Pétur Theodór til liðs við Breiðablik Breiðablik, topplið Pepsi Max deildar karla, hefur tilkynnt að Pétur Theódór Árnason, framherji Gróttu í Lengjudeildinni, muni ganga til liðs við félagið að tímabilinu loknu. 30.8.2021 12:30
Már endaði í 8. sæti í úrslitasundinu Már Gunnarsson synti til úrslita í 200 metra fjórsundi blindra á Ólympíumóti fatlaðra í Tókýó nú rétt í þessu. Már endaði í 8. sæti. 30.8.2021 10:29
Hermann og Martin gagnrýna aumingjana sem fela sig Martin Hermannsson, landsliðsmaður í körfubolta, tekur undir orð föður síns, Hermanns Haukssonar, að hetjur í málefnum líðandi stundar séu bæði þolendur og Hanna Björg Vilhjálmsdóttir sem hefur farið mikinn í umræðu um kynferðisofbeldi undanfarna daga. 30.8.2021 10:00
Gunnhildur Yrsa spilaði allan leikinn í naumum sigri Landsliðskonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék allan leikinn á miðju Orlando Pride er liðið vann nauman 1-0 sigur á NJ/NY Gotham í NWSL-deildinni í fótbolta í Bandaríkjunum. 30.8.2021 09:30
Sjáðu sjö mörk Blika, glæsimark Björns Daníel, ótrúlega innkomu Kristins og markið sem skaut HK upp úr fallsæti Alls fóru fimm leikir fram í Pepsi Max deild karla í fótbolta í gær og var nóg um að vera. Hér að neðan má sjá öll mörkin sem litu dagsins ljós ásamt rauða spjaldinu sem fór á loft inn í Kór. 30.8.2021 09:15
Var ekki möguleiki að allir myndu stíga frá borði og skilja allt eftir óstarfhæft Borghildur Sigurðardóttir, annar af varaformönnum KSÍ, ræddi við Bítið á Bylgjunni í morgun um þá stöðu sem nú er uppi hjá Knattspyrnusambandi Íslands. Hún segir stjórn sambandsins ekki hafa gengið frá borði í heild sinni þar sem þá yrði sambandið óstarfhæft. 30.8.2021 08:31
Framkvæmdastjóri Víkings: Brekka framundan og við þurfum að girða okkur í brók Þrátt fyrir frábærara frammistöðu Breiðabliks á Evrópumótunum í knattspyrnu á þessari leiktíð er ljóst að Pepsi Max deild karla í fótbolta fær aðeins þrjú sæti í Evrópu næstu tvö árin, ekki fjögur eins og vonast var til. 30.8.2021 08:00
Már fjórði í sínum riðli og komst í úrslit: Gaf mótherja undir fótinn í miðju sundi Sundmaðurinn Már Gunnarsson frá ÍRB í Reykjanesbæ er kominn í úrslit í 200 metra fjórsundi á Ólympíumóti fatlaðra sem nú fer fram í Tókýó í Japan. 30.8.2021 07:00
Þjálfarinn Agger skráður sem leikmaður vegna meiðslavandræða Fyrrum varnarjaxlinn Daniel Agger tók við þjálfun B-deildarliðsins HB Køge í heimalandinu fyrir núverandi leiktíð. Vegna fjölda meiðsla í leikmannahópnum hefur liðið brugðið á það ráð að skrá Agger í leikmannahóp félagsins. 27.8.2021 22:15
Telur Chelsea sigurstranglegt en Liverpool stefna á alla titla Alisson, markvörður Liverpool, telur Chelsea eitt sigurstranglegasta lið ensku úrvalsdeildarinnar um þessar mundir. Hann segir Liverpool samt sem áður stefna á að vinna alla bikara sem í boði eru. 27.8.2021 16:31