Fréttir
133 134 135 136 137 138 139 140 141 … 334 ›
Olíuverðið nálægt 100 dölum á tunnu Heimsmarkaðsverð á hráolíu rauk í sögulegar hæðir á fjármálamörkuðum í dag og fór yfir 96 dali á tunnu. Verðið hefur aldrei verið hærra og stefnir hraðbyr að 100 dala markinu. Viðskipti erlent 1.11.2007 09:18
Stýrivextir lækka í Bandaríkjunum Bankastjórn bandaríska seðlabankans ákvað í dag að lækka stýrivexti um 25 punkta og fara vextirnir því úr 4,75 prósentum í 4,5 prósent. Flestir höfðu reiknað með þessari niðurstöðu en útilokuðu þó ekki 50 punkta vaxtalækkun vegna aðstæðna í bandarísku efnahagslífi. Viðskipti erlent 31.10.2007 18:28
Gengi Google aldrei hærra Gengi hlutabréfa í netleitarrisanum Google fór yfir 700 dali á hlut í dag en þetta mun vera í fyrsta sinn síðan fyrirtækið var skráð á hlutabréfamarkað um mitt ár 2004 sem gengið hefur farið svo hátt. Viðskipti erlent 31.10.2007 14:45
Hagvöxtur í Bandaríkjunum umfram spár Hagvöxtur í Bandaríkjunum mældist 3,9 prósent á þriðja ársfjórðungi samanborið við 3,8 prósent á öðrum ársfjórðungi, samkvæmt útreikningum bandaríska viðskiptaráðuneytisins. Þetta er nokkuð meiri hagvöxtur en reiknað hafði verið með á fjórðungnum sem einkennst hefur á þrengingum á bandarískum fasteignamarkaði og lausafjárkrísu á fjármálamörkuðum. Viðskipti erlent 31.10.2007 13:21
Enn mótmælt í Búrma Rúmlega 200 búddamunkar mótmæltu herforingjastjórninni í Búrma í morgun. Mótmælin voru friðsamleg. Ekki er búist við að mótmælt verði víðar og að fleiri taki þátt vegna þess hversu hart var tekið á umfangsmiklum mótmælum í stærstu borgum Búrma í síðasta mánuði. Erlent 31.10.2007 12:21
Unglingur kveikti elda Unglingsstrákur hefur játað að hafa kveikt elda í skóglendi Suður-Kaliforníu í síðustu viku. Annar brennuvargur er eftirlýstur vegna elda sem loguðu suður af Los Angeles og kvart milljón bandaríkjadala boðin í verðlaun fyrir upplýsingar sem leiði til handtöku. Erlent 31.10.2007 12:15
Tap Teymis tæpir 1,2 milljarðar króna Teymi tapaði 1.187 milljónum króna á þriðja ársfjórðungi. Hagnaðurinn á níu fyrstu níu mánuðum ársins nam hins vegar 1.575 milljónum króna. Viðskipti innlent 31.10.2007 12:04
Mestar líkur á óbreyttum stýrivöxtum Greiningardeild Glitnis telur líkur á því að Seðlabankinn ákveði að halda stýrivöxtum óbreyttum í 13,3 prósentum á vaxtaákvörðunarfundi bankans á morgun og muni hugsanlega ekki hefja lækkanaferli fyrr en á öðrum fjórðungi á næsta ári. Viðskipti innlent 31.10.2007 11:36
Óbreyttir stýrivextir í Japan Japanski seðlabankinn ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum í 0,5 prósentum. Bankinn segir ennfremur í endurskoðaði hagspá sinni fyrir árið að hagvöxtu verði um 1,8 prósent í stað 2,1 eins og fyrri spá hljóðaði upp á. Hann telur að á næsta ári muni blása byrlega og muni hagvöxtur nema 2,1 prósenti. Viðskipti erlent 31.10.2007 11:20
Færeyingar efstir og neðstir Gengi færeyska olíuleitarfélagsins Atlantic Petroleum hefur lækkað um 2,39 prósent eftir að viðskipti hófust í Kauphöll Íslands í dag en þetta er mesta lækkun dagsins. Gengi félagsins hefur rokið upp um l80 prósent síðan það féll í óróleika á fjármálamörkuðum í ágúst og stendur nú nálægt sínu hæsta gildi, sem náðist í gær. Á sama tíma hefur gengi Föroya banka hækkað mest í dag. Viðskipti innlent 31.10.2007 10:14
Enn lækkar dollarinn Gengi bandaríkjadals fór enn á ný í lægstu lægðir gagnvart breska pundinu í dag en 2,0727 dalir fást nú fyrir hvert pund. Bilið hefur aukist hratt síðustu daga og hefur ekki verið meira síðan um mitt sumar 1981. Viðskipti erlent 31.10.2007 09:24
Hagnaður Deutsche Bank jókst um 31 prósent Hagnaður Deutsche Bank nam 1,62 milljörðum evra, jafnvirði tæplega 141 milljarðs króna, á þriðja ársfjórðungi samanborið við 1,24 milljarða á sama tíma í fyrra. Þetta er 31 prósents hækkun á milli ára og nokkuð yfir væntingum. Inn í afkomutölurnar koma endurgreiddir skattar og hagnaður af sölu eigna sem vegur upp á móti fyrsta tapi af fjárfestingum bankans í heil fimm ár. Viðskipti erlent 31.10.2007 08:56
Fjárfestar bíða ákvörðunar bandaríska seðlabankans Gengi helstu hlutabréfavísitalna lækkaði er nær dró lokun viðskipta á bandarískum fjármálamörkuðum í dag. Nokkrir þættir skýra lækkunina en fjáfestar þykja bjartsýnir á að bankastjórn seðlabanka Bandaríkjanna tilkynni um 25 punkta lækkun stýrivaxta á morgun að loknum tveggja daga vaxtaákvörðunarfundi, sem hófst í dag. Viðskipti erlent 30.10.2007 20:34
Kaupþing spáir aukinni verðbólgu og óbreyttum vöxtum Greiningardeild Kaupþings spáir því að vísitala neysluverðs hækki um 0,2 prósent á milli mánaða í nóvember. Gangi það eftir hækkar verðbólga úr 4,5 prósentum nú í 4,7 prósent. Kaupþing spáir því að seðlabankinn muni halda stýrivöxtum óbreyttum í 13,3 prósentum á fimmtudag. Viðskipti innlent 30.10.2007 15:57
Pundið nálægt hæstu hæðum gagnvart bandaríkjadal Gengi breska sterlingpundsins fór í hæstu hæðir gagnvart bandaríkjadal á mörkuðum í dag en 2,066 dalir fengust fyrir hvert pund. Dollarinn hefur ekki verið ódýrari síðan um mitt sumar árið 1981. Viðskipti erlent 30.10.2007 15:29
Fjárfestar bíða stýrivaxtadags Gengi helstu hlutabréfavísitalna hækkaði við lokun hlutabréfamarkaða í Bandaríkjunum í dag. Fjármálaskýrendur höfðu gert ráð fyrir mikilli hækkun enda vaxtaákvörðunardagur vestanhafs á miðvikudag. Nokkurrar spennu gætir á meðal fjárfesta. Viðskipti erlent 29.10.2007 21:38
SPRON á uppleið en Icelandair niður Gengi hlutabréfa í SPRON hefur hækkað um 3,66 prósent frá upphafi viðskiptadagsins í Kauphöllinni í dag en þetta er annar dagurinn í röð sem markaðsvirði bankans hefur hækkað eftir mikla niðursveiflu frá fyrsta viðskiptadegi á þriðjudag. Á sama tíma hefur gengi Icelandair fallið um rúm átta prósent. Viðskipti innlent 29.10.2007 10:44
Háskólasjúkrahúsið komið í bakkgír Framkvæmdir við nýtt háskólasjúkrahús hefjast ekki 2009 eins og áætlað var. Þetta segir fyrrverandi formaður nefndar um byggingu Háskólasjúkrahúss og telur heilbrigðisráðherra hafa skipt í bakkgír í málinu. Innlent 28.10.2007 18:54
Vantar erlenda banka á Íslandi Einkavæðing bankanna hefur mistekist og skilað mun meiri vaxtamun hér en annar staðar í heiminum. Þetta segir Þorvaldur Gylfason, hagfræðiprófessor, og telur að tilkoma erlendra banka á Íslandi myndi laga stöðuna. Innlent 28.10.2007 18:47
Auglýst eftir lögbroti Karlmaður í atvinnuleit fer ekki leynt með ætlun sína að brjóta gegn skattalögum í blaðaauglýsingu í dag. Hann óskar eftir svartri vinnu. Innlent 28.10.2007 13:11
Bandaríkjadalur aldrei lægri gagnvart evru Bilið á milli bandaríkjadals og evru jókst í dag þegar dalur lækkaði í verði en gengismunur myntanna hefur aldrei verið meiri. Helsti orsakavaldurinn eru auknar væntingar að seðlabanki Bandaríkjanna lækki stýrivexti að loknum vaxtaákvörðunarfundi sínum í næstu viku. Viðskipti erlent 26.10.2007 12:54
Eimskip selur Air Atlanta Eimskip hefur samið um sölu á meirihluta hlutafjár í flugfélaginu Air Atlanta til Hannesar Hilmarssonar, forstjóra Air Atlanta og Geirs Vals Ágústssonar, fjármálastjóra félagsins. Kaupverð er ekki gefið upp en heildarhlutafé félagsins nemur 44 milljónum evra, jafnvirði 3,9 milljörðum króna. Samhliða þessu hefur Atlanta verið skipt upp í tvö félög, flugfélagið Air Atlanta og flugvélaeignarhaldsfélagið Northern Lights Leasing NLL sem hefur eignast flugflota Air Atlanta sem á 13 breiðþotur. Viðskipti innlent 26.10.2007 10:34
Gengi SPRON hækkar í fyrsta sinn Gengi hlutabréfa í færeyska olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum rauk upp um tæp þrettán prósent í Kauphöll Íslands í morgun og fór í hæstu hæðir, 1775 krónur á hlut. Gengi SPRON hækkaði á sama tíma í fyrsta sinn í dag, um heil eitt prósent en það stendur í 14,31 krónum á hlut. Viðskipti innlent 26.10.2007 10:28
Afkoma Microsoft yfir væntingum Bandaríski hugbúnaðarrisinn Microsoft tók inn 4,29 milljarða bandaríkjadala í hagnað, jafnvirði 261 milljarð íslenskra króna, á þriðja ársfjórðungi, sem er fyrsti rekstrarfjórðungur fyrirtækisins. Þetta er heilum 23 prósentum meira en á sama tíma í fyrra og skrifast á mikla sölu á Windows Vista, nýjasta stýrikerfi fyrirtækisins og tölvuleikinn Halo 3. Viðskipti erlent 26.10.2007 09:06
Afkoma Bakkavarar undir spám Hagnaður Bakkavarar nam 11,3 milljónum punda, jafnvirði 1,4 milljarða króna, samanborið við 15,2 milljónir punda á sama tíma í fyrra. Þetta er nokkru undir spám greiningardeilda viðskiptabankanna sem reiknaðist til að hagnaðurinn myndi nema á bilinu 12 til 14 milljónir punda. Viðskipti innlent 25.10.2007 16:12
Sala á nýjum fasteignum dregst saman í BNA Sala á nýjum fasteignum dróst saman um 23 prósent á milli ára í Bandaríkjunum í september, samkvæmt nýjum gögnum bandaríska viðskiptaráðuneytisins. Fjármálaskýrendur telja samdráttarskeið yfirvofandi vestanhafs bregðist seðlabanki Bandaríkjanna ekki við. Viðskipti erlent 25.10.2007 16:05
Gengi Hamiðjunnar á hraðri uppleið Gengi hlutabréfa í Hampiðjunni rauk upp um 8,33 prósent í þremur viðskiptum í Kauphöllinni í dag, sem er langt umfram önnur félög sem skráð eru á markað hér á landi. Þá hækkaði gengi bréfa í Existu sömuleiðis um tæp 2,5 prósent en félagið skilaði betri afkomu á þriðja ársfjóðurngi en greiningardeildir bankanna höfðu reiknað með. Viðskipti innlent 25.10.2007 15:46
Suu Kyi á fund herforingja Aung San Suu Kyi, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Búrma, fór í morgun til fundar við fulltrúa herforingjastjórnarinnar þar. Suu Kyi fór í fylgd fulltrúar stjórnarinnar frá heimili sínu þar sem hún hefur mátt dúsa í stofufangelsi um nokkurra ára skeið. Erlent 25.10.2007 13:05
Fyrsta farþegaflug ofurþotu Stærsta farþegaþota í heimi, Airbus A380, lenti í Sydney í Ástralíu í morgun eftir sögulegt flug frá Singapúr. Ekki mátti það seinna vera því framleiðslan hefur tafist um tvö ár og kostað marga starfsmenn Airbus vinnuna. Erlent 25.10.2007 12:59
Líkur á milli lækkun stýrivaxta í Bandaríkjunum Líkur hafa aukist til muna að bandaríski seðlabankinn lækki stýrivexti um allt að 50 punkta að loknum næsta vaxtaákvörðunarfundi bankans á miðvikudag í næstu viku. Breska blaðið Times segir slök uppgjör fjármálafyrirtækja vestanhafs og áframhaldandi samdráttur á fasteignamarkaði þar í landi vísbendingu um næstu ákvörðun bankans. Viðskipti erlent 25.10.2007 12:30