Arnar Freyr sterkur í miklum Íslendingaslag Arnar Freyr Arnarsson skoraði fimm mörk úr jafnmörgum skotum þegar lið hans GOG vann SönderjyskE í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, 33-26, á útivelli. 20.2.2020 20:48
Eriksen með sitt fyrsta og Lukaku skoraði í sjötta leiknum í röð Inter Mílanó er í góðum málum eftir fyrri leik sinn við Búlgaríumeistara Ludogorets Razgrad í Búlgaríu í kvöld, í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í fótbolta. 20.2.2020 20:13
Bjarki bætti tíu mörkum í sarpinn í jafntefli við Löwen Bjarki Már Elísson bætti í forskot sitt sem markahæsti leikmaður þýsku 1. deildarinnar í handbolta þegar Lemgo náði í stig á útivelli gegn Rhein-Neckar Löwen í kvöld, 29-29. 20.2.2020 19:47
Ragnar kom sér af stað með jafntefli við Celtic Ragnar Sigurðsson lék í kvöld sinn fyrsta leik í endurkomunni til FC Köbenhavn er liðið mætti Skotlandsmeisturum Celtic í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar. 20.2.2020 19:45
Man. United í ágætri stöðu eftir jafntefli í Belgíu Manchester United og Club Brugge gerðu 1-1 jafntefli í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld, þegar þau mættust í Belgíu í fyrri leik sínum. 20.2.2020 19:45
Sportpakkinn: Sjokk að sjá niðurstöðu um 80 milljóna sveiflu Ársþing KSÍ verður í Ólafsvík um helgina. Haraldur Haraldsson, formaður Íslensks toppfótbolta og stjórnarmaður í KSÍ, segir að meginumræðan á þinginu verði um ársreikning sambandsins. 20.2.2020 19:00
Martin stórkostlegur í Rússlandi Á meðan að félagar hans úr íslenska landsliðinu leika við Kósóvó í forkeppni HM átti Martin Hermannsson stórleik í EuroLeague í kvöld þegar nýkrýndir bikarmeistarar Alba Berlín frá Þýskalandi unnu Zenit St. Pétursborg í Rússlandi, 83-81. 20.2.2020 18:52
Snorri sló heimsmeistara og ólympíumeistara við | Besti árangur Íslendings Snorri Einarsson náði besta árangri sem íslenskur skíðagöngumaður hefur náð á heimsbikarmóti þegar hann keppti á móti í Meråker í Noregi í dag. Mótið var hluti af Ski Tour sem tilheyrir heimsbikarmótaröðinni. 20.2.2020 18:24
Þjálfarar bikarmeistaranna allir úr Borgarfirði Fjórir þjálfarar og aðstoðarþjálfarar sem fögnuðu bikarmeistaratitlunum tveimur í körfubolta í gær eiga að minnsta kosti eitt annað sameiginlegt. Þeir eru allir Borgfirðingar. 16.2.2020 22:30
Bjarki enn markahæstur eftir sigur Bjarki Már Elísson skoraði sex marka Lemgo sem vann Minden 31-26 í þýsku 1. deildinni í handbolta í dag. 16.2.2020 16:59