FBI segir Baldwin hafa tekið í gikkinn Leikarinn Alec Baldwin, tók í gikk byssu á tökum kvikmyndarinnar Rust þegar Haylyna Hutchins, tökustjóri kvikmyndarinnar, fékk skot úr byssunni í bringuna og dó. Skotið hæfði einnig Joel Souza, leikstjóra en Baldwin hefur haldið því fram að hann hafi ekki tekið í gikkinn þegar skotið hljóp af. 14.8.2022 10:41
Kjaramálin, Landspítalinn og þolmörk jarðarinnar rædd á Sprengisandi Á Sprengisandi í dag verða tekin fyrir kjaramál, verkalýðsmál og verkalýðshreyfing. Fyrir viku boðaði Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR að haustið verði erfitt á vinnumarkaði. Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri SA ætlar að bregðast við því. 14.8.2022 09:31
Nyrsta gosopið lokað og metfjöldi á gosstöðvum 6.496 manns fóru og báru eldgosið í Meradölum augum í gær, samkvæmt talningu Ferðamálastofu, en það er mesti fjöldinn á einum degi frá því teljarinnar var settur upp í mars í fyrra. Nyrsta gosopið í Meradölum lokaðist í gær. 14.8.2022 09:05
Gengu út á hraunið og upp að gígunum Myndband náðist í gær af fólki sem hafði gengið út á glænýtt hraun í Meradölum í gær og upp að gígunum. Fólkið stóð nærri hraunflæðinu þegar maður notaði dróna til að reka þau á brott. 14.8.2022 08:40
Rushdie kominn úr öndunarvél Salman Rushdie er kominn úr öndunarvél og farinn að tala og segja brandara. Þetta segir vinur rithöfundarins, en ráðist var á Rushdie á sviði í New York á dögunum þar sem hann ætlaði að halda fyrirlestur. Rushdie var stunginn ítrekað og fluttur á sjúkrahús. 14.8.2022 07:48
Kastaði flösku í höfuð manns Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í nótt tilkynning um hávaða og ónæði í öllum hverfum. Alls var farið í ellefu slík útköll og níu sinnum fóru lögregluþjónar að huga að fólki sökum ölvunarástands. Fimm voru vistaðir á lögreglustöðinni við Hverfisgötu í nótt. 14.8.2022 07:24
„Byssukúlan“ sem var þrjátíu og þrjú ár á leiðinni Rithöfundurinn Salman Rushdie hefur um árabil þurft að fara huldu höfði vegna morðhótana. Undanfarin ár hafði hann þó farið að lifa eðlilegu lífi á nýjan leik en hann var stunginn margsinnis á sviði í New York-ríki í Bandaríkjunum í gær. 13.8.2022 18:00
Auglýsa eftir verkefnastjóra Sundabrautar Vegagerðin auglýsti í vikunni eftir umsóknum um starf verkefnastjóra fyrir Sundabraut. Sá sem sækir um og fær starfið á að sinna undirbúningi fyrir byggingu Sundabrautar. 13.8.2022 10:35
Nokkrum fjölskyldum vísað frá í gær Nokkrum erlendum fjölskyldum var vísað frá gönguleiðinni að eldgosasvæðinu í Meradölum í gær. Var það gert vegna ungs aldurs barna. Eftirlit er sagt hafa gengið vel en gangan mun hafa reynst mörgum erfið í nótt og þurftu margir aðstoð við að komast niður af fjallinu. 13.8.2022 09:39
Leitarheimildin byggði á grun um brot á njósnalögum Meðal þeirra leynilegu gagna sem starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna fjarlægðu úr sveitarklúbbi og heimili Donalds Trump, fyrrverandi forseta, í Flórída voru gögn sem höfðu hlotið einhverjar af hæstu leyndarskilgreiningum bandarískra stjórnvalda. 13.8.2022 08:19