Öskuillur Van Gaal: „Þú veist ekkert hvað þú ert að tala um, ert bara blaðamaður“ Hinn sjötugi þjálfari hollenska landsliðsins, Louis van Gaal, var ekki parsáttur við fullyrðingu blaðamanns fyrir leik Hollands og Tyrklands. Fullyrðingin sneri þó ekki að spilamennsku Hollands heldur að enska úrvalsdeildarfélaginu Chelsea. 8.9.2021 16:31
Neitaði nýjum samning á Old Trafford Fótboltamaðurinn Jesse Lingard hefur hafnað samningstilboði Manchester United. Núverandi samningur leikmannsins rennur út sumarið 2022 8.9.2021 16:00
Landsliðsþjálfarinn enn jákvæður þrátt fyrir að það sé „stormur á sjó“ „Ég myndi vilja sjá bland af því sem við sáum gegn Rúmeníu og svo síðustu tuttugu mínúturnar gegn Norður-Makedóníu,“ sagði Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari um hvað hann væri til í að sjá í leik Íslands og Þýskalands í kvöld. 8.9.2021 15:30
Leigði einkaflugvél til að komast aftur til Liverpool Naby Keïta, miðvallarleikmaður enska úrvalsdeildarfélagsins Liverpool, er kominn aftur til Englands eftir að hafa setið fastur í heimalandi sínu Gíneu eftir að valdarán átti sér stað í landinu. Hann leigði sjálfur einkaflugvél til að komast til baka. 8.9.2021 15:01
Leikfær Jóhann Berg segir íslenska liðið þurfa að hlaupa úr sér lungun „Ég æfði í dag og smá í gær (í gær og fyrradag) svo þetta er allt á fínu róli,“ sagði Jóhann Berg Guðmundsson í viðtali við Stöð 2 og Vísi hann væri klár í slaginn er Ísland mætir Þýskalandi í kvöld á Laugardalsvelli. 8.9.2021 14:01
Brasilísku stjörnurnar fá ekki að spila í ensku úrvalsdeildinni um helgina Alls verða átta brasilískir leikmenn brasilíska landsliðsins fjarverandi er enska úrvalsdeildin fer af stað á nýjan leik um helgina. 8.9.2021 13:00
Króatinn Koljanin í KR Króatíski körfuknattleiksmaðurinn Dani Koljanin hefur samið við KR og mun leika með liðinu í efstu deild karla í vetur. Hann er engin smásmíð og lék síðast í efstu deild í Austurríki. 8.9.2021 11:01
Sjáðu mark Kolbeins sem tryggði Íslandi stig gegn Grikklandi Kolbeinn Þórðarson skoraði eina mark íslenska U-21 árs landsliðsins í 1-1 jafntefli liðsins gegn Grikklandi í undankeppni EM 2023. Markið má sjá hér að neðan. 8.9.2021 10:30
Skelfingar landsleikjahlé Tottenham Það gæti þó reynst þrautin þyngri að fullmanna leikmannahóp Tottenham Hotspur gegn Crystal Palace er enska úrvalsdeildin hefst á nýjan leik eftir landsleikjahlé um næstu helgi. 8.9.2021 10:00
Bræður börðust hlið við hlið | Myndir Þeir Kristian Nökkvi Hlynsson og Ágúst Eðvald Hlynsson léku báðir í gær er U-21 árs landslið Íslands gerði 1-1 jafntefli við Grikkland í undankeppni EM 2023. 8.9.2021 09:31