Eldur í grilli á svölum við Skúlagötu Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út klukkan hálfátta í kvöld vegna elds á svölum á þriðju hæð í fjölbýli við Skúlagötu í Reykjavík. 27.5.2020 19:56
Mál Elínar og Sigurjóns fara aftur fyrir Hæstarétt Hæstiréttur hefur hafnað frávísunarkröfu ákæruvaldsins varðandi endurupptöku mála þeirra Sigurjóns Þ. Árnasonar, fyrrverandi bankastjóra Landsbankans, og Elínar Sigfúsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs bankans. 27.5.2020 18:50
Twitter merkir tíst Trump sem misvísandi Um er að ræða tvö tíst sem snúast um kjörseðla sem sendir eru heim til fólks. 26.5.2020 23:50
Telja minni líkur á hópamyndun á djamminu með styttri opnunartíma Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, segir yfirvöld hafa áhyggjur af mögulegri hópamyndun í miðbæ Reykjavíkur um komandi helgi eftir að skemmtistöðum, börum og veitingastöðum verður lokað. 26.5.2020 22:52
Telur ferðagjöfina geta eflt innanlandsmarkað ferðaþjónustunnar Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, telur að 5.000 króna ferðagjöfin sem kynnt var á fundi í morgun geti eflt innanlandsmarkað ferðaþjónustunnar inn í næstu ár. 26.5.2020 21:31
198 manns sagt upp í átta hópuppsögnum Átta fyrirtæki hafa nú þegar tilkynnt um hópuppsögn í þessum mánuði og nær það yfir 198 manns. 26.5.2020 20:40
„Ekki fullkomin lausn“ að skima fólk á Keflavíkurflugvelli Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir að það sé ljóst að það þurfi töluvert mikið til og mikinn undirbúning ef það á að skima alla farþega á Keflavíkurflugvelli. 26.5.2020 19:55
Eldur kom upp í gámi við Langholtsskóla Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út rétt fyrir klukkan 18 í dag vegna elds sem hafði kviknað í gámi við Langholtsskóla. 26.5.2020 18:35
Aðilar í ferðaþjónustu gætu þurft að sinna ferðamönnum í einangrun Aðilar í ferðaþjónustunni þurfa að vera undir það búnir að senda ferðamenn sem koma hingað til lands í sýnatöku vegna kórónuveirunnar sem veldur sjúkdómnum Covid-19 og jafnvel sinna þeim ef þeir þurfa að sæta sóttkví og/eða einangrun. 26.5.2020 17:56
Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-0 | Breiðablik Íslandsmeistari eftir spennutrylli Íslenski boltinn