Fréttir
134 135 136 137 138 139 140 141 142 … 334 ›
Moody's staðfestir lánshæfismat Glitnis Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody's staðfesti í dag lánshæfismat Glitnis og segir horfur stöðugar. Viðskipti innlent 25.10.2007 10:31
Bréf í Straumi lækka í Kauphöllinni Gengi bréfa í Straumi hefur lækkað um 2,59 prósent eftir að viðskipti hófust í Kauphöll Íslands í morgun. Uppgjörið var nokkru undir væntingum enda dróst hagnaðurinn talsvert saman á milli ára. Viðskipti innlent 25.10.2007 10:29
Hagnaður Nintendo tvöfaldast Japanski leikjatölvurisinn Nintendo skilaði 132,4 milljörðum jena, jafnvirði 70,5 milljarða íslenskra króna, á öðrum og þriðja ársfjórðungi samanborið við 54,4 milljarða á sama tíma í fyrra. Þetta er rúmlega tvöfalt betri afkoma en í fyrra. Leikjavísir 25.10.2007 09:16
Lækkun á bandarískum markaði gekk til baka Gengi hlutabréfa í Bandaríkjunum tók dýfu skömmu eftir opnun markaða í dag í kjölfar þess að fjárfestingabankinn Merrill Lynch greindi frá slöku uppgjöri auk þess sem sala á fasteignum dróst saman um átta prósent á milli mánaða í september. Það jafnaði sig eftir því sem á leið daginn, mismikið þó. Viðskipti erlent 24.10.2007 21:10
Mikill samdráttur í fasteignasölu í BNA Sala á notuðu húsnæði dróst saman um átta prósenta á milli mánaða í Bandaríkjunum í september en samdráttur sem þessi hefur ekki sést vestanhafs í sextán ár. Þá er þetta nokkru meiri samdráttur en reiknað var með. Viðskipti erlent 24.10.2007 15:18
Merrill Lynch skilar fyrsta tapinu í sex ár Bandaríski fjárfestingabankinn Merrill Lynch skilaði 2,3 milljarða dala, tæplega 140 milljarða króna, tapi á þriðja ársfjórðungi. Tapið er að mestu tilkomið vegna tapaðra fasteignaútlána en bankinn varð vegna þessa að afskrifa 7,9 milljarða dala. Á sama tíma í fyrra hagnaðist bankinn um þrjá milljarða dala. Viðskipti erlent 24.10.2007 12:44
LÍ spáir hærri verðbólgu í nóvember Greiningardeild Landsbankans spáir því að vísitala neysluverð hækki töluvert, eða um 0,3 prósent á milli mánaða í nóvember. Gangi þetta eftir hækkar verðbólgan úr 4,5 prósent í október í 4,8 prósent í næsta mánuði. Viðskipti innlent 24.10.2007 12:14
Dapurt uppgjör hjá Stork Hollenska iðnsamstæðan Stork NV skilaði heldur dræmara uppgjöri en reiknað var með fyrir afkomuna á þriðja ársfjórðungi. Rekstrarhagnaður nam 20 milljónum evra, jafnvirði rúmra 1,7 milljarða króna, á fjórðungnum, sem er talsvert undir væntingum markaðsaðila sem höfðu reikna með tíu milljónum evrum meira. Viðskipti erlent 24.10.2007 12:00
Slæmur fjórðungur hjá BP Árið hefur ekki verið neitt sérstaklega gott fyrir breska olíurisann BP. Fyrrum forstjóri félagsins tók poka sinn í byrjun sumars og nú dróst hagnaður félagsins saman um 45 prósent á milli ára. Viðskipti erlent 24.10.2007 09:36
Harry Potter galdraði fram hagnað hjá Amazon.com Bandaríska netverslunin Amazon.com tók inn 80 milljónir bandaríkjadala, jafnvirði tæpra 4,9 milljarða íslenskra króna, í hagnað á þriðja ársafjórðungi sem er fjórfalt meira en á sama tíma í fyrra. Mestu munar um afar góða sölu á nýjustu og síðustu bókinni í flokknum um ævintýri galdrastráksins Harry Potter, sem rauk út eins og heitar lummur. Viðskipti erlent 24.10.2007 09:03
Afkoma Handelsbanken á pari við væntingar Sænski Handelsbanken hagnaðist um rúma 2,5 milljarða króna, jafnvirði 24 milljarða íslenskra króna, á þriðja ársfjórðungi. Þetta er sextán prósenta aukning frá sama tíma í fyrra og lítillega yfir væntingum markaðsaðila. Viðskipti erlent 23.10.2007 16:49
Olíuverð lækkar í verði Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði talsvert á fjármálamörkuðum í dag eftir að viðræður hófust á milli stjórnvalda í Tyrklandi og Kúrda í norðurhéruðum Írak. Þá spilar inní að gert er ráð fyrir að olíubirgðir hafi aukist á milli vikna í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 23.10.2007 16:20
Kristján hættur hjá FL Group Kristján Kristjánsson hefur látið af störfum sem forstöðumaður upplýsingasviðs FL Group. Starfsmönnum var tilkynnt um ákvörðunina í gær. Kristján, sem áður var í Kastljósi Sjónvarpsins, var ráðinn til starfa hjá félaginu í fyrrahaust og hefur því starfað hjá félaginu í rétt rúmt ár. Viðskipti innlent 23.10.2007 09:10
Hlutabréf hækka í Bandaríkjunum Gengi hlutabréfa hækkaði nokkuð á fjármálamörkuðum í Bandaríkjunum í dag eftir skell á föstudag. Fjárfestar biðu með eftirvæntingu eftir uppgjöri tæknifyrirtækja, ekki síst Apple, sem skilaði afar góðum afkomutölum. Viðskipti erlent 22.10.2007 21:14
Afkoma Apple langt umfram væntingar Bandaríski tölvu- og hugbúnaðarframleiðandinn Apple hagnaðist um 904 milljónir bandaríkjadala, jafnvirði 55,7 milljarða íslenskra króna, á þriðja fjórðungi, sem er fjórði fjórðungur félagsins, samanborið við 542 milljónir dala á sama tíma í fyrra. Þetta er 67 prósenta aukning á milli ára og langt umfram spár fjármálasérfræðinga. Viðskipti erlent 22.10.2007 21:01
Úrvalsvísitalan niður um tæp tvö prósent Íslensku fyrirtækin sem skráð eru í Kauphöllina fóru ekki varhluta af alþjóðlegu lækkanaferli á hlutabréfamörkuðum í dag. Gengi bréfa í FL Group féll um 4,36 prósent en gengi bréfa í Existu um 3,67 prósent. Gengi bréfa í einungis tveimur félögum hækkaði eftir daginn, í Flögu og Föroya banka. Viðskipti innlent 22.10.2007 15:39
Rauður dagur í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa hefur lækkað talsvert frá því viðskipti hófust í Kauphöll Íslands í dag en Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 2,99 prósent. Gengi bréfa í Exista lækkaði um sex prósent skömmu eftir að viðskipti hófust en næstmest í FL Group, sem fór niður um fimm prósent. Viðskipti innlent 22.10.2007 10:31
Lækkun á flestum hlutabréfamörkuðum Hlutabréfavísitölur hafa lækkað víða um heim í dag í kjölfar lækkunar á hlutabréfamarkaði í Bandaríkjunum á föstudag en fjárfestar óttast að óróleiki á fjármálamörkuðum geti dregið úr hagvexti. Gengi bandaríkjadals er sömuleiðis komið í lægstu lægðir gagnvart evru. Viðskipti erlent 22.10.2007 09:22
Pólverjar kjósa þing Pólverjar ganga að kjörborðinu í dag og kjósa sér þing - tveimur árum á undan áætlun. Skömmu fyrir hádegi höfðu um fimmtíu Pólverjar búsettir á Íslandi greitt atkvæði í Alþjóðahúsinu í Reykjavík. Erlent 21.10.2007 12:49
Óttast stjórnarskipti Ráðamenn í Washington fylgjast uggandi með pólsku þingkosningunum á morgun. Verði sitjandi stjórn felld gætu áætlanir um eldflaugavarnarkefi Bandaríkjamanna í Austur-Evrópu verið í uppnámi. Erlent 20.10.2007 17:30
Vonir um konunglegt brúðkaup í Svíþjóð Sænskir miðlar gera því skóna að Viktoría krónprinsessa Svía ætli að ganga í það heilaga með kærasta sínum, Daniel Westling, á næsta ári. Erlent 20.10.2007 12:25
Verðmat á AMR lækkar Bandarískur greinandi mælir með því í nýju verðmati á bandaríska flugrekstrarfélaginu AMR, móðurfélagi American Airlines, stærsta flugfélagi Bandaríkjanna, að fjárfestar bæti við eignasafn sitt í félaginu. Þetta er lækkun á verðmati félagsins en í fyrri spá var mælt með kaupum á bréfunum. Viðskipti innlent 20.10.2007 11:47
Verkfall stöðvar ekki ferð þeirra Breskir rúgbí áhugamenn láta verkfall starfsmanna almenningssamgöngufyrirtækja í Frakklandi ekki stöðva sig og flykkjast til Parísar. Þar keppa Englendingar til úrslita á heimsmeistaramótinu í rúgbí á morgun. Erlent 19.10.2007 19:22
Grunaður níðingur handtekinn Grunaður barnaníðingur sem eftirlýstur hefur verið um allan heim í þrjú ár var handtekinn í Taílandi í dag. Það var aðstoð almennings um allan heim sem réð því að hægt var að hafa hendur í hári hans. Erlent 19.10.2007 19:17
Aðeins Írar fá þjóðaratkvæðagreiðslu Aðeins Írar fá að greiða atkvæði um nýjan sáttmála Evrópusambandsins sem samþykktur var í nótt og kemur í stað umdeildrar stjórnarskrár. Ekki þarf að bera hann undir þjóðaratkvæði í öðrum ríkjum. Erlent 19.10.2007 19:12
Föðurmorðingjar aftur á ferð Benazir Bhúttó, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans, segir forna fjendur fjölskyldu sinnar hafa reynt að ráða sig af dögum í gærkvöldi. Minnst 130 manns týndu lífi í tveimur sprengingum nærri bílalest Bhúttó í Karachi. Erlent 19.10.2007 19:05
Askar Capital byggir borgarhluta á Indlandi Askar Capital ætlar að taka þátt í uppbyggingarverkefnum á Indlandi í samstarfi við Nikhil Ghandi, einn þekktasta athafnamann Indverja. Tryggvi Þór Herbergsson, forstjóri Askar, segir bankann hafa fjárfest í fyrstu eigninni en í kjölfarið muni rísa nýr borgarhluti sem skipulagður er og hannað frá grunni með tileyrandi afþreyingu og öryggisgæslu. Viðskipti innlent 19.10.2007 15:40
Exista: Gæti náð um 10 prósentum í Storebrand Exista, sem nú ræður yfir 8,5 prósentum hlutabréfa í norska tryggingfélaginu Storebrand, hefur ákveðið að greiða atkvæði með hlutafjáraukningu og forkaupsréttarútboði í tryggingafélaginu til fjármögnunar á kaupum á SPP, líftryggingafélagi sænska bankans Handelsbanken. Hluthafafundur verður í Storebrand 24. október næstkomandi. Viðskipti innlent 19.10.2007 14:44
Stjórnarformaður Northern Rock hættur Matt Ridley, stjórnarformaður breska fjármála- og fasteignalánafyrirtækisins Northern Rock hefur látið af störfum. Hann sagði upp í síðasta mánuði en var beðinn um að sitja þar til hann hefði farið fyrir fjárlaganefnd breska þingsins, sem fjallað hefur um fall fyrirtækisins. Þegar hefur verið ráðið í stöðu Ridleys. Viðskipti erlent 19.10.2007 14:27
Verkfall heldur áfram í París Búist er við miklum töfum á lestarsamgöngum í Frakklandi í dag vegna verkfalls starfsmanna almenningssamgöngufyrirtækja sem hófst í gær. Upphaflega var um um sólahringsverkfall að ræða um allt land. Verkalýðsfélög í París hafa hins vegar ákveðið að framlengja það. Erlent 19.10.2007 12:41