Ræningjarnir yfirgáfu skipið Vopnaðir menn sem fóru um borð í olíuflutningaskip undan ströndum Óman í gær, yfirgáfu skipið Sjóher Bretlands tilkynnti þetta í morgun og var skipinu siglt í átt að Óman skömmu seinna. 4.8.2021 10:10
Geimskoti Starliner frestað þrisvar sinnum á einni viku Geimskoti geimfars Boeing, Starliner, hefur verið frestað enn eina ferðina og það þrisvar sinnum á einni viku. Geimskotinu var frestað í gær þegar ákveðinn galli kom upp og stóð til að gera aðra tilraun í dag. Í nótt var einnig hætt við hana og Starliner fjarlægt af skotpalli. 4.8.2021 09:28
Vopnaðir menn fóru um borð í olíuflutningaskip á Persaflóa Sjóher Bretlands tilkynnti í dag að olíuflutningaskipi hafi líklegast verið rænt undan ströndum Sameinuðu arabísku furstadæmanna í dag. Hópur vopnaðra manna eru sagðir hafa farið um borð í skipið Asphalt Princess. 3.8.2021 16:50
Sakaður um áreitni í garð minnst ellefu kvenna Andrew M. Cuomo, ríkisstjóri New York, áreitti konur kynferðislega og beitti sér gegn einni þeirra sem sakaði hann opinberlega um áreitni. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu sem Letitia James, ríkissaksóknari New York, opinberaði nú fyrir skömmu. 3.8.2021 15:27
Fyrsta borgin nærri því fallin í hendur Talibana Talibanar eru nálægt því að ná fullum tökum á Lashkar Gah, héraðshöfuðborg Helmand-héraðs. Þeir hafa einnig sótt fram gegn stjórnarher landsins í borgunum Kandahar og Herat. 3.8.2021 14:23
Yfirmaður Blizzard hættir störfum J. Allen Brack, yfirmaður leikjafyrirtækisins Blizzard Entertainment, hefur hætt störfum hjá fyrirtækinu. Það gerði hann í kjölfar lögsóknar Kaliforníuríkis vegna meintrar eitraðar starfsmenningar í garð kvenna innan veggja Activision Blizzard, sem er móðurfyrirtæki Blizzard. Fyrstu viðbrögð yfirmanna AB vöktu töluverða reiði meðal starfsmanna og annarra í tölvuleikjaheiminum. 3.8.2021 13:57
Ár frá sprengingunni í Beirút: Ráðamenn hunsuðu hættuna Embættismenn í Líbanon vissu af hættunni af um 2.750 tonnum af ammóníum nítrati sem geymt var í vöruskemmu á hafnarsvæðinu í Beirút. Þá sættu þeir sig við þá hættu en efnin sprungu í loft upp fyrir ári síðan í einni stærstu sprengingu jarðarinnar, séu kjarnorkusprengingar ekki taldar með. 3.8.2021 13:00
Þrír laumufarþegar um borð í skipi Eimskips Lögregluþjónar handtóku þrjá menn sem komu sem laumufarþegar um borð í skipi Eimskips frá Danmörku í dag. Mennirnir hafa verið færðir í fangaklefa. 3.8.2021 11:24
Tölvuleikjum lýst í Kína sem rafrænum fíkniefnum Verðmæti hlutabréfa kínverska fyrirtækisins Tencent hefur lækkað töluvert í kjölfar þess að ríkismiðlar Kína sögðu tölvuleiki vera „andlegt ópíum“ og „rafræn fíkniefni“. Þá hafa yfirvöld í Kína unnið að því að koma böndum á stærstu tæknifyrirtæki landsins á undanförnum mánuðum. 3.8.2021 09:56
Ásthildur er nýr stjórnarformaður Kaptio Ásthildur Otharsdóttir hefur tekið við stjórnarformennsku hjá Kaptio. Hún tekur við af Eggerti Claessen sem hefur verið formaður frá 2016. Kaptio er alþjóðlegt hugbúnaðarfyrirtæki á sviði bókunar- og viðskiptatengslahugbúnaðar fyrir ferðaþjónustu. 3.8.2021 09:38