Búið að bera kennsl á þann síðasta sem dó Búið er að bera kennsl á þann síðasta af 98 sem dóu þegar hluti fjölbýlishúss hrundi í bænum Surfside á Flórída þann 24. júní síðastliðinn. Estelle Hedaya var sú síðasta sem var á lista yfir þá sem hefur verið saknað frá því húsið hrundi. 26.7.2021 23:24
Fjóla Hrund leiðir lista Miðflokksins í Reykjavík suður Framboðslisti Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður var samþykktur á félagsfundi kjördæmisins í kvöld, 26. júlí. Listinn var samþykktur með 74 prósentum greiddra atkvæða en Fjóla Hrund Björnsdóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Miðflokksins, leiðir listann. 26.7.2021 22:34
Mikil ólga eftir ásakanir um „eitraða menningu“ og stanslausa áreitni Starfsmenn eins stærsta tölvuleikjafyrirtækis heims hafa fordæmt forsvarsmenn þess vegna ásakana um eitraða menningu innan veggja fyrirtækisins. Rúmlega þúsund starfsmenn Activision Blizzard skrifuðu undir yfirlýsingu þar sem viðbrögð forsvarsmanna fyrirtækisins við rannsókn yfirvalda í Kaliforníu á starfsmenningu þar og stöðugrar kynferðislegrar áreitni í garð kvenna sem þar vinna eru harðlega gagnrýnd. 26.7.2021 21:47
Delta-afbrigðið veldur usla víða um heim Delta-afbrigði Nýju kórónuveirunnar er skæðasta afbrigði veirunnar sem veldur Covid-19 og hefur að miklu leyti snúið baráttunni gegn faraldrinum á haus. Afbrigðið dreifist auðveldar manna á milli en bóluefni virðast veita mikla vörn gegn alvarlegum veikindum meðal smitaðra. 26.7.2021 21:31
Ákvæði um loftræstingu fjarlægt úr sóttvarnarreglum Búið er að gera tvær breytingar á núgildandi takmörkunum á samkomum vegna Covid-19. Önnur breytingin snýr að því að fjölda- og nálægðartakmarkanir snúi einnig að börnum og hin snýr að ákvæði um loftræstingu. 26.7.2021 21:11
Ætla að halda Þjóðhátíð síðar í sumar Þjóðhátíðarnefnd ÍBV stefnir að því að halda Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum síðar í sumar. Hátíðina átti að halda um næstu helgi, Verslunarmannahelgi, en sóttvarnaraðgerðir hafa komið niður á því. 26.7.2021 20:30
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 segjum við frá nýjum reglum sem eru líklegar til þess að fjölga verulega þeim sem verða sendir í sóttkví eftir að hafa verið nálægt fólki sem fær covid. 26.7.2021 18:01
Skoða að kalla heilbrigðisstarfsmenn úr sumarfríi Verið er að skoða að kalla heilbrigðisstarfsfólk úr sumarfríi vegna stöðunnar í faraldri nýju kórónuveirunnar hér á landi. Þetta sagði Guðrún Aspelund yfirlæknir, á sóttvarnarsviði Landlæknisembættisins, í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. 26.7.2021 17:33
Lofa öllu fögru en halda áfram að ógna og myrða Talibanar munu ekki semja um frið fyrr en Ashraf Ghani, núverandi forseti, fer frá völdum og ný ríkisstjórn verði mynduð. Þeir segjast ekki vilja stjórna einir þar sem engum hafi tekist það til lengri tíma. 24.7.2021 09:02
Witcher-leikarar komnir til landsins Tökur fyrir nýja þáttaröð í söguheimi Witcher fara fram á Íslandi um þessar mundir. Þættirnir, sem eru á vegum Netflix, kallast Witcher: Blood Origin og gerast hundruðum ára á undan bókunum eftir Andrzej Sapkowski, tölvuleikjunum og þáttunum vinsælu sem þegar hafa litið dagsins ljós. 23.7.2021 14:32