Glazer-fjölskyldan til í að selja hlut í Man. Utd Eigendur Manchester United, hin bandaríska Glazer-fjölskylda, hafa rætt um það að fá inn nýjan hluthafa en vilja þó ekki missa meirihlutastöðu sína. 17.8.2022 14:57
Hylltur sem hetja eftir að hafa hætt að hlaupa til að hjálpa keppinauti á EM Það er afar sjaldgæft að keppanda á stórmóti sé klappað lof í lófa af öllum viðstöddum, komi hann langsíðastur í mark. Sú var þó raunin í 3.000 metra hindrunarhlaupi á EM í frjálsíþróttum í gær. 17.8.2022 14:31
„Létt kast og þægilegt“ „Ég vissi að ég myndi gera þetta,“ sagði Hilmar Örn Jónsson eftir að hafa kastað sleggju 76,33 metra, eða meira en sem nemur hæð Hallgrímskirkju, þegar mest lá við á Evrópumótinu í frjálsum íþróttum í dag. 17.8.2022 10:00
Gylfi mætti spila fótbolta hvar sem er en gæti þurft að bíða niðurstöðu lengi enn Nú þegar þrettán mánuðir eru liðnir frá því að knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson var handtekinn, grunaður um kynferðisbrot gegn ólögráða ungmenni, er enn óljóst hver niðurstaða málsins verður. Biðin eftir niðurstöðu gæti enn verið talin í árum. 17.8.2022 09:01
Aron Einar og félagar á toppnum Aron Einar Gunnarsson og liðsfélagar hans í Al Arabi eru á toppi katörsku úrvalsdeildarinnar eftir að hafa unnið fyrstu þrjá leiki sína á tímabilinu. 16.8.2022 16:47
Birti ógeðsleg skilaboð frá íslenskum strák Danski miðvörðurinn Joachim Andersen fékk hundruð hatursfullra skilaboða frá stuðningsmönnum Liverpool eftir viðskipti sín við Darwin Núnez í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gærkvöld. Hann birti nokkur skilaboð, þar á meðal ein frá íslenskum táningi. 16.8.2022 14:31
Þórsarar reyndu ekki að fá bulldómnum breytt Knattspyrnudeild Þórs ákvað að sækjast ekki formlega eftir því að Hermann Helgi Rúnarsson slyppi við leikbann eftir rauða spjaldið sem hann fékk ranglega vegna misskilnings dómarans reynslumikla, Erlends Eiríkssonar, í leik gegn Selfossi. 16.8.2022 13:01
Símon hélt áfram að bæta sig í lokagrein Íslendinga Símon Elías Statkevicius batt enda á þátttöku Íslendinga á Evrópumótinu í sundi í Róm í dag þegar hann keppti í 50 metra skriðsundi. 16.8.2022 10:47
Thelma og Hildur Maja fara á HM Thelma Aðalsteinsdóttir og Hildur Maja Guðmundsdóttir munu keppa á heimsmeistaramótinu í áhaldafimleikum í vetur vegna góðs árangurs á Evrópumótinu í München. 15.8.2022 17:00
Rúnar Alex aftur að láni frá Arsenal Rúnar Alex Rúnarsson hefur verið lánaður frá enska knattspyrnufélaginu Arsenal, líkt og á síðustu leiktíð. Að þessu sinni fer hann til tyrkneska félagsins Alanyaspor. 15.8.2022 16:40