„Ég er ekkert að fara í Val í dag“ Heimir Hallgrímsson segir „leiðinlegt“ að lesa í fjölmiðlum orðróma þess efnis að hann sé að taka við knattspyrnuliði Vals af nafna sínum Heimi Guðjónssyni. Hann hafi ekki rætt við Val og stefni sjálfur enn á að þjálfa erlendis. 2.6.2022 12:56
Einkalæknir Nadals sér um Martin Körfuboltamaðurinn Martin Hermannsson segist vera í fullkomlega góðum höndum hjá Valencia vegna meiðsla sinna en hann sleit krossband í hné á mánudagskvöld. 2.6.2022 11:31
Ferðin á EM í Þýskalandi gæti hafist í Haífa í kvöld Hið unga íslenska A-landslið karla í fótbolta gæti með góðum úrslitum í Ísrael í kvöld stigið fyrsta skrefið í átt að því að spila á stórmóti eftir tvö ár; Evrópumótinu í Þýskalandi. 2.6.2022 09:31
Martin var í sigti risaliða en gæti flutt til Íslands Sannkölluð stórlið í evrópskum körfubolta voru farin að bera víurnar í Martin Hermannsson áður en hann sleit krossband í hné á mánudagskvöld. Nú gerir hann ráð fyrir að vera áfram í Valencia og þar líður honum afar vel. 2.6.2022 08:31
Tvö sambönd drógu KSÍ á asnaeyrunum og enn er beðið Rétt rúmur mánuður er þar til að stelpurnar okkar í íslenska landsliðinu í fótbolta hefja keppni á EM í Englandi. Samt hefur enn ekki verið tilkynnt um einn einasta vináttulandsleik fyrir liðið til undirbúnings fyrir mótið. 1.6.2022 22:30
„Fannst ég hafa legið þarna í tvo tíma“ „Maður hlustaði ekki nógu vel á líkamann,“ segir Martin Hermannsson, landsliðsmaður í körfubolta, sem hafði ekki getað æft með hefðbundnum hætti síðustu vikur áður en hann sleit krossband í hné á mánudagskvöld. 1.6.2022 16:02
Sólveig Lára snýr heim í þjálfun Sólveig Lára Kjærnested hefur ákveðið að snúa sér að þjálfun og mun stýra liðinu sem hún ólst upp hjá, ÍR í Breiðholti. 1.6.2022 14:30
Mótherji sendi Martin íslenska batakveðju Stuðnings- og batakveðjum hefur rignt yfir Martin Hermannsson eftir að hann sleit krossband í hné í leik með Valencia í úrslitakeppni spænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta í fyrrakvöld. 1.6.2022 12:01
Bale kveður og segir draum sinn hafa ræst hjá Real Hinn 32 ára gamli Gareth Bale hefur nú yfirgefið Real Madrid eftir að hafa fagnað Evrópu- og Spánarmeistaratitli með liðinu á nýafstaðinni leiktíð. 1.6.2022 10:30
Messi gat ekki hlaupið í margar vikur eftir smit Lionel Messi var lengi að jafna sig eftir að hafa smitast af kórónuveirunni í byrjun árs og kveðst enn hafa verið að jafna sig þegar hann féll úr leik í Meistaradeild Evrópu með liði sínu PSG. 31.5.2022 17:30