„Maður getur bara verið alveg eins og maður er” Litadýrð, gleði og regnbogar eru sem fyrr einkennandi fyrir Hinsegin daga sem voru formlega settir í miðborg Reykjavíkur í dag, þrátt fyrir að engin gleðiganga verði - annað árið í röð. 3.8.2021 20:01
Opna skimunarstöð fyrir skyndipróf á BSÍ Skimunarstöð fyrir hraðpróf hefur verið opnuð í húsnæði BSÍ í Reykjavík en hún er sérstaklega ætluð þeim sem ætla úr landi. Um er að að ræða skyndipróf sem framkvæmd eru af einkaaðila en tekin gild á landamærum. 3.8.2021 19:46
Til skoðunar að gefa þriðja skammtinn Til skoðunar er að gefa þriðja bóluefnaskammtinn, að sögn Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra. Um verður að ræða svokallaðan örvunarskammt og sérstaklega verður horft til viðkvæmra hópa. 3.8.2021 15:44
Tveir litlir pönduhúnar komu í heiminn í nótt Risapandan Huan Huan fæddi tvíbura í Beauval dýragarðinum í París laust eftir klukkan eitt í nótt. Húnarnir vógu 129 og 149 grömm og heilsast báðum vel. Móðirin tók bleiku ungana sína strax í fangið og þreif þá áður en hún leyfði starfsfólki að hlúa að þeim. 2.8.2021 19:10
Rannsaka andlát mannsins sem lést eftir handtöku Héraðssaksóknari hefur hafið rannsókn á andláti karlmanns eftir handtöku í austurbæ Reykjavíkur í gær. Skýrslutökur fóru fram í dag auk þess sem læknisfræðileg rannsókn fer fram í vikunni. 2.8.2021 18:08
Tvöfalt fleiri reyndust smitaðir í Herjólfi Þrjátíu ferðamenn eru komnir í farsóttahús eftir að hafa greinst með kórónuveiruna um borð í Herjólfi. Hópurinn hafði áður gert tilraun til að ferðast til Vestmannaeyja en kórónuveirufaraldurinn setti strik í reikninginn, segir Gylfi Þór Þorsteinsson, umsjónarmaður húsanna. 2.8.2021 13:07
Lögregluþjónar þingsins segja sögu sína: „Þú munt deyja á hnjánum“ Yfirheyrslur hófust í dag fyrir rannsóknarnefnd Bandaríkjaþings vegna árásarinnar á þinghúsið í Washington DC í byrjun árs. Lögregluþjónar sem voru á vakt þann dag voru þeir fyrstu sem mættu fyrir þingnefnd sem ætlað er að rannsaka árásina á þinghúsið þann dag. 27.7.2021 23:00
Kemur til greina að hraðprófa fyrir stóra viðburði Til greina kemur að nota hraðpróf í meiri mæli hér á landi, til dæmis á stórum vinnustöðum og fyrir fjölmenna viðburði, líkt og tíðkast víða um heim, að sögn landlæknis. Landspítalinn hóf að skima starfsfólk sitt með hraðprófum í dag. 27.7.2021 19:35
Dæmi að fólk missi af flugi vegna ófullnægjandi gagna Talsvert er um að fólk mæti ekki með fullnægjandi gögn á Keflavíkurflugvöll og dæmi eru um að það missi þar af leiðandi af flugi sínu út, segir Arngrímur Guðmundsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Suðurnesjum. Hann hvetur fólk til að fylgjast með þeim reglum sem séu í gildi hverju sinni, sem geti breyst frá degi til dags. Þá sé mikilvægt að ferðalangar mæti snemma í innritun því hún taki lengri tíma nú en áður. 27.7.2021 12:00
Hert á reglum um sóttkví Hert verður á reglum um sóttkví sem verða þá eins og þær voru áður en bólusetningar hófust hér á landi. Ekki verður lengur tekið tillit til þess hvort útsettur einstaklingur sé bólusettur eða ekki, segir sérfræðingur á sóttvarnarsviði embættis landlæknis. 26.7.2021 12:10