Þingmenn ná ekki saman um neyðarpakka Vinna þverpólitísks hóps bandarískra þingmanna að 900 milljarða dala neyðarpakka virðist engum árangri ætla að skila. Þá helst vegna andstöðu Repúblikana við að veita ríkjum og borgum Bandaríkjanna fjárhagslega aðstoð og deilum þingmanna sín á milli. 11.12.2020 12:39
Stefna á sýningu tuga þátta úr söguheimum Star Wars og Marvel Forsvarsmenn Disney kynntu fjárfestum í gær mjög svo metnaðarfulla áætlun varðandi framleiðslu sjónvarpsefnis og kvikmynda á næstu árum. Mikið af því efni tengist tveimur mjög vinsælum söguheimum í eigu Disney, söguheimum Marvel og Star Wars. 11.12.2020 11:04
Baðst afsökunar á aðkomu sinni að grimmilegum morðum fyrir aftöku Brandon Bernard, sem dæmdur var til dauða árið 1999, var tekinn af lífi í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Hann var fyrstur af fimm alríkisföngum í Bandaríkjunum sem ríkisstjórn Donalds Trump, fráfarandi forseta, fyrirskipaði nýverið að ætti að taka af lífi áður en hann lætur af embætti í janúar. 11.12.2020 09:22
Leikarinn Tommy Lister dáinn eftir að hafa sýnt einkenni Covid-19 Leikarinn Tommy Lister er látinn. Hann var 62 ára gamall. Lister hóf feril sinn í bandarískri fjölbragðaglímu og færði sig svo yfir í kvikmyndir og sjónvarp. Hann var hvað þekktastur fyrir leik sinn í Friday-myndunum, Fifth Element, Dark Knight og fjölda annarra aukahlutverka í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum undanfarna tvo til þrjá áratugi. 11.12.2020 08:31
Spænska ríkið rak afkomendur einræðisherrans á dyr Ríkisstjórn Spánar hefur nú tekið formlega við eignarhaldi sumarhallar einræðisherrans Franco og vísað afkomendum hans á dyr. Með höllinni fylgdi stórt listasafn en eignin var metin á rúmlega fimm milljónir evra í fyrra. 10.12.2020 15:47
Yfirmenn hjá FBI sleppa við refsingar vegna ásakana um kynferðisbrot Yfirmenn hjá Alríkislögreglu Bandaríkjanna hafa ítrekað verið sakaðir um kynferðisbrot á undanförnum árum. Engum hefur þó verið refsað, jafnvel þó rannsóknir hafi stutt ásakanir gegn þeim. 10.12.2020 14:56
Forsætisráðherra og fyrrverandi ráðherrar ákærðir vegna sprengingarinnar í Beirút Dómari sem hefur rannsakað gífurlega stóra og mannskæða sprengingu sem varð í höfn Beirút í Líbanon í ágúst hefur ákært Hassan Diab, fráfarandi forsætisráðherra landsins, og þrjá fyrrverandi ráðherra. Þeir eru allir ákærðir fyrir vanrækslu og að hafa þannig valdið sprengingunni. 10.12.2020 13:32
Geimfararnir sem stefna á tunglið Geimvísindastofnun Bandaríkjanna (NASA) opinberaði í gær hóp geimfara sem hafa verið valdir til að taka þátt í Artemis áætluninni. Hún snýr að því að hefja mannaðar geimferðir til tunglsins á nýjan leik og nota það sem stökkpall fyrir geimferðir lengra út í sólkerfið og þá sérstaklega til mars. 10.12.2020 13:10
Frakkar beita Google og Amazon háum sektum Yfirvöld í Frakklandi hafa sektað Google um hundrað milljónir evra og Amazon um 35 milljónir. Það samsvarar rúmum fimmtán milljörðum króna annars vegar og rúmum fimm milljörðum hins vegar. 10.12.2020 10:39
Höfða mál gegn Facebook og vilja slíta Instagram og WhatsApp frá fyrirtækinu Alríkisviðskiptastofnun Bandaríkjanna (FTC) og yfirvöld 48 ríkja og héraða hafa höfðað mál gegn Facebook og saka fyrirtækið um brot á samkeppnislögum. Forsvarsmenn Facebook eru sakaðir um að hafa misnotað yfirráðandi markaðsstöðu fyrirtækisins til að berja niður alla samkeppni og fara fram á að fyrirtækið selji samfélagsmiðilinn Instagram og skilaboðaþjónustuna WhatsApp. 10.12.2020 09:11