Alfreð rekinn frá Grindavík Knattspyrnudeild Grindavíkur hefur hafið leit að nýjum þjálfara karlaliðs félagsins eftir að hafa ákveðið að ljúka samstarfinu við Alfreð Elías Jóhannsson. 30.9.2022 10:15
Nýliðinn átti tilþrif kvöldsins Árni Ágúst Daníelsson, sem hóf að æfa pílukast í byrjun þessa árs, sýndi frábær tilþrif á öðru keppniskvöldi Úrvalsdeildarinnar í pílukasti. 29.9.2022 16:31
Útlit fyrir að Ronaldo byrji gegn Man. City Útlit er fyrir að Cristiano Ronaldo verði í byrjunarliði Manchester United, í fyrsta sinn í sjö vikur, þegar liðið mætir meisturum Manchester City í stórleik um helgina í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. 29.9.2022 14:30
Fíflagangur eða leið til að hafa óeðlileg áhrif? Í hópi þjálfara, fyrirliða og formanna félaganna tólf í Subway-deild karla eru ákveðnir aðilar sem spáðu algjörlega á skjön við kollega sína í spá um gengi liðanna í vetur, sem birt var í dag. 29.9.2022 14:00
Keflavík spáð sigri en Hetti og ÍR falli Keflavík endar í efsta sæti Subway-deildar karla í körfubolta en Höttur og ÍR falla niður í 1. deild, samkvæmt árlegri spá fyrirliða, þjálfara og formanna félaganna tólf í efstu deild. 29.9.2022 12:51
Sjáðu Vitor fljúga inn í úrslit: „Ég veit að Matthías er brjálaður“ Vitor Charrua vann óvæntan en afar sannfærandi sigur á öðru keppniskvöldi Úrvalsdeildarinnar í pílukasti. Hann skellti meðal annars Íslandsmeistara síðustu þriggja ára, Matthíasi Erni Friðrikssyni, 3-0. 29.9.2022 12:01
Karen á von á páskaunga Landsliðskonan Karen Knútsdóttir, leikstjórnandi og lykilmaður Fram í handbolta, verður ekki með Íslandsmeisturunum í vetur þar sem hún er ólétt að sínu öðru barni. 29.9.2022 10:21
Danir spila í mótmælatreyjum á HM Danski íþróttavöruframleiðandinn Hummel segir að með hönnun á nýju HM-treyju danska landsliðsins í fótbolta sé ætlunin að mótmæla Katar og mannréttindabrotum þar í landi. 28.9.2022 16:31
Umfjöllun: Slavia Prag - Valur 0-0 | Draumurinn úti hjá Valskonum Slavia Prag og Valur gerðu markalaust jafntefli í dag í seinni umspilsleik sínum um sæti í sjálfri riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta kvenna. Það dugði Valskonum ekki. 28.9.2022 14:55
Bjarki „grýtti“ dóttur sinni í djúpu laugina í ungverskum skóla „Það er biluð pressa hérna en þegar það gengur vel er allt æðislegt. Við höfum ekki tapað leik síðan að ég kom en þeir tala um það að það fari allt til fjandans ef við töpum einum leik eða gerum jafntefli,“ segir Bjarki Már Elísson, landsliðsmaður í handbolta, eftir fyrstu mánuðina sem leikmaður ungverska stórveldisins Veszprém. 28.9.2022 14:00