Svikahrappar haft milljónir af íslenskum íþróttafélögum Eftir að hafa haft hægt um sig á tímum kórónuveirufaraldursins virðast netsvikarar núna farnir að herja að nýju á íþróttafélög í landinu sem í einhverjum tilvikum hafa tapað milljónum króna við að láta blekkjast. 21.6.2022 08:01
Allir spenntir en fáir átt von á að hún stimplaði sig svona rækilega inn Katla Tryggvadóttir og Ásdís Karen Halldórsdóttir skoruðu báðar í leik Þróttar og Vals í Bestu deildinni í gær og fengu mikið hrós í Bestu mörkunum á Stöð 2 Sport. 20.6.2022 16:31
Nýtt Framlag Hreims fyrir fyrsta leikinn í efstu deild í Grafarholti Í kvöld verður í fyrsta sinn spilaður leikur í efstu deild í boltaíþrótt í Grafarholti þegar þar mætast Fram og ÍBV í Bestu deild karla í fótbolta. 20.6.2022 15:31
Sjáðu TM-mótið í Eyjum: Pöntuðu ís og útlandaferð eftir frábæran úrslitaleik Það var nóg um að vera í Vestmannaeyjum þegar TM-mótið fór þar fram á dögunum, þar sem stelpur í 5. flokki léku listir sínar. Þær sýndu einnig tilþrif utan vallar og voru laufléttar í bragði í samtölum sínum við Svövu Kristínu Gretarsdóttur sem gerði mótinu góð skil í þætti á Stöð 2 Sport. 20.6.2022 12:30
„Mjög óvinsæl“ en verður með á EM Danir verða líkt og Íslendingar á Evrópumótinu í Englandi í næsta mánuði og nú hefur danski landsliðsþjálfarinn Lars Söndergaard tilkynnt hvaða 23 leikmenn hann ætlar að taka með á mótið. 16.6.2022 15:01
Yfir 2.000 Íslendingar á Gothia Cup Mikill fjöldi ungra, íslenskra fótboltaiðkenda er á leið í langþráða ferð á Gothia Cup í Svíþjóð í næsta mánuði. Þetta vinsæla fótboltamót hefur ekki verið haldið í tvö ár vegna kórónuveirufaraldursins. 16.6.2022 11:02
Arnar þriðji Íslendingurinn sem skiptir til Ribe í sumar Örvhenta skyttan Arnar Birkir Hálfdánsson hefur skrifað undir samning til tveggja ára við danska úrvalsdeildarfélagið Ribe-Esbjerg. 16.6.2022 09:20
Eru Sádar að eyðileggja golfið? Þó að Sádi-Aröbum hafi ekki tekist að lokka Tiger Woods yfir á hina nýju LIV-mótaröð í golfi, alla vega ekki enn, stendur golfheimurinn nú klofinn eftir að stór hópur kylfinga úr fremstu röð hefur þegið þær himinháu fjárhæðir sem þar eru í boði. 16.6.2022 08:00
Segir LIV fyrir eldri kylfinga og þá sem kjósi auðveldu leiðina Rory McIlroy hélt áfram að gagnrýna þá kylfinga sem gengið hafa til liðs við hina umdeildu LIV-mótaröð í golfi þegar hann sat fyrir svörum á fjölmiðlafundi, í aðdraganda þess að hann mætir þeim á US Open risamótinu sem hefst á morgun. 15.6.2022 15:02
La Liga berst gegn „ríkisfélögunum“ PSG og Man. City Forráðamenn spænsku 1. deildarinnar í fótbolta, La Liga, hafa sent formlegar ásakanir til UEFA, knattspyrnusambands Evrópu, þar sem þeir telja PSG og Manchester City hafa brotið reglur um fjárhagslega háttvísi. 15.6.2022 14:01