Þróunarsamvinna
20 21 22 23 24 25 26 27 28 … 34 ›
Klósett er munaður þeirra efnameiri í heiminum Hreint neysluvatn, viðunandi salernisaðstaða og hreinlæti eru samofnir þættir í verkefnum sem unnin eru fyrir ísenskt þróunarfé í samstarfslöndum Íslendinga, Malaví og Úganda. Í Mósambík hafa Íslendingar verið í samstarfi við UNICEF um stórt verkefni á þessu sviði. Kynningar 19.11.2019 12:35
Afmæli Barnasáttmálans: Miklar framfarir en nýjar ógnir Enn er þörf á brýnum umbótum í þágu fátæskustu barna þrátt fyrir sögulegar framfarir undanfarinna áratuga. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) sem kom út í dag í tilefni af þrjátíu ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Kynningar 18.11.2019 15:58
Alþjóðlegur jafnlaunadagur að frumkvæði Íslands Ályktun um alþjóðlegan jafnlaunadag, sem Ísland var í forystu fyrir, var á föstudag samþykkt einróma í mannréttindanefnd allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í New York. Kynningar 18.11.2019 08:56
Fulltrúar IFAD kynntu sér fjölbreytileika bláa hagkerfisins á Íslandi Fulltrúar Alþjóðasjóðs um þróun landbúnaðar (IFAD) hafa verið hér á landi síðustu daga, ásamt fulltrúum nokkurra strandríkja til að kynna sér bláa hagkerfið, rannsóknastarf, þróun og tækni sem tengjast endurnýjanlegum auðlindum hafsins. Kynningar 15.11.2019 08:58
Ísland ítrekar skuldbindingar á sviði kyn- og frjósemisheilbrigðismála Fulltrúar Íslands áréttuðu áform ríkisstjórnarinnar um auknar aðgerðir á sviði kyn- og frjósemisheilbrigðis á alþjóðaráðstefnu um mannfjölda og þróun í Naíróbí í Kenya. Á fundum þeirra samhliða ráðstefnunni voru jafnréttis- og heilbrigðismál í brennidepli. Kynningar 14.11.2019 15:55
Yfirvofandi vatnsskortur í norðaustur Sýrlandi Óvirk vatnsdælustöð fyrir 400 þúsund íbúa í Sýrlandi veldur Alþjóðaráði Rauða krossins (ICRC) þungum áhyggjum. Í byrjun nóvember dreifði Rauði krossinn samtals 460 þúsund lítrum af drykkjarvatni. Rauði krossinn á Íslandi hefur stutt við aðgerðir Alþjóðaráðs Rauða krossins og sýrlenska Rauða hálfmánans í Sýrlandi með stuðningi Mannvina Rauða krossins og utanríkisráðuneytisins. Kynningar 14.11.2019 11:03
Verkefnið leiddi til augljósra framfara á sviði jarðhitaþróunar Óháð úttekt hefur verið gerð á svæðaverkefni sem Ísland leiddi í jarðhitamálum í Austur-Afríku. Verkefnið er sagt hafa fallið vel að þörfum þeirra landa sem fengu aðstoð, það hafi verið í takt við stefnu Íslands og áherslur í þróunarsamvinnu og hafi fallið að forgangsröðun Norræna Þróunarsjóðsins (NDF) í loftslagsmálum. Kynningar 13.11.2019 14:25
Ríkisstjórnin samþykkir að taka á móti 85 flóttamönnum Tekið verðu á móti 85 einstaklingum í samstarfi við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR). Um er að ræða fjölmennustu móttöku flóttafólks frá því að íslensk stjórnvöld hófu að taka á móti flóttafólki í samstarfi við UNHCR. Kynningar 12.11.2019 15:43
Norrænar þjóðir vilja styðja uppbyggingu endurnýjanlegrar orku í Eþíópíu Nýting norrænna lausna á sviði endurnýjanlegrar orku í þágu íbúa Eþíópíu var umræðuefni nýafstaðinnar ráðstefnu í Addis Ababa þar sem Unnur Orradóttir Ramette sendiherra Íslands í Kampala flutti opnunarræðuna. Kynningar 12.11.2019 10:53
Sendifulltrúi Rauða krossins til starfa á Bahamas í kjölfar fellibylsins Dorian Ívar Schram hélt í gær til hjálparstarfa sem sendifulltrúi á Bahamas í kjölfar fellibylsins Dorian sem gekk fyrir eyjarnar í byrjun september og olli gríðarlegri eyðileggingu. Kynningar 11.11.2019 15:03
Íslendingar veita sérfræðiþekkingu í þangræktun á Filippseyjum Matís tók fyrir hönd utanríkisráðuneytisins þátt í verkefni fyrir skömmu á Filippseyjum sem er hluti af samstarfsverkefni ráðuneytisins og Alþjóðabankans um að veita aðgang að sérfræðiþekkingu Íslendinga, meðal annars um uppbyggingu á eldi í sjó, með sérstaka áherslu á ræktun á þangi. Kynningar 11.11.2019 13:25
Móttaka fyrir flóttamenn í Mosfellsbæ Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, var í gær viðstaddur formlega móttöku flóttafólks frá Kenía í Mosfellsbæ. Fólkið er hluti af 25 manna hópi sem kom til landsins 12. september síðastliðinn. Kynningar 7.11.2019 09:54
Íslandi gert hátt undir höfði í nýrri HeForShe skýrslu Íslandi er gert hátt undir höfði í nýrri ársskýrslu HeForShe hreyfingar UN Women. Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands er meðal tíu þjóðarleiðtoga sem eru sérstakir forsvarsmenn HeForShe. Í skýrslunni segir Guðni að kynjajafnrétti sé ekki aðeins grundvallar mannréttindi heldur undirstaða þess að byggja upp betra samfélag. Kynningar 6.11.2019 11:22
Blásið til herferðar gegn örplasti í snyrtivörum Hvað er í baðherberginu hjá þér? spyr Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna og hvetur fólk til að skoða snyrtivörur á baðherbergjum. Markmiðið er að auka vitund almennings um þann skaða sem örplast í þeim vörum getur valdið. Kynningar 5.11.2019 14:18
Yfir tíu milljónir söfnuðust í landssöfnun UN Women Rúmlega tólf milljónir barnungra stúlkna eru þvingaðar í hjónaband á hverju ári, sem þýðir að 23 barnugnar stúlkur eru þvingaðar í hjónabnd á hverri mínútu. Landssöfnun UN Women á Íslandi í beinni útsendingu á RÚV, skilaði yfir tíu milljónum króna og 1330 einstaklingar gerðust "Ljósberar“ UN Women. Kynningar 4.11.2019 11:05
Ísland skipar ungmennafulltrúa hjá Sameinuðu þjóðunum á sviði loftslagsmála Íslenskur ungmennafulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum á sviði loftslagsmála verður valinn í næstu viku. Þetta er í fyrsta sinn sem Ísland skipar ungmennafulltrúa í málaflokknum en hann verður skipaður í eitt ár og kemur til með að taka þátt í loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í desember í umboði íslenskra ungmenna. Kynningar 1.11.2019 15:25
Hungur blasir við 45 milljónum íbúa í sunnanverðri Afríku Horfur eru á alvarlegum matarskorti meðal íbúa í sunnanverðri Afríku á næstu sex mánuðum. Að mati þriggja stofnana Sameinuðu þjóðanna er óttast að allt að 45 milljónir íbúa í þessum heimshluta hafi lítið til hnífs og skeiðar á næstu mánuðum, fleiri en nokkru sinni fyrr. Kynningar 1.11.2019 12:12
Við megum aldrei hætta að hlusta, segir UNICEF Fjölmargir Íslendingar hafa fengið inn um bréfalúguna, eða fundið á fjölförnum stöðum, dularfullt umslag með áskoruninni um að hringja í símanúmerið 562-6262. Uppátækið er liður í því að Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) á Íslandi hefur blásið nýju lífi í neyðarsöfnun sína fyrir börn í Sýrlandi. Kynningar 31.10.2019 11:08
Nýir samningar um betri lífsgæði í hverri viku Ríkisstjórn Bangladess skrifaði í morgun undir 1,3 milljarða króna samning við Alþjóðabankann um fjármögnun á nýrri vatnsveitu fyrir þrjátíu sveitarfélög í landinu sem kemur til með að bæta lífsgæði 600 þúsund íbúa. Kynningar 30.10.2019 14:56
UNICEF setur upp barnvæn svæði í flóttamannabúðum Sjö þúsund sýrlenskir flóttamenn, helmingurinn börn, hafa flúið átökin í landinu og haldið yfir í suðurhluta Íraks. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF). hefur sett upp barnvæn svæði í flóttamannabúðum og tímabundin kennslusvæði svo börn geti haldið áfram að nýta rétt sinn til menntunar. Kynningar 29.10.2019 14:14
Stúlka ekki brúður – landssöfnun UN Women á föstudagskvöld Yfir tólf milljónir barnungra stúlkna eru þvingaðar í hjónaband ár hvert. Það þýðir að 23 barnungar stúlkur eru þvingaðar í hjónaband á hverri mínútu. Þessi útbreidda birtingarmynd kynbundins ofbeldis, þvinguð barnahjónabönd, verður í brennidepli á föstudaginn kemur, 1. nóvember, þegar landsnefnd UN Women á Íslandi efnir til landssöfnunar í beinni útsendingu á RÚV. Kynningar 28.10.2019 14:07
Íslensk stuðningur bætir lífsgæði í útgerðarbænum Tombo Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra vígði á dögunum nýtt reykofnaskýli í fiskimannabænum Tombo í Síerra Leóne sem er hluti af samstarfsverkefni Íslands með þarlendum stjórnvöldum. Ráðherra fór einnig í vettvangsskoðun og kynnti sér metnaðarfullt samstarfsverkefni með UNICEF í vatns-, salernis- og hreinlætismálum. Kynningar 25.10.2019 10:35
Utanríkisráðherra beiti sér í baráttunni um að stöðva stríð gegn börnum Fulltrúar Barnaheilla – Save the Children – afhentu Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra áskorun í gær um að stöðva stríð gegn börnum. Kynningar 24.10.2019 16:54
Uppbygging neyðarvarna á áhættusvæðum í Malaví Flóð, þurrkar og fellibyljir hafa kostað ófá mannslíf og mikið tjón í Malaví undanfarin ár. Einn helsti áhersluþáttur samstarfs Rauða kross félaganna á Íslandi og í Malaví um þessar mundir er uppbygging sterkra neyðarvarna á helstu áhættusvæðum. Kynningar 23.10.2019 12:14
Áhersla lögð á atvinnusköpun í lágtekjuríkjum og aðkomu einkageirans Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra sótti um nýliðna helgi ársfundi Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Washington DC. Heimsmarkmiðin 22.10.2019 10:30
Ísland styður baráttuna gegn fæðingarfistli Örkuml og útskúfun er oft örlög kvenna í fátækum ríkjum, sem fá fæðingarfistil. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hlustaði á dögunum á reynslusögur nokkurra kvenna í Síerra Leóne, en Íslendingar styðja verkefni á vegum Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) í landinu þar sem boðið er upp á meðferð gegn fistli. Kynningar 17.10.2019 15:28
Neyðarsöfnun fyrir Sýrland hafin af hálfu Rauða krossins á Íslandi Talið er að 11,7 milljónir manna þurfi á mannúðaraðstoð að halda í Sýrlandi vegna harðnandi átaka. Rauði krossinn hefur hafið neyðarsöfnun. Almennir borgara líða mest fyrir átökin, helmingur íbúa hefur yfirgefið heimili sín og ýmist flúið innan Sýrlands eða til annarra landa í leit að öryggi. Kynningar 17.10.2019 10:07
UNICEF: Vannæring og ofnæring draga úr þroska barna Þriðjungur barna í heiminum yngri en fimm ára – alls um 200 milljónir barna – eru ýmist vannærð eða ofnærð en hvoru tveggja dregur úr möguleikum þeirra til að ná fullum þroska, segir í árlegri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) um stöðu barna. Kynningar 16.10.2019 14:20
Íslendingar styrkja verkefni í Síerra Leóne til að tryggja skólagöngu stúlkna Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra tilkynnti í vinnuheimsókn til Síerra Leóne á dögunum um tæplega 20 milljóna króna framlag Íslendinga til verkefnis á vegum Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF. Kynningar 15.10.2019 16:14
Aldarafmæli Barnaheilla – Save the Children – helgað börnum á átakasvæðum Alþjóðasamtökin Barnaheill – Save the Children – eru 100 ára á þessu ári. Í tilefni af afmælinu blása samtökin til alþjóðlegs átaks undir yfirskriftinni "Stöðvum stríð gegn börnum“ en rúmlega 420 milljónir barna búa við stríðsástand, eða fimmta hvert barn í heiminum. Kynningar 15.10.2019 09:50