Fjöldi lögregluþjóna dó í sprengjuárás í mosku Minnst 44 dóu og 150 særðust þegar maður sprengdi sig í loft upp í mosku í Peshawar í Pakistan í morgun. Flestir hinna látnu eru lögregluþjónar, þar sem moskan er við lögreglustöð. 30.1.2023 16:23
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: „Við verðum að gera tímann að vopni okkar“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kallaði í gærkvöldi eftir því að bakhjarlar ríkisins flýti vopnasendingum til landsins. Harðir bardagar geisa víða í austurhluta Úkraínu, þar sem Rússar virðast hafa gefið í á undanförnum dögum. 30.1.2023 15:00
Talsmaður Pútíns segir Boris ljúga um meinta eldflaugarhótun Dmitrí Peskóv, talsmaður Vladimírs Pútins, forseta Rússlands, segir ekki rétt að Pútín hafi ógnað Boris Johnson, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands. Boris sagði í nýrri heimildarþáttarröð BBC um átökin í Úkraínu og aðdraganda innrásar Rússa í landið að skömmu fyrir innrásina hefði Pútín ógnað sér og Bretlandi. 30.1.2023 11:52
Þak mosku hrundi er maður sprengdi sig í loft upp Minnst 27 eru látnir og 147 særðir eftir sprengjuárás í mosku í Peshawar í Pakistan í morgun. Maður er sagður hafa sprengt sig í loft upp á bænartíma þegar moskan var full af fólki. 30.1.2023 10:56
Mossad beitti sjálfsprengidrónum í Íran Ísraelar gerðu um helgina drónaárás á skotmörk í borginni Isfahan í Íran. Árásin er sögð hafa verið framkvæmd af leyniþjónustu Ísraels og hafa mögulega beinst gegn eldflaugaframleiðslu Írans. 30.1.2023 10:29
Handalögmál í Sandkassanum Það má búast við handalögmálum í Sandkassanum í kvöld. Strákarnir ætla nefnilega að spila hinn sérstaka leik, Hand Simulator. 29.1.2023 20:30
Mótmæltu eftir grimmilegt morð á sex lögregluþjónum Rúmlega hundrað núverandi og fyrrverandi lögregluþjónar mótmæltu á götum Port-au-Prince, höfuðborgar Haítí, í gær. Þeir lokuðu götum, skutu út í loftið og brutu sér leið inn í flugvöll borgarinnar og heimili forsætisráðherra landsins til að mótmæla því hve margir lögregluþjónar hafa verið skotnir til bana af meðlimum glæpagengja að undanförnu. 27.1.2023 16:08
Biden fær nýjan starfsmannastjóra Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti í dag að Jeff Zients verður nýr starfsmannastjóri Hvíta hússins. Hann mun taka við af Ron Klain, sem hefur lengi starfað með Biden. Starfsmannavelta hefur verið tiltölulega lítil í Hvíta húsinu síðustu tvö ár. 27.1.2023 15:21
Lá dáin í íbúð sinni í rúm þrjú ár Bresk kona sem átti við mikil geðræn vandamál að stríða fannst í íbúð hennar rúmum þremur árum eftir að hún dó. Fjölskylda hennar kennir heilbrigðiskerfinu um og segir kerfið hafa brugðist henni. Enginn hafi fylgst með henni þrátt fyrir veikindi hennar. 27.1.2023 14:20
Sakamálarannsóknin sneri að Trump sjálfum Sérstakur rannsakandi sem William Barr, dómsmálaráðherra Donalds Trumps, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, skipaði til að rannsaka uppruna Rússarannsóknarinnar svokölluðu, rannsakaði Trump sjálfan um tíma. 27.1.2023 12:25