24 dánir og 48 særðir í óeirðum í fangelsi í Ekvador Minnst 24 fangar eru látnir og minnst 48 særðir eftir miklar óeirðir í fangelsi í Ekvador í gær. Þetta er í þriðja sinn á þessu ári sem óeirðir sem þessar eiga sér stað í landinu vegna baráttu glæpagengja í landinu. 29.9.2021 10:29
Queens fara í hrollvekjandi skógarferð Stelpurnar í Queens ætla í hrollvekjandi skógarferð í streymi kvöldsins. Þær munu spila leikinn The Forest sem snýst um að lifa af á eyjum sem byggð er ógnvekjandi skrímslum. 28.9.2021 20:31
Saka Navalní um að ætla sér ofbeldisfulla valdatöku Ráðamenn í Rússlandi hafa opnað enn eitt dómsmálið gegn stjórnarandstæðingnum Alexei Navalní. Að þessu sinni er hann sakaður um að stofna öfgasamtök og gæti fangelsisdómur hans lengst um áratug. 28.9.2021 16:18
Flúðu eiturgas frá eldgosinu Ekkert lát virðist á eldgosinu á La Palma á Kanaríeyjum þó hægt hafi á virkni í nokkra klukkutíma í gær. Um helgina barst mikið magn ösku frá eldgosinu svo loka þurfti flugvelli eyjunnar. Í gær dró einnig úr öskumyndun og sprengingum í eldgosinu en þar hefur sömuleiðis bætt í aftur. 28.9.2021 15:27
Atlanta-morðinginn lýsir yfir sakleysi Maður sem hóf skothríð á þremur nuddstofum í Atlanta í Bandaríkjunum og úthverfi borgarinnar í mars segist saklaus gagnvart nýjustu ákærunum gegn honum. Maðurinn skaut átta til bana og þar af sex konur af asískum uppruna. 28.9.2021 14:40
NASA horfir lengra út í geim Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) hafa ákveðið að gera breytingar á starfseminni, sem eiga að stjórna áherslum opinberra geimferða næstu áratugina. Markmiðið er að leggja meiri áherslu á lengri geimferðir og þróun tækni sem þarf til þeirra. 28.9.2021 13:07
Katrín til í forsætisráðherrastólinn áfram Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna er til í að gegna embætti forsætisráðherra áfram. Það sé hins vegar ekki komið að því í viðræðum fráfarandi stjórnarflokka að skipta með sér embættum. Fyrst þurfi að kanna grundvöll fyrir áframhaldandi samstarfi og það gangi vel. 28.9.2021 11:35
Bandaríkin skrefinu nær vanskilum Öldungadeildarþingmenn Repúblikanaflokksins felldu í gær frumvarp sem ætlað var að tryggja áframhaldandi rekstur Bandaríkjastjórnar og koma í veg fyrir vanskil ríkisins. Til stendur að reyna aftur að koma frumvarpinu í gegn í vikunni. 28.9.2021 11:04
Lífskjarasamningurinn lifir enn Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands ætla ekki að segja upp lífskjarasamningnum svokallaða. Hann mun því halda gildi sinn út samningstímann og renna út þann 1. nóvember á næsta ári. 27.9.2021 17:00
Eggi kastað í Macron Mótmælandi kastaði eggi í Emmanuel Macron, forseta Frakklands. Samhliða því kallaði hann: „Viva la revolution“ eða „lengi lifi byltingin“. Eggið brotnaði ekki heldur skoppaði af öxl forsetans. 27.9.2021 16:37