Róbert Ísak bætti Íslandsmet sitt enn á ný og endaði í sjötta sæti Róbert Ísak Jónsson sló eigið Íslandsmet í 100 metra flugsundi á Ólympíumóti fatlaðra í morgun. Hann endaði 6. sæti í úrslitum í flokki S14, þroskahamlaðra. 25.8.2021 09:30
Real tilbúið að bjóða 200 milljónir evra í Mbappé Það virðist sem Real Madrid sé tilbúið að henda öllu sem það á til þess að fá hinn 22 ára gamla Kylian Mbappé, leikmann París Saint-Germain og franska landsliðsins, í sínar raðir. 25.8.2021 09:01
J. R. Smith fær leyfi til að keppa með skólaliðinu J. R. Smith, fyrrum leikmaður NBA-deildarinnar í körfubolta, skráði sig nýverið í háskóla og ákvað að skrá sig í golflið skólans í leiðinni. Hann hefur nú fengið keppnisleyfi og mun því spila með skólaliðinu, NC A&T Aggies, á meðan námi stendur. 25.8.2021 08:30
Stuðningssveit Blika biður Þórsara um hjálp Kópacabana, stuðningsmannasveit Breiðabliks, hefur beðið um aðstoð fyrir leikinn mikilvæga gegn KA í kvöld. Sveitin hefur beðið gallharða Þórsara um að mæta með sér í stúkuna og styðja við bakið á Blikum er liðið mætir á Greifavöll í dag. 25.8.2021 08:01
Róbert Ísak bætti eigið Íslandsmet og synti örugglega inn í úrslit Róbert Ísak Jónsson bætti eigið Íslandsmet í 100 metra flugsundi á Ólympíumóti fatlaðra, Paralympics, í nótt. Róbert Ísak synti í undanrásum S14 flokksins í nótt og tryggði sér sæti í úrslitum með frammistöðu sinni. 25.8.2021 06:59
Kristinn framlengir til ársins 2023 Kristinn Steindórsson hefur framlengt samning sinn við Breiðablik til ársins 2023. Þetta kemur fram á samfélagsmiðlum félagsins í dag. 24.8.2021 19:30
Miðjumaður Spánarmeistara Atlético orðaður við Man Utd og Chelsea Það virðist nær öruggt að Saúl Ñíguez, miðjumaður Spánarmeistara Atlético Madríd, yfirgefi félagið áður en félagaskiptiglugginn lokar í Evrópu þann 2. september. Saúl er sterklega orðaður við bæði Manchester United og Chelsea. 24.8.2021 16:31
Enginn skorað fleiri úrvalsdeildarmörk fyrir West Ham en fyrrum hægri bakvörðurinn Antonio Michael Antonio skoraði tvívegis í 4-1 sigri West Ham United á Leicester City í gærkvöld. Hann hefur nú skorað 49 mörk fyrir West Ham United í ensku úrvalsdeildinni og er þar af leiðandi markahæsti leikmaður Hamranna í deild þeirra bestu á Englandi. Það er síðan hún var sett á laggirnar árið 1992. 24.8.2021 15:01
Stefnir á að bæta eigin Íslandsmet í Tókýó Róbert Ísak Jónsson verður fyrstur Íslendinga til að keppa á Ólympíumóti fatlaðra, Paralympics, sem fram fara í Tókýó í Japan. Róbert Ísak keppir í flokki S14 og stingur sér til sunds í nótt, aðfaranótt fimmtudags. 24.8.2021 14:32
Eldskírn í bakverði í sex stiga fallslag: „Var bara frábær í þessum leik“ Hinn ungi og efnilegi Óli Valur Ómarsson lék í stöðu hægri bakvarðar í fallslag Stjörnunnar og Fylkis í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu. Óli Valur, sem leikur vanalega mun framar á vellinum, stóð sig með sóma en farið var yfir frammistöðu hans í Stúkunni að leik loknum. 24.8.2021 13:00