Féllu hvert um annað og gátu ekki staðið upp Tala látinna í Seoul í Suður-Kóreu er komin í 153 eftir gífurlegan troðning á hrekkjavökuhátíð í gær. Var þetta í fyrsta sem hátíðarhöld sem þessi fóru fram frá því fyrir tíma Covid og höfðu tugir þúsunda komið saman í miðbæ borgarinnar. 30.10.2022 10:21
Sprengisandur: Veðurfarsbreytingar, vinnumarkaður og formennirnir til umræðu í dag Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er í beinni útsendingu á Bylgjunni og hér á Vísi frá klukkan tíu til tólf alla sunnudaga. Í þættinum fær Kristján Kristjánsson til sín góða gesti og fer yfir þau málefni sem eru efst á baugi í samfélaginu hverju sinni. 30.10.2022 09:43
Guðlaugur boðar til fundar í Valhöll Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur boðað til opins fundar í Valhöll í dag. Þar er hann sagður ætla að tilkynna hvort hann ætli að bjóða sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins gegn Bjarna Benediktssyni. 30.10.2022 09:21
Rússar slíta sig frá kornsamkomulaginu vegna árásar við Krímskaga Yfirvöld í Rússlandi lýstu því yfir í gærkvöldi að ríkið myndi ekki langur taka þátt í samkomulagi sem hefur orðið til þess að rúm níu milljón tonn af korni hafa verið flutt frá Úkraínu frá því innrás Rússa hófst. Úkraínumenn saka Rússa um að reyna að beita hungri sem vopni. 30.10.2022 08:24
Minnst hundrað látnir eftir bílsprengjur í Mogadishu Minnst hundrað eru látnir og þrjú hundruð særðir í Sómalíu eftir að tvær bílsprengjur voru sprengdar fyrir utan menntamálaráðuneytið í Mogadishu í gær. Forseti Sómalíu kennir hryðjuverkasamtökunum al Shabaab en samtökin hafa einnig lýst yfir ábyrgð á árásinni. 30.10.2022 07:43
Ók næstum því á lögreglubíl Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í nótt en rúmlega hundrað mál voru skráð í dagbók lögreglu frá fimm í gær til fimm í morgun. Sjö voru vistaðir í fangageymslu. 30.10.2022 07:21
Skemmdu nýja flaggskip Rússa í drónaárás Úkraínumenn gerðu í nótt árásir á rússneska flotann í Svartahafi við Krímskaga. Notast var við dróna við árásina og þá bæði fljúgandi og siglandi dróna en Úkraínumenn eru sagðir hafa skemmt Makarov aðmírál, flaggskip svartahafsflota Rússa. 29.10.2022 14:48
Rasistar og tröll nýta sér tækifærið á Twitter Í kjölfar þess að auðjöfurinn Elon Musk tók yfir stjórn samfélagsmiðilsins Twitter er útlit fyrir að fjölmargir rasistar og nettröll hafi nýtt sér tækifærið til að básúna hatri sínu og leiðindum á samfélagsmiðlinum en Musk segist ætla að leggja mikla áherslu á málfrelsi á Twitter og eru uppi miklar vangaveltur um það hvernig ritstjórn mun fara fram. 29.10.2022 13:44
Jón Grétar nýr gjaldkeri Samfylkingarinnar Jón Grétar Þórsson hefur verið kjörinn gjaldkeri Samfylkingarinnar. Hann var kjörinn á landsfundi Samfylkingarinnar í morgun og hlaut hann 49.64 prósent greiddra atkvæða. 29.10.2022 11:23
Sauðfé fjarlægt af bænum og aðgerðir vegna nautgripa langt komnar Matvælastofnun hefur gripið til aðgerða vegna meints dýraníðs á bóndabæ í Borgarfirði þar sem grunur leikur á að illa hafi verið komið fram við dýr. Starfsmenn stofnunarinnar hafa áður tekið sauðfé af bænum en stutt er síðan hestar voru teknir þaðan og þeim lógað. 29.10.2022 11:13