Taívan
1 2 3 4 5 … 5 ›
Vilja nota Patriot-kerfi á skipum til að skjóta niður kínverskar eldflaugar Forsvarsmenn sjóhers Bandaríkjanna vinna að því að koma Patriot-loftvarnarkerfum fyrir á herskipum. Er það vegna ótta um að Kínverjar gætu notað ofurhljóðfráar eldflaugar til að sökkva herskipum á Kyrrahafi. Erlent 26.10.2024 16:36
Hóta frekari aðgerðum eftir umfangsmiklar æfingar Kínverjar héldu í dag gífurlega umfangsmiklar heræfingar kringum Taívan. Æfingarnar voru haldnar í kjölfar þess að forseti eyríkisins hélt í síðustu viku ræðu þar sem hann ítrekaði fullveldi Taívans og sagði ráðamenn Í Peking ekki eiga tilkall til eyjunnar. Erlent 14.10.2024 15:29
Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Nýjasti kjarnorkuknúni kafbátur Kína sökk við bryggju í vor. Um er að ræða nýja gerð kafbáta og er þetta fyrsti báturinn af þeirri gerð. Hann sökk við skipasmíðastöð nærri Wuhan í Kína. Ráðamenn í Kína hafa lagt mikla áherslu á uppbyggingu kínverska kafbátaflotans og var reynt að hylma yfir atvikið. Erlent 27.9.2024 11:07
Skutu skotflaug í Kyrrhafið í fyrsta sinn í rúm fjörutíu ár Kínverjar framkvæmdu í morgun tilraun með langdræga skotflaug sem borið getur kjarnorkuvopn. Eldflaugin bar gervi-sprengiodd og var henni skotið í Kyrrahafi en þetta er í fyrsta sinn í nokkra áratugi sem Kínverjar gera tilraun sem þessa. Erlent 25.9.2024 14:01
Með þrjú flugmóðurskip á sjó í fyrsta sinn Öll þrjú flugmóðurskip Kína voru á dögunum saman á sjó og er það í fyrsta sinn sem Kínverjar ná þessum áfanga. Stutt er í tólf ára afmæli þess að Kínverjar tóku fyrsta flugmóðurskipið í notkun og er fyrsta skipið sem þróað er og byggt í Kína í sjóprófunum. Erlent 24.9.2024 15:24
Símboðarnir sagðir koma frá ungversku skúffufélagi Forsvarsmenn taívanska fyrirtækisins Gold Apollo, eins stærsta framleiðanda símboða heims, segjast ekki hafa framleitt tækin sem sprungu í Líbanon og Sýrlandi í gær. Þess í stað hafi tækin verið framleidd af ungversku fyrirtæki sem kallast BAC Consulting Kft. eftir að samningur var gerður milli fyrirtækjanna. Erlent 18.9.2024 11:22
550 handteknir í tengslum við ólöglegan klámhring á Taívan Lögregluyfirvöld á Taílandi hafa ráðist gegn stærsta ólöglega klámhring sem vitað er um í landinu. Um 550 manns voru handteknir í tengslum við málið, sem varðar deilingar á barnaníðsefni og myndskeiðum af konum sem voru tekin án samþykkis þeirra. Erlent 2.8.2024 08:53
Barist við olíuleka og flóð í kjölfar fellibylsins Gaemi Yfirvöld á Filippseyjum berjast nú við að takmarka olíuleka frá tankskipinu MT Terra Nova, sem fór á hliðina þegar fellibylurinn Gaemi gekk yfir. Um borð voru 1,5 milljón lítrar af olíu, sem óttast er að gætu náð ströndum höfuðborgarinnar Manila. Erlent 25.7.2024 08:18
Kínverjar æfa innrás á Taívan Kínverjar iðka nú tveggja daga langa heræfingu í kringum Taívan og segja þeir æfinguna vera refsingu gagnvart eyjaskeggjum sem þeir saka um aðskilnaðarstefnu. Erlent 23.5.2024 07:53
Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Öldungadeild bandaríska þingsins samþykkti í gær að veita samtals 95 milljörðum Bandaríkjadala til Úkraínu, Ísrael og Taívan. Frumvarpið var samþykkt með 79 atkvæðum gegn 18. Erlent 24.4.2024 06:38
Fengu aðstoð Demókrata við að koma hernaðaraðstoð úr nefnd Allt stefndi í að frumvörp um hernaðaraðstoð frá Bandaríkjunum til Úkraínu, Ísrael og bandamanna Bandaríkjanna í Austur-Asíu myndu festast í nefnd í gær, þar til Demókratar komu Mike Johnson, forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, til aðstoðar. Erlent 19.4.2024 14:04
Erfiðir dagar í vændum á óreiðukenndu þingi Bandarískir þingmenn snúa aftur úr tveggja vikna páskafríi í dag, þriðjudag, en þeir standa frammi fyrir þó nokkrum umdeildum og erfiðum málum. Óreiða hefur einkennt þingið þetta kjörtímabil og þá sérstaklega í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, þar sem Repúblikanaflokkurinn hefur haft nauman og minnkandi meirihluta. Erlent 9.4.2024 08:00
Íslenskir bræður við upptök skjálftans: „Traffíkin stoppaði alveg og hlutir byrjuðu að hrynja“ Að minnsta kosti níu eru látnir og 800 slasaðir eftir að jarðskjálfti að stærð 7,4 reið yfir á Taívan í nótt. Íslendingur á upptakasvæðinu fylgdist með umferð stöðvast og hlutum hrynja þegar jörð tók að skjálfa. Hann og bróðir hans þurftu að flýja inn í land í skyndi þegar flóðbylgjuviðvaranir voru gefnar út. Innlent 3.4.2024 12:10
Fjórir látnir og 700 særðir eftir 7,4 stiga skjálfta í Taívan Gríðarlega stór jarðskjálfti reið yfir á Taívan í nótt en hann mældist 7,4 stig að stærð. Þetta er stærsti skjálfti sem riðið hefur yfir eyjuna í 25 ár. Fjórir eru látnir hið minnsta en rúmlega 700 eru særðir. Erlent 3.4.2024 06:49
Gera aðra tilraun með hernaðaraðstoð Bandarískir öldungadeildarþingmenn samþykktu í dag frumvarp um 95,3 milljarða dala hernaðaraðstoð til Úkraínu, Ísraels og Taívan auk mannúðaraðstoðar til Palestínumanna. Frumvarpið var samþykkt eftir næturlangt málþóf nokkurra þingmanna Repúblikanaflokksins. Erlent 13.2.2024 13:34
Óreiðan á þingi nær nýjum hæðum Óreiðan á bandaríska þinginu náði nýjum hæðum í gær. Á meðan Repúblikanar í öldungadeildinni gerðu útaf við samkomulag um hernaðaraðstoð og aðgerðir á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó, samkomulag sem þeir höfðu krafist um mánaða skeið, guldu Repúblikanar afhroð í tveimur atkvæðagreiðslum í fulltrúadeildinni. Erlent 7.2.2024 11:49
Meint njósnadúfa frá Kína hreinsuð af sök Yfirvöld í Indlandi slepptu á þriðjudaginn dúfu eftir að hún hafði verið í haldi í átta mánuði vegna gruns um að hún væri í raun kínverskur njósnari. Eftir ítarlega rannsókn hefur komið í ljós að dúfan slapp frá eigendum sínum í Taívan. Erlent 1.2.2024 23:04
Áfram samið á þingi þó Trump mótmæli Samningaviðræðum um mögulegar aðgerðir á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó annars vegar og hernaðaraðstoð handa Úkraínu og öðrum ríkjum hefur ekki verið hætt á bandaríska þinginu. Talið er að koma muni í ljós á næstu dögum hvort samkomulag sé mögulegt. Erlent 26.1.2024 14:01
Lai Ching-te kjörinn forseti í Taívan Laí Chingte bar sigur úr býtum í forsetakosningum í Taívan sem efnt var til á dögunum. Niðurstöðurnar komu í ljós í dag. Þetta eru þriðju kosningarnar í röð sem Lýðræðislegi framfaraflokkurinn hlýtur sigur í forsetakosningum í óþökk stjórnvalda í Peking en hann hefur verið horn í síðu ráðamanna þar síðan hann tók við stjórn embættisins. Erlent 13.1.2024 16:22
Kínverjar að verða vinalausir í Taívan Þegar styttist í að haldnar verða forsetakosningar í Taívan standa ráðamenn í Peking frammi fyrir því í fyrsta sinn í nokkurn tíma að eiga fáa vini á eyjunni. Viðhorf Taívana til meginlandsins og tilkalls ráðamanna þar til eyríkisins hefur breyst töluvert á undanförnum árum og það sama á við forsetaframbjóðendur. Erlent 29.12.2023 13:43
Opinberuðu fyrsta heimasmíðaða kafbátinn Tsai Ing-wen, forseti Taívan, opinberaði í morgun fyrsta heimasmíðaða kafbát ríkisins. Yfirvöld í Taívan vinna að nútímavæðingu herafla ríkisins og uppbyggingu í hergagnaframleiðslu í skugga mögulegrar innrásar frá Kína. Erlent 28.9.2023 12:05
Kínverjar auka hernaðarlegan viðbúnað við Taívan Kínverjar hafa aukið hernaðarlegan viðbúnað umhverfis Taívan eftir að herskipum frá Bandaríkjunum og Kanada var siglt um Taívan-sund á laugardag. Á fjórða tug herflugvéla og í kringum tuttugu herskip hafa farið um svæðið síðasta sólahring. Erlent 11.9.2023 07:23
Óttast kínverskar eldflaugar Æðstu menn herafla Bandaríkjanna hafa áhyggjur af því að herstöðvar ríkisins í Kyrrahafinu séu berskjaldaðar gagnvart kínverskum eldflaugum. Unnið er að því að dreifa úr vopnum, vistaverum hermanna, stjórnstöðvum og öðrum hergögnum til að gera eldflaugaárásir erfiðari. Erlent 1.6.2023 22:30
„Stríð kemur ekki til greina“ „Stríð kemur ekki til greina.“ Þetta sagði Tsai Ing-wen, forseti Taívan í dag á sjö ára valdaafmæli hennar. Hún sór þann eið að viðhalda friði á Taívansundi en mikil spenna hefur verið á svæðinu frá því að Kínaher hóf að stunda heræfingar á svæðinu, með tilheyrandi ógn fyrir eyríkið. Erlent 20.5.2023 17:02
Flugu tugum herþota við Taívan Minnst 38 kínverskum orrustuþotum og öðrum herflugvélum var flogið nærri Taívan í morgun. Æfingar Kínverja við eyríkið hafa ekki verið umfangsmeiri frá því í byrjun mánaðarins þegar æft var hvernig umkringja ætti Taívan. Þá var Tsai Ing-wen, forseti Taívans, að snúa heim eftir heimsókn til Bandaríkjanna. Erlent 28.4.2023 16:54
Kínverjar æfa hvernig þeir myndu umkringja Taívan Þriggja daga heræfingar Kínahers, sem miða að því að æfa það hvernig herinn myndi umkringja Taívan ef til átaka kæmi, standa nú yfir. Stjórnvöld í Pekíng segja æfingarnar viðvörun til yfirvalda á eyjunni. Erlent 8.4.2023 15:18
Kínverjar reiðir yfir væntanlegum fundi Tsai og McCarthy Tsai Ing-wen, forseti Taívans, segir að utanaðkomandi þrýstingur muni ekki koma í veg fyrir samskipti Taívans við heiminn. Hún mun ferðast um Bandaríkin á næstu dögum og stendur til að hún fundi þar með Kevin McCarthy, forseta Fulltrúadeildar Bandaríkjaþings. Erlent 29.3.2023 10:11
Enn fækkar þeim ríkjum sem styðja Taívan Forseti Hondúras, Xiomara Castro segist hafa fyrirskipað utanríkisráðuneyti landsins að koma á formlegum tengslum við stjórnvöld í Kína. Erlent 15.3.2023 07:40
Xi vill her í heimsklassa fyrir árið 2027 Xi Jinping, forseti Kína, hefur kallað eftir því að meiri kraftur verði lagður í nútímavæðingu og hernaðaruppbyggingu í Kína, svo herafli ríkisins verði í „heimsklassa“. Þetta sagði forsetinn í ræðu í gær, stuttu eftir að utanríkisráðherra Kína varaði við stríði gegn Bandaríkjunum, breyti Bandaríkjamenn ekki um stefnu gagnvart Kína. Erlent 9.3.2023 23:43
Xi sagður efast um getu Kínverja til að taka Taívan Xi Jinping, forseti Kína, efast um getu kínverska hersins til að hertaka Taívan en þær efasemdir eiga rætur í slæmu gengi Rússa í Úkraínu. Þetta sagði William Burns, yfirmaður Leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA), í viðtali í gær. Erlent 27.2.2023 12:17
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent