Guðmundur Ari í varaformanninn Smári Jökull Jónsson skrifar 12. september 2026 16:17 Guðmundur Ari er þingflokksformaður og vill nú verða varaformaður Samfylkingarinnar. Vísir/Vilhelm Guðmundur Ari Sigurjónsson þingflokksformaður Samfylkingarinnar hefur ákveðið að bjóða sig fram til varaformanns flokksins. Þessu greinir hann frá í færslu á Facebook en Guðmundur Árni Stefánsson tilkynnti að loknum sveitastjórnarkosningum að hann myndi hætta sem varaformaður á haustdögum.
Guðmundur Ari var fyrst kjörinn á þing í síðustu Alþingiskosningum árið 2024 en hann hafði áður setið í bæjarstjórn Seltjarnarness. Í færslunni segist hann bjóða sig fram til að leiða áframhaldandi uppbyggingu flokksins og festa hann áfram í sessi sem kjölfestu í íslenskum stjórnmálum. „Frá því að ég var fyrst kosinn í bæjarstjórn Seltjarnarness árið 2014 hef ég lagt áherslu á klassíska jafnaðarstefnu: að allir hafi raunveruleg tækifæri til að vera virkir þátttakendur í samfélaginu og ná árangri í lífinu,“ skrifar Guðmundur Ari en nýr varaformaður verður kosinn á flokksstjórnarfundi þann 10. október. Guðmundur Ari bauð sig fram til formanns Samfylkingarinnar árið 2016 en beið þá lægri hlut gegn Oddnýju Harðardóttur. Hann skrifar enn fremur í færslunni að hann trúi á sterkt íslenskt samfélag þar sem ábyrg efnahagsstjórn og kraftmikið atvinnulíf stendur undir öflugum innviðum, fjölbreyttum húsnæðismarkaði og aðgengilegu heilbrigðis- og menntakerfi. „Til að Samfylkingin verði hin nýja kjölfesta íslenskra stjórnmála til framtíðar þurfum við að halda áfram að byggja flokkinn upp. Við þurfum að virkja meðbyrinn, efla innra starfið og virkja kraftinn í öllum þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem hafa gengið til liðs við okkur. Við þurfum að efla málefnastarfið og rækta tengslin á milli þingflokksins, sveitarstjórnarfulltrúa og grasrótarinnar um land allt. Ekki aðeins til að vinna næstu kosningar, heldur til að byggja upp sterka stjórnmálahreyfingu til framtíðar.“ Jafnframt skrifar Guðmundur Ari að hann bjóði fram reynslu sína úr sveitarstjórn, Alþingi og starfi innan flokksins ásamt fagþekkingu í félagsstarfi. Á næstu vikum muni hann eiga samtöl við flokksfélög hringinn í kringum landið og kynna hugmyndar sínar.
Samfylkingin Alþingi Tengdar fréttir Oddný Harðardóttir kjörin formaður Samfylkingarinnar Hlaut 59 prósent atkvæða. 3. júní 2016 18:14 Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira