Landsréttarmálið
Tveir íhuga stöðuna en einn ákveðið að stefna
Ástráður Haraldsson telur að dómsmálaráðherra hafi meðal annars brotið gegn reglum stjórnsýsluréttarins og jafnréttislögum við skipan dómara við Landsrétt.
Segir ráðherra hafa svindlað á kerfinu og ætlar í mál
Ástráður Haraldsson hæstaréttarlögmaður var metinn einn af fimmtán hæfustu umsækjendunum um dómarastöðu í Landsrétti en var færður af listanum af dómsmálaráðherra. Hann segir reglur hafa verið brotnar og ætlar í mál við ráðherra.
Úr fallsæti hjá hæfnisnefnd í dómarasæti hjá ráðherra
Breyting Sigríðar Á. Andersen dómsmálaráðherra á tillögum hæfnisnefndar um skipan dómara í Landsrétt er umdeild en flaug í gegnum Alþingi mínútu fyrir þinglok.
Tíðrætt um traust Alþingis
Ríkisstjórnarflokkarnir höfðu betur gegn minnihlutanum þegar kosið var um tillögu dómsmálaráðherra um fimmtán dómara við Landsrétt. Alþingismönnum var heitt í hamsi í umræðum um málið.
Hæstaréttarlögmaður spyr hvort vinatengsl hafi ráðið för við skipan dómaranna
"Breyting ráðherra á niðurstöðu dómnefndar er því öðrum þræði á skjön við eigin rökstuðning. Það leiðir hugann að því að önnur og ef til vill ólögmæt sjónarmið hafi ráðið mati ráðherra á hæfi umsækjenda,“ segir í bréfi Jóns Höskuldssonar héraðsdómara til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Framsóknarþingmenn sátu hjá við skipan dómara í Landsrétti
Hart var tekist á um skipan fimmtán dómara við nýtt millidómstig, Landsrétt, á Alþingi í dag. Stjórnarandstaðan telur að dómsmálaráðherra hafi ekki staðið rétt að tillögu um hverjir skuli skipa dóminn og ekki fært nægjanleg rök samkvæmt lögum fyrir ákvörðun sinni.
Alþingi samþykkti dómaratillögu Sigríðar
Tillaga dómsmálaráðherra um skipun fimmtán dómara við Landsrétt var samþykkt á Alþingi nú rétt í þessu.
„Þetta á að rannsaka“
"Þetta er allt saman mjög ófaglegt ferli og þetta á að rannsaka og þetta verður rannsakað,“ sagði Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata.
Bein útsending: Tekist á um tillögur um skipun dómara við Landsrétt
Alþingi kemur saman klukkan 11 í dag til þess að ræða tillögur Sigríðar Á. Andersen dómsmálaráðherra um skipan dómara við Landsrétt.
Einn hinna sniðgengnu íhugar málsókn
Einn þeirra sem dómsmálaráðherra lagði ekki til að yrðu skipaðir Landsréttardómarar, þvert á mat hæfnisnefndar, íhugar málsókn. Minnihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar er ósáttur við afgreiðslu tillögunnar úr nefndinni.
Leki úr nefndinni sagður óheppilegur fyrir Alþingi
Ganga þarf úr skugga um að það hafi ekki verið nefndarmenn í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd sem létu fjölmiðlum í té upplýsingar um mat á hæfni umsækjenda um dómarastarf í Landsrétti.
Meirihlutinn styður tillögu dómsmálaráðherra um skipan dómara við Landsrétt
Tillaga Sigríðar Á. Andersen, dómsmálaráðherra, um skipan dómara við Landsrétt var afgreidd í ágreiningi úr stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd nú á sjöunda tímanum.
Svekktir með Sigríði og segja tillöguna minnka traust á nýjum dómstól
Stjórn Lögmannafélagsins segir það vonbrigði að Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra, sem var starfandi lögmaður, geri jafn lítið úr lögmannsreynslu samanborið við reynslu af dómsstörfum og raun beri vitni.
Ætlar að leggja fram vantraust á Sigríði fáist ekki fullnægjandi rökstuðningur
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, segist ætla að leggja fram vantraust á Sigríði Á. Andersen dómsmálaráðherra áður en þing klárast fáist ekki fullnægjandi rökstuðningur og álit sérfræðinga um skipan 15 dómara við Landsrétt.
Umfjöllun um skipan dómara framhaldið í dag
Fundi nefndarinnar lauk á tíunda tímanum í gærkvöld og hófst að nýju klukkan tíu í morgun.
Davíð Þór, Sigurður Tómas og Ragnheiður hæfust að mati nefndarinnar
Þau Davíð Þór Björgvinsson, Sigurður Tómasson og Ragnheiður Harðardóttir voru metin hæfust í embætti dómara við Landsrétt af sérstakri hæfnisnefnd.
Engin niðurstaða varðandi skipan dómara við Landsrétt
Fundi stjórnskipunar-og eftirlitsnefndar Alþingis þar sem fjallað var um skipan dómara við Landsrétt lauk á tíunda tímanum í kvöld án niðurstöðu.
Vill fresta skipan dómara við Landsrétt
Stjórnskipunar-og eftirlitsnefnd mun funda fram á kvöld.
Hafnar ásökunum um ólögmætar embættisfærslur
Sigríður Á. Andersen hafnar því að hún leiti heimilda Alþingis til að framkvæmda ólögmæta embættisfærslu vegna skipana við Landsrétt.
Funda áfram með ráðherra eftir hádegi
Svarar spurningum stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um skipan dómara við Landsrétt.
Sakar ráðherra um tilraun til ólögmætrar embættisfærslu í opnu bréfi til forseta Alþingis
Ástráður Haraldsson, hæstaréttarlögmaður og einn þeirra fimmtán umsækjenda sem hæfnisnefnd mat hæfasta til að taka sæti dómara við Landsrétt, segir Sigríði Á. Andersen, dómsmálaráðherra, gera tilraun til að afla sér heimildar Alþingis fyrir ólögmætri embættisfærslu með tillögu um skipan dómara við Landsrétt.
Ráðherra sniðgekk fjórar tillögur hæfnisnefndar við skipan dómara
Arnfríður Einarsdóttir, héraðsdómari og eiginkona Brynjars Níelssonar, var ekki metin á meðal fimmtán hæfustu. Sigríður Á. Andersen skipaði hana þó dómara.
Metin hæfust til að verða dómarar við Landsrétt
Listi yfir þá 15 einstaklinga sem hæfnisnefnd telur hæfasta til að gegna embætti dómara við Landsrétt hefur verið sendur umsækjendum.
37 sóttu um stöðu Landsréttardómara
15 embætti dómara verða við Landsrétt sem mun taka til starfa 1. janúar 2018.
Kyn ekki haft til hliðsjónar við skipan dómara
Dómsmálaráðherra segir skipta öllu máli að hæfir einstaklingar ráðist til dómarastarfa á öllum dómstigum.