Noregur
44 45 46 47 48 49 … 49 ›
Viðbragðskerfi norsku lögreglunnar endurskoðað Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, tilkynnti í dag að viðbragðskerfi norsku lögreglunnar verði endurskoðað. Lögreglan hefur verið gagnrýnd fyrir að handtaka árásarmanninn Breivik klukkutíma eftir að henni barst tilkynning um árásina. Boðað var til samverustundar í norræna húsinu til að minnast þeirra sem létust í voðaverkunum í síðustu viku. Erlent 27.7.2011 18:42
Pólverji ákærður fyrir að selja Breivik hættuleg efni Pólskur maður hefur verið ákærður í heimalandi sínu fyrir að selja fjöldamorðingjanum Anders Behring Breivik efni í sprengju. Norska Dagbladet segir að hann sé ákærður fyrir brot gegn almannaheil. Erlent 27.7.2011 13:29
Múslima grunaði múslima Múslimar eru margir slegnir yfir því að það fyrsta sem þeim datt í hug þegar þeir fréttu af morðárásunum í Noregi var að þar væru múslimar að verki. Múslimarnir voru ekki einir um það því fréttir hafa borist af því að áður en lá fyrir að árásarmaðurinn væri ljóshærður Norðmaður urðu múslimar fyrir aðkasti á götum úti í Noregi. Erlent 27.7.2011 12:27
Viðbrögð Norðmanna vekja aðdáun Óteljandi fjölmiðlar hafa vitnað í orð Hákonar krónprins sem sagði: "Við höfum kosið að mæta illmensku með kærleika. Við höfum kosið að mæta hatri með samstöðu . Við höfum kosið að sýna fyrir hvað við stöndum". Stjórnmálamenn hafa sömuleiðis lagt megináherslu á að þessi atburður muni í engu hafa áhrif á þau gildi sem Norðmenn hafa mest í heiðri. Erlent 27.7.2011 11:18
Breivik óttast kvenfrelsi Sjónvarpsþættirnir Sex and the City og áhrif þeirra á vestrænt samfélag eru norska fjöldamorðingjanum Anders Behring Breivik afar hugleikin, ef marka má stefnuyfirlýsinguna hans svokölluðu Erlent 27.7.2011 10:43
Hættuástandi aflýst í Osló, lestarferðir að hefjast Hættuástandi hefur verið aflýst við aðaljárnbrautastöðina í Osló og reiknað er með að lestarkerfi borgarinnar komist í eðlilegt horf á næsta hálftímanum eða svo. Erlent 27.7.2011 08:23
Breivik undirbjó aðra hryðjuverkaárás Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik hafði skipulagt aðra hryðjuverkaárás og ætlaði sér að framkvæma hana ef hann slyppi úr fangelsi eftir árásina á Útey og sprenginguna í miðborg Óslóar sem kostaði a.m.k. 76 lífið. Erlent 27.7.2011 07:22
Lestakerfi Osló stöðvað, sprengjusveit á staðnum Búið er að stöðva alla umferð um stóran hluta af lestakerfi Oslóar og flytja farþega úr lestunum á brott. Búið er að rýma aðaljárnbrautarstöðina. Einnig er búið að flytja fólk úr nærliggjandi húsum. Erlent 27.7.2011 07:19
Var tvisvar næstum flúinn Með stefnuyfirlýsingu sinni birti Anders Behring Breivik dagbók um athæfi sitt vikurnar fyrir hryðjuverkin. Þar lýsir Breivik vinnu sinni og frístundum meðan á smíði sprengjunnar stóð. Erlent 26.7.2011 21:56
Aðgerðasinnar ólíkir Breivik Sören Pind, ráðherra innflytjendamála í Danmörku, baðst í gær afsökunar á ummælum sem hann lét falla á Facebook-síðu sinni. Þar sagði hann öfgahyggju vera að aukast og nefndi hópa danskra aðgerðasinna í sömu andrá og fjöldamorð Anders Behring Breivik í Noregi, sem hann sagði "djöfullegustu ásjónu“ öfgahyggjunnar. Erlent 26.7.2011 21:56
Sprengingar á búgarði Breiviks Norska lögreglan framkallaði í kvöld sprengingu á búgarði Anders Behring Breivik eftir að sprengiefni fundust á staðnum sem óæskilegt þótti að setja í geymslu. Erlent 26.7.2011 21:09
Heppinn að vera á klósettinu þegar skothríðin hófst Ungur norskur maður sem var staddur í Útey síðastliðinn föstudag segir það hafa bjargað lífi sínu að hafa verið staddur á salerninu þegar skotárásin hófst. Hann náði að flýja inn á annað salerni og sat þar af sér árásina í 90 mínútur ásamt tveimur öðrum. Erlent 26.7.2011 18:47
Lögmaður Breivik segir hann geðveikan Anders Behring Breivik er ánægður með afleiðingar hermdarverkanna sem hann framdi á föstudag, þó hann hafi ekki búist við að geta gengið jafnlangt og raun bar vitni. Lögfræðingur hans veitti hrollvekjandi innsýn í hugarheim hans í dag. Erlent 26.7.2011 18:32
Þrettán bera sama nafn og slátrarinn í Útey Þrettán norskir karlmenn bera svipað nafn og Anders Behring Breivik, sem hefur játað að hafa orðið 76 að bana í hryðjuverkaárásum í Osló og í Útey á föstudaginn. Símtölum frá blaðamönnum rignir nú yfir mennina þrettán og eru þeir dregnir niður í svaðið á allskyns spjallsíðum á Netinu. Erlent 26.7.2011 09:15
Breivik í tengslum við bresk hægri öfgasamtök Í ljós hefur komið að norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik hafði mikil og náin samskipti við hægri öfgasamtökin English Defence League í Bretlandi. Erlent 26.7.2011 07:18
Kalla eftir evrópskri samstöðu gegn hatri José Luis Rodríguez Zapatero, forsætisráðherra Spánar, kallaði í gær eftir samevrópskum viðbrögðum gegn útlendingahatri og fordómum í kjölfar hinna hryllilegu hryðjuverkaárása í Noregi. Erlent 25.7.2011 22:18
Þjóðverji bjargaði 20 ungmennum af Útey Frásagnir eftirlifenda af voðaverkunum í Útey hafa smám saman komið fram síðustu daga. Þær mála mynd af hryllilegum atburðum en inn á milli má finna sögur um manngæsku og samhjálp. Erlent 25.7.2011 22:18
Breivik var á skrá norsku öryggisþjónustunnar Nafn Anders Behring Breivik var á skrá öryggisþjónustu norsku lögreglunnar yfir Norðmenn sem átt höfðu viðskipti við pólskan eiturefnasöluaðila. Þetta kemur fram á vef norska miðilsins Verdens Gang. Erlent 25.7.2011 18:29
Færri látnir en talið var í fyrstu - enn fjölda saknað Lögreglan í Osló hefur tilkynnt að tala látinna eftir fjöldamorðin á föstudag er nokkuð lægri en talið var. Á blaðamannafundi sem nú stendur yfir var sagt að 68 hefði verið skotnir í Útey og að 8 hefðu látist í sprengingunni í miðborg Oslóar. Enn er þó nokkurs fjölda saknað og því ekki hægt að segja til um endanlegan fjölda látinna. Samkvæmt þeim upplýsingum sem lögreglan býr nú yfir er heildartalan orðin 76 en ekki 93 eins og áður var talið. Erlent 25.7.2011 15:34
Haldast í hendur gegn ofbeldi Tæplega 650 þúsund manns hafa sýnt samúð sýna vegna fjöldamorðanna í Noregi og lýst yfir andúð sinni á ofbeldi, með því að skrá sig á vefsíðu norska fréttablaðsins Verdens gang. Þar af hafa þegar um þrjú þúsund Íslendingar skráð sig. Morðin í Osló og á Útey á föstudag hafa haft djúpstæð áhrif á norskt samfélag og finnur fólk um allan heim til samúðar vegna þeirra. Hægt er að skrá sig með því að smella hér, á vef VG. http://www.vg.no/nyheter/innenriks/oslobomben/lenke.php Erlent 25.7.2011 14:40
Breivik í fjögurra vikna einangrun: Segist vilja bjarga Evrópu Norska fjöldamorðingjanum Anders Breivik verður haldið í einangrun næstu fjórar vikurnar, samkvæmt ákvörðun dómsþingsins í Osló. Það er álit þingsins að nægjanleg gögn séu fyrir hendi til að ákæra Breivik. Erlent 25.7.2011 13:31
Handtaka í Póllandi í tengslum við fjöldamorðin Norska útvarpið segir að maður hafi verið handtekinn í Póllandi, sakaður um aðild að hryðjuverkaárásinni í Noregi. Anders Breivik var leiddur fyrir dómara í Osló í dag. Erlent 25.7.2011 13:20
Krafist 8 vikna varðhalds yfir fjöldamorðingjanum Lögreglan í Osló krafðist átta vikna gæsluvarðhalds yfir fjöldamorðingjanum Anders Breivik í dómþinginu fyrr í dag. Hann var fluttur í dómþingið í brynvörðum og fyllstu öryggis gætt í hvívetna. Breivik hafði óskað eftir því að réttarhöldin yrðu opin en því var hafnað. Erlent 25.7.2011 12:55
Breivik markaðssetti sjálfan sig: Fór í ljós og tók stera Markaðssetning á málstað sínum er norska fjöldamorðingjanum Anders Breivik afar hugleikin ef marka má stefnuyfirlýsinguna sem hann sendi frá sér fyrir morðin. Þar ráðleggur hann fylgismönnum að huga vel að ímynd sinni, láta fagmenn taka af sér góðar ljósmyndir og jafnvel notast við myndvinnsluforritið Photoshop til að útkoman verði sem allra best. Erlent 25.7.2011 11:28
Breivik líkir múslimum við vatn úr leku röri Norski fjöldamorðinginn Anders Breivik hvetur fylgismenn sína til að ráðast alls ekki á múslima, að svo komnu, heldur einbeita sér að árásum á stjórnmálaleiðtoga sem aðhyllast fjölmenningarstefnu og vinstri sinnað áhrifafólk í fjölmiðlaheiminum. Erlent 25.7.2011 10:13
Scotland Yard rannsakar tengsl Breivik við erlenda öfgahópa Sérsveit innan Scotland Yard sem sérhæfir sig í baráttu við hryðjuverkamenn rannsakar nú möguleg tengsl norska fjöldamorðingjans Anders Behring Breivik við erlenda öfgahópa. Erlent 25.7.2011 06:46
Einn efnilegasti stjórnmálamaður Noregs myrtur í Útey Eitt þeirra ungmenna sem lét lífið í hryðjuverkaárás fjöldamorðingjans Anders Behring Breivik var talið eitt mesta efni í stjórnmálamann sem lengi hefur komið fram í Noregi. Erlent 25.7.2011 06:43
Breivik ætlaði að myrða Gro Harlem Brundtland Fram hefur komið við yfirheyrslur að norski fjöldamorðinginn, Anders Behring ætlaði sér að myrða Gro Harlem Brundtland fyrrum forsætisráðherra Noregs. Hún var stödd í Útey s.l. föstudag en var farin af staðnum þegar Breivik hóf skothríð sína. Erlent 25.7.2011 06:39
Stoltenberg: „Ég þekkti fjölmarga á Útey“ Margir kirkjugesta buguðust undir ræðu Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, í minningarathöfn í dómkirkjunni í Osló, um þá sem féllu í fjöldamorðunum á föstudag. Erlent 24.7.2011 19:17
Anders Breivik sagðist hafa verið einn að verki Anders Behring Breivik hefur játað að bera ábyrgð á bæði sprengjuárásinni í miðborg Oslóar og fjöldamorðunum í Útey. Sífellt fleiri gögn rata upp á yfirborðið sem veita innsýn í sjúkan hugarheim tilræðismannsins. Erlent 24.7.2011 18:43