Trump fer til Kína: „Við erum tvö stórveldi“ Samúel Karl Ólason skrifar 13. maí 2026 10:56 Donald Trump, þegar hann lagði af stað til Kína í gærkvöldi. AP/Luis M. Alvarez Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, mætir í dag til Kína þar sem hann mun á næstu dögum funda með Xi Jinping, forseta Kína. Líklegt er að viðskipti ríkjanna verði helsta umræðuefni forsetanna en þeir hafa að öðru leyti margt að tala um, eins og átökin í Mið-Austurlöndum, málefni Taívan og gervigreind, svo eitthvað sé nefnt.
Trump fór síðast til Kína árið 2017, á hans fyrra kjörtímabili, en síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar þegar kemur að samskiptum ríkjanna. Með honum eru margir aðstoðarmenn, fjölskyldumeðlimir og auðjöfrar eins og Jensen Huang, forstjóri Nvidia, og Elon Musk, forstjóri SpaceX og Tesla. Áður en hann lagði af stað í gærkvöldi sagði Trump við blaðamenn að Bandaríkin og Kína væru helstu stórveldi heimsins. „Við erum öflugasta þjóðin á jörðinni, með tilliti til hernaðarstyrks. Kína er talið í öðru sæti.“ Hann sagðist ætla að leggja mesta áherslu á viðskipti ríkjanna og er hann talinn vilja fá Xi til að kaupa, meðal annars, meira af bandarískum matvælum og flugvélum. Markmið Kínverja verða að fá aukið aðgengi að bandarískum tölvuflögum fyrir gervigreind og að lækka tolla á kínverskar vörur. Trump sagði líklegt að hann myndi ræða málefni Íran við Xi. Kínverjar eru það ríki sem kaupir mesta olíu frá Íran en Bandaríkamenn eru með ríkið í herkví og hafa stöðvað fjölda olíuflutningaskipa. Þá er Trump sagður vilja stofna svokallaða „viðskiptastjórn“ en það á að vera vettvangur þar sem embættismenn ríkjanna geta rætt deilumál þeirra á milli. Stjórninni yrði til að mynda ætlað að koma í veg fyrir viðskiptastríð, sambærilegt því sem hófst þegar Trump hækkaði tolla á vörur frá Kína og Kínverjar svöruðu fyrir sig með því að takmarka aðgengi Bandaríkjanna og annarra ríkja að svokölluðum sjaldgæfum málmum. Það eru málmar sem eru gífurlega mikilvægir hátækniiðnaði og hergagnaframleiðslu en Kínverjar eru svo gott sem einráðir á þeim markaði. Sjá einnig: Reyna að halda sjaldgæfum málmum frá hernum Deilurnar enduðu með því að Bandaríkin og Kína gerðu vopnahlé til eins árs í viðskiptastríðinu. Fyrir viðskiptastríð ríkjanna í fyrra talaði Trump um að beita umfangsmiklum tollum á Kína og var hann mjög harðorður í garð ríkisins. Tónninn hefur breyst mikið síðan þá. New York Times segir að Trump hafi dregið verulega úr markmiðum sínum gagnvart Kína og vilji nú helst stöðugleika. Er það að miklu leyti rakið til þess að með því að stöðva á flæði sjaldgæfra málma gætu Kínverjar leitt til umfangsmikilla lokanna á verksmiðjum í Bandaríkjunum. og um heiminn allan. Áhyggjur í Taívan Taívan verður einnig til umræðu hjá Trump og Xi. Kínverjar hafa lýst yfir mikilli óánægju með að Bandaríkjamenn ætli að selja Taívönum mikið magn vopna og hergagna. Ríkisstjórn Trumps samþykkti söluna, sem er sú umfangsmesta í sögu ríkjanna, í desember en ekki hefur orðið af henni enn. Eins og frægt er gera Kínverjar tilkall til Taívan og hefur Xi heitið því að sameina Kína og Taívan og gera það með valdi ef svo þarf. Hann er sagður hafa gert það að markmiði sínu að ná völdum á Taívan og hefur hann sagt að það markmið megi ekki enda á höndum komandi kynslóða. Frá heimsókn Trumps til Kína árið 2017.AP/Andrew Harnik Taívanar segjast sjálfstæðir og segjast ætla að verja frelsi sitt og lýðræði. Sjálfstæðissinnum hefur vaxið ásmegin í Taívan á undanförnum árum en Taívanar hafa aldrei lýst yfir formlegu sjálfstæði. Bandaríkin slitu formlegum tengslum við Taívan árið 1979, að kröfu Kínverja, en hafa þrátt fyrir það haldið umfangsmiklum óformlegum tengslum við ríkið og útvega Taívan meðal annars vopn. Bandaríkjamenn hafa um árabil haldið því loðnu hvort þeir myndu beita valdi til að verja Taívan. Á þessu kjörtímabili hafa ummæli Trumps valdið áhyggjum í Taívan og meðal annarra bandamanna Bandaríkjanna í Asíu um að Bandaríkin myndu ekki koma Taívan til aðstoðar. Trump sagði nýverið að þegar hann talaði við Xi í síma talaði kínverski forsetinn mikið um Taívan. Hér að neðan má sjá almenning í Taívan tala um fund Xi og Trumps.
Bandaríkin Kína Donald Trump Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Taívan Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Fleiri fréttir Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Sjá meira