Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 9. september 2026 20:02 Ný fríhöfn var opnuð með pompi og prakt í dag. Forsvarsmenn Heinemann sem opnuðu nýja og endurbætta fríhöfn á Keflavíkurflugvelli í dag segjast telja íslenska birgja sem selja vörur sínar í fríhöfninni vera sátta, þeir hafi lært margt síðan þeir tóku yfir rekstur fríhafnarinnar á síðasta ári. Þá segja þeir áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft þó ekki sé hægt að fullyrða að allar vörur séu ódýrari en í fríhöfnum í Kaupmannahöfn og í Frankfurt.
Þetta er meðal þess sem fram kom á blaðamannafundi sem haldinn var á Keflavíkurflugvelli í dag, í tilefni þess að hulunni var svipt af breytingum á fríhöfninni. Samkvæmt tilkynningu fyrirtækisins nam kostnaður við endurbæturnar meira en 1,5 milljarði króna og breytingarnar þær viðamestu frá upphafi. Heinemann tók við rekstri fríhafnarinnar í maí í fyrra og birtust um sumarið fréttir af tómum hillum og skorti á neftóbaksdósum. „Við upplifðum nákvæmlega tvær helgar með svolítið tómlegum hillum, ef við getum orðað það þannig, í víndeildinni, það er rétt. Ástæðan var sú að við vorum með nýja ferla og flutninga, satt best að segja, því þetta var inn- og útflæðisferlið sem var nýtt,“ segir Jens Wolf sölustjóri Heinemann. Hann segir viðlíka vanda ekki hafa komið upp aftur síðan þá. Fyrirtækið sé stolt af sínum aðfangakeðjum, flestar erlendar vörur komi frá Hamborg í Þýskalandi í gámum. Horfa má á spurningar fréttamanns og svör á blaðamannafundinum í klippu hér fyrir neðan. Hafi átt gott samtal við íslenska birgja Þá sagði Félag atvinnurekenda í fyrra að Heinemann hafi stillt íslenskum birgjum upp við vegg með kröfum um að þeir lækki verð til þess að auka sína eigin framlegð. Inken Callsen framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Heinemann segir fyrstu viðræður við íslenska birgja hafa verið afar lærdómsríkar, hún telji að niðurstaða hafi fengist í málið sem báðir aðilar séu sáttir við. „Okkur sýnist allir aðilar vera ánægðir, því við leggjum mikið af mörkum með því að veita vörunum pláss og sýnileika og vinna saman að aukinni veltu. Ég held því að allir séu ánægðir með þetta núna, eftir fyrstu umferðir samtala og samningaviðræðna.“ Fram kom í tali forsvarsmanna Heinemann í dag að að minnsta kosti þrjátíu prósent vörumerkja í fríhöfninni séu íslensk og að yfir 370 fermetrar séu helgaðir íslenskum vörum. Það sé það mesta í fríhöfnum í eigu Heinemann en næstmest af vörum heimamanna séu til sölu í fríhöfnum þeirra á Ítalíu, eða um 24 prósent. Fréttamaður og tökumaður fóru í skoðunarferð um nýju fríhöfnina í dag. Áfengið á samkeppnishæfu verði Í október í fyrra birtust svo fréttir af því að verð á sumum tegundum áfengis væri dýrara í fríhöfninni í Keflavík en á öðrum fríhöfnum Heinemann í Kaupmannahöfn og í Frankfurt og í sumum tilvikum jafnvel dýrari en í Vínbúðinni. Jens Wolf segir verðsamanburðinn sem um ræðir ekki í öllum tilvikum hafa falið í sér sambærilegar vörur. „En þegar kemur að Vínbúðinni þá getum við fullyrt að við njótum mikils verðforskots. Þegar kemur að öðrum flugvöllum þarf auðvitað að horfa á heildarmyndina, meðal annars á skattareglur og kostnaðarstöðuna á flugvellinum.“ Meðal þess sem sé nýtt í hinni nýju fríhöfn séu sérstök tilboðssvæði. Wolf segir það fela í sér mikil tækifæri. „Við erum með fjölbreytt tilboð bæði á alþjóðlegum og staðbundnum vörumerkjum og mörkuðum, og söluhæstu vörum. Það er það sem við sjáum að viðskiptavinir kunna vel að meta. En já, til að vera alveg hreinskilinn, alveg opinn, þá gæti verið að ekki hver einasta vara sé ódýrari en í Kaupmannahöfn eða Frankfurt, en þegar kemur að heildarmyndinni þá munum við vera mjög samkeppnishæf þegar kemur að verði.“
Verslun Neytendur Áfengi Keflavíkurflugvöllur Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Sjá meira