„Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Búast má við kröftugum lokaspretti í umræðu um þingsályktunartillögu varðandi þjóðaratkvæðagreiðslu á Alþingi en umræðan þarf að klárast í dag ef fyrirhuguð dagsetning á að halda. Þingkona Sjálfstæðisflokksins talar fyrir tveimur breytingartillögum og segir orðræðu utanríkisráðherra henni ekki til sóma. Innlent 27.5.2026 12:17
Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Umræðum um þingsályktunartillöguna um þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst verður fram haldið á þingfundi í dag klukkan þrjú. Stjórnarandstaða leggur til að atkvæðagreiðslunni verði seinkað og að gerðar verði frekari breytingar á spurningunni. Innlent 27.5.2026 08:02
Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sakar einstaklinga og hópa innanlands sem utan um „hræðsluáróður“ í tengslum við boðaða þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Innlent 27.5.2026 06:43
Aðildarviðræður gætu kostað tæpa tvo milljarða Utanríkisráðuneytið telur að áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið myndu kosta tæpa 1,9 milljarða króna og taka um tvö ár. Verði viðræðurnar samþykktar í fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu myndu eiginlegar viðræður hefjast fyrir lok árs. Innlent 19. maí 2026 18:34
Segja Breta myndu þurfa að uppfylla sömu kröfur og önnur umsóknarríki Sérfræðingar segja Evrópusambandið myndu taka Bretum með opnum örmum ef þeir vildu ganga aftur í sambandið en að þeir myndu hins vegar ekki fá jafn hagfelldan samning og þeir hefðu verið á. Tími sérstakra undanþága til handa Bretum væri liðinn. Erlent 19. maí 2026 10:08
Ísland og aðildarviðræður við ESB: samningsmarkmið og hagsmunir Gengi ESB að kröfum um forræði og yfirráð Íslands yfir auðlindum snerist málið ekki lengur um af hverju Ísland ætti ekki erindi í ESB nema að uppfylltum skilyrðum. Þess í stað kæmi að þeirri grundvallarspurningu af hverju Ísland ætti erindi í ESB; hvaða íslenskir hagsmunir kalli á aðild. Ein leið til að átta sig á því er að skoða af hverju fyrri umsóknarríki um aðild sóttust eftir að komast í ESB. Umræðan 18. maí 2026 13:41
Breyttu spurningunni í þjóðaratkvæðagreiðslunni Utanríkismálanefnd Alþingis afgreiddi þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðilda að Evrópusambandinu úr nefnd í morgun. Orðalagi spurningarinnar hefur verið breytt og svarmöguleikar verða einfaldlega já og nei. Minnihluti nefndarinnar bókaði mótmæli. Innlent 18. maí 2026 11:15
Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Nokkrir ráðherrar úr ríkisstjórninni komu saman á fund í dag, sunnudag, til þess að samþykkja afléttingu á trúnaði yfir gögnum sem utanríkismálanefnd hafði óskað eftir í tengslum við aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið á árunum 2009 til 2013. Innlent 17. maí 2026 18:58
Niðurstaðan merki ekki endalok Pírata Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns, formaður Pírata, segir slæmt gengi flokksins í Reykjavík ekki þýða endalok hans. Flokkurinn missti báða fulltrúa sína. Innlent 17. maí 2026 16:32
Streeting vill formannsstólinn og aftur inn í Evrópusambandið Wes Streeting, fráfarandi heilbrigðisráðherra Bretlands, segist munu sækjast eftir því að verða næsti formaður Verkamannaflokksins ef til formannskjörs kemur. Hann vill að Bretar gangi aftur í Evrópusabandið. Erlent 17. maí 2026 07:53
Flugvöllur er ekki bara upp á punt Innviðaráðherra hyggst láta greina hvort gullhúðun Evróputilskipana hafi átt sér stað þegar íslenskum flugvöllum var gert að fá bæði starfsleyfi og rekstrarleyfi. Heilbrigðisnefnd Reykjavíkur er sökuð um að fara langt út fyrir valdheimildir sínar með því að reyna að þrengja að Reykjavíkurflugvelli. Innlent 14. maí 2026 08:48
Bíður þetta böl lands og þjóðar? Síðastliðinn laugardag stukku sex breskir fallhlífahermenn úr flugvél yfir Suður-Atlantshafinu. Gjörgæsluhjúkrunarfræðingur var bundinn við einn þeirra, svæfingarlæknir við annan. Lífið 14. maí 2026 07:01
Gullhúðun að flugvellir þurfi starfsleyfi heilbrigðiseftirlits Karl Alvarsson, formaður fagráðs um flugmál og fyrrverandi yfirlögfræðingur Isavia, segir séríslenska gullhúðun Evróputilskipana hafa átt sér stað þegar flugvöllum á Íslandi var gert að fá starfsleyfi frá heilbrigðiseftirlitum, - slíkt gildi um enga aðra evrópska flugvelli. Þá segir hann Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fara langt út fyrir sínar valdheimildir með því að reyna að þrengja að starfsemi Reykjavíkurflugvallar. Innlent 12. maí 2026 12:32
Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Haraldur Ólafsson, formaður Heimssýnar, gefur í skyn að til ofbeldis geti komið ef Ísland gengur í Evrópusambandið í viðtali við enskumælandi fjölmiðil. Hann segir stuðningsmenn aðildar „hata lýðræðið eins og pestina“. Innlent 8. maí 2026 14:06
Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur gefið Evrópusambandinu frest til 4. júlí næstkomandi til að klára afgreiðslu tollasamkomulags ríkjanna. Hótar hann að hækka tolla verulega ef það næst ekki. Erlent 8. maí 2026 07:36
Tapaði ellefu milljónum David Attenborough verður hundrað ára á morgun. Attenborough er dáður um heim allan fyrir náttúrulífsþætti sína. Minnstu munaði hins vegar að veröldin yrði af hæfileikum hans. Lífið 7. maí 2026 07:00
„Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir ríkisstjórnina komna aftur á „Icesave-tíma“ með boði um að skoða gögn tengd áframhaldandi viðræðum við ESB í leyniherbergi. Innlent 6. maí 2026 20:02
Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar leggur til breytingar á tillögu utanríkisráðherra að spurningu í þjóðaratkvæðagreiðslunni um aðildarviðræður við Evrópusambandið og að svarmöguleikarnir verði einfalt „Já“ eða „Nei“. Innlent 6. maí 2026 08:47
Yfirstjórn fiskveiða færi til ESB Ísland nýtur aðgangs að innri markaði Evrópu í gegnum EES samninginn án þess að sameiginlega fiskveiðistefnan taki gildi hér á landi. Ágreiningurinn snýst ekki um samstarf við Evrópuríkin heldur um hvar endanlegt ákvörðunarvald yfir íslenskum sjávarauðlindum eigi að liggja. Umræðan 6. maí 2026 08:20
Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Landskjörstjórn telur tvær nýjar tillögur að spurningu sem lögð verði undir landsmenn í þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst. Tillögurnar frá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis eru taldar samræmast meginsjóðanarmiðum um að spurningin eigi að vera skýr, skiljanleg og hlutlaus. Innlent 4. maí 2026 17:51
Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Donald Trump forseti Bandaríkjanna tilkynnti í gær að hann ætlaði að hækka tolla á evrópska bíla í 25 prósent. Hann sakaði á sama tíma Evrópusambandið um að standa ekki við viðskiptasamninga sína við Bandaríkin en útskýrði það þó ekki nánar. Viðskipti erlent 2. maí 2026 08:23
Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur komist að þeirri niðurstöðu að Meta, eigandi Facebook og Instagram, hafi brotið gegn lögum ESB um stafræna þjónustu [e. Digital Services Act, DSA] með því að tryggja ekki betur að börn undir þrettán ára aldri noti ekki Facebook og Instagram. Viðskipti erlent 29. apríl 2026 10:47
Má búast við „gífurlegri“ eftirspurn erlendra aðila að komast í kvóta hér á landi Eftirspurn meðal erlendra félaga í að komast yfir aflaheimildir sjávarútvegsfyrirtækja verður „gífurleg“ ef Ísland gengur í Evrópusambandið, að mati sérfræðinga Arctica Finance, en þar er mikill meðbyr í átt að frekari samþjöppun í greininni. Hlutabréfaverð sjávarútvegsfélaga í Kauphöllinni rauk upp eftir greiningu verðbréfafyrirtækisins en þar var bent á að fjárhagslegt virði kvóta þeirra ætti sennilega eftir að „aukast verulega“ við inngöngu í ESB. Innherji 28. apríl 2026 17:33
Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Rúmum áratug eftir að aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið fjöruðu út er enn deilt um hvort þeim hafi formlega verið slitið eða ekki. Þrætan snýst um hvort bréf sem þáverandi forsætisráðherra og núverandi stjórnarandstöðuleiðtogi sendi hafi verið nóg til að slíta viðræðunum. Innlent 28. apríl 2026 07:31