli við Brage. Þá lék miðvörðurinn Ísak Óli Ólafsson 70 mínútur er Esbjerg vann 2-0 sigur í dönsku B-deildinni. 4.10.2021 19:15
Everton vill fá Van de Beek Mögulegt er að enska knattspyrnufélagið Everton geri tilboð í hollenska miðjumanninn Donny Van de Beek í janúar. Miðjumaðurinn hefur ekki fengið mikið að spila hjá Manchester United síðan hann gekk í raðir félagsins sumarið 2020. 4.10.2021 18:30
Ranieri nýr þjálfari Watford: Sá fimmtándi á síðustu tíu árum Hinn 69 ára gamli Claudio Ranieri hefur verið ráðinn nýr þjálfari enska knattspyrnufélagsins Watford. Hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið í dag. 4.10.2021 17:45
Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld og GameTíví Eftir strembna helgi er heldur rólegur dagur framundan á rásum Stöðvar 2 Sport. 4.10.2021 06:00
Rosaleg velta á þjálfurum Watford: Fjórtán á tíu árum Enska knattspyrnufélagið Watford rak á laugardag Francisco Javier Muñoz Llompart – kallaður Xisco – en hann hafði stýrt liðinu frá því í desember á síðasta ári. Hann er þrettándi þjálfari félagsins á síðustu tíu árum. 3.10.2021 23:31
KSÍ staðfestir að Jón Guðni missir af landsleikjunum Miðvörðurinn Jón Guðni Fjóluson meiddist með félagsliði sínu Hammarby í dag og þarf því að draga sig úr íslenska landsliðshópnum sem mætir Armeníu og Liechtenstein í undankeppni HM 2022 nú á næstu dögum. 3.10.2021 22:46
Umfjöllun: Valur - Haukar 58-62 | Bikarmeistararnir unnu nauman sigur í uppgjöri bestu liða landsins Íslandsmeistarar Vals tóku á móti nýkrýndum bikarmeisturum Hauka í Meistarakeppni KKÍ í kvöld. Þó Helena Sverrisdóttir væri fjarri góðu gamni fór það svo að Haukar unnu nauman fjögurra stiga sigur, lokatölur 62-58. 3.10.2021 22:21