Sjálfstæðisflokkurinn
8 9 10 11 12 13 14 15 16 … 85 ›
Þingflokkarnir funda hver í sínu horni Þingflokkar Sjálfstæðisflokksins, Vinstri grænna og Framsóknarflokksins komu saman til funda hver í sínu horni klukkan 13 í dag. Ráðherrar flokkanna mæta á ríkisstjórnarfund sem boðað hefur verið til klukkan 16 í dag. Innlent 16.10.2024 13:36
Bæjarstjórinn íhugar alvarlega að bjóða fram krafta sína Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, íhugar alvarlega að bjóða fram krafta sína til að taka sæti á lista fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Suðvesturkjördæmi í komandi þingkosningum sem fram fara 30. nóvember. Innlent 16.10.2024 13:25
Vill vera oddviti áfram og hlakkar til slagsins Njáll Trausti Friðbertsson, oddviti Sjálfstæðismanna í Norðausturkjördæmi, mun sækjast eftir endurkjöri í fyrsta sæti á lista flokksins í kjördæmin. Hann hefur fengið mótframboð og því stefnir í slag um oddvitasætið. Innlent 16.10.2024 12:37
Sjálfstæðismenn kjósa um efstu sæti á lista á landsbyggðinni Kosið verður um efstu sætin á framboðslistum Sjálfstæðisflokksins í landsbyggðarkjördæmunum á fundum kjördæmaráða sem fara fram á sunnudag. Raðað verður í neðri sætin. Innlent 16.10.2024 12:26
„Jafn óábyrgt og að slíta stjórninni“ Forseti Alþýðusambandsins segir að með stjórnarslitum séu ráðandi öfl að hlaupast undan verkefninu, loks þegar árangur sé að nást í baráttu við háa vexti og verðbólgu. Hann kveðst gáttaður á því Vinstri græn taki ekki þátt í starfsstjórn. Innlent 16.10.2024 11:54
Jens Garðar vill oddvitasætið Jens Garðar Helgason hefur tilkynnt framboð sitt til oddvita Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í komandi þingkosningum. Hann er aðstoðarforstjóri laxeldisfyrirtæksisins Kaldvíkur. Njáll Trausti Friðbertsson leiddi lista Sjálfstæðismanna í kjördæminu í síðustu kosningum. Innlent 16.10.2024 11:23
Nýr aðstoðarmaður rétt fyrir ríkisstjórnarslit Lilja Hrund Lúðvíksdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra. Hún hóf störf í síðustu viku einungis nokkrum dögum áður en ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar baðst lausnar. Innlent 16.10.2024 10:06
„Falsfréttin“ og „þvælan“ sem raungerðist hratt Aðstoðarmenn Svandísar Svavarsdóttur formanns Vinstri grænna og innviðaráðherra til dagsins í dag sögðu það falsfrétt og algjöra þvælu að Svandís væri byrjuð að tæma skrifstofu sína í ráðuneytinu upp úr hádegi í dag. Ekkert slíkt lægi fyrir. Síðar um daginn var búið að tæma skrifstofuna. Innlent 15.10.2024 21:42
Algjör nýmæli að neita að taka þátt í starfsstjórn Ólafur Þ. Harðarson, stjórnmálafræðiprófessor, segir það algjör nýmæli hjá Vinstri grænum að neita að taka þátt í starfsstjórn. Hugmynd Svandísar Svavarsdóttur, formanns Vinstri grænna, um minnihlutastjórn Framsóknar og VG hefði þó getað gengið upp, og á sér fordæmi. Innlent 15.10.2024 20:20
„Hefur engan tilgang“ að setja nýtt fólk í starfsstjórn Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins hyggst sitja áfram í starfsstjórn Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra fram að kosningum. Eðlilegast sé að Framsókn og Sjálfstæðisflokkur skipti með sér verkum ráðherra Vinstri grænna. Innlent 15.10.2024 17:42
Taka ekki þátt í starfsstjórn Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna, hefur tilkynnt að ráðherrar flokksins muni ekki verða við beiðni forseta Íslands um að sitja áfram í starfsstjórn. Innlent 15.10.2024 17:04
Átök Áslaugar og Guðlaugs Þórs ekki endurtekin Allar líkur eru á því að stillt verði upp á listum Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmum fyrir komandi Alþingiskosningar sem flest bendir til að verði í lok nóvember. Mikill hiti var í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir þremur árum þar sem Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Guðlaugur Þór Þórðarson börðust af miklum krafti um oddvitasæti flokksins. Innlent 15.10.2024 15:55
Uppstilling hjá Miðflokknum Nokkrir þingflokkar hafa þegar ákveðið hvort þeir hyggist stilla upp listum fyrir komandi Alþingiskosningar eða halda prófkjör. Miðflokkurinn ætlar að stilla upp listum í öllum kjördæmum. Innlent 15.10.2024 14:25
Sjálfstæðismenn keppast um sætin: „Ég las Morgunblaðið eins og aðrir“ Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi, hyggst ekki láta það trufla sig ef varaformaður flokksins sækist eftir sæti á lista í sama kjördæmi. Þá íhugar Teitur Björn Einarsson þingmaður hvort hann muni sækjast eftir oddvitasæti í Norðvesturkjördæmi. Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, sem hefur verið orðuð við framboð fyrir flokkinn segist ekki vera á leið í landsmálin. Innlent 15.10.2024 14:13
Sjálfstæðismenn í Kraganum raða á sunnudag Stjórn kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi hefur óskað eftir framboðum á lista í komandi alþingiskosningum. Val á framboðslista mun fara fram sunnudaginn 20. október. Innlent 15.10.2024 13:18
Halla féllst á beiðni Bjarna og rúmar sex vikur til kosninga Halla Tómasdóttir forseti féllst í dag á tillögu Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra í dag um þingrof. Kosið verður til Alþingis þann 30. nóvember næstkomandi. Innlent 15.10.2024 12:50
Forseti Alþingis telur eðlilegt að Bjarni leiði starfsstjórn Forseti Alþingis telur eðlilegt að Bjarna Benediktssyni verði falið að leiða starfsstjórn eftir að hann biðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt á Bessastöðum síðar í dag. Óvissa ríki eðlilega um þingstörf þessa dagana en ekkert verði að þingfundi sem var á dagskrá Alþingis í dag. Innlent 15.10.2024 11:50
Þórdís gæti boðið sig fram í Kraganum Mögulegt er að Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, bjóði sig fram í Suðvesturkjördæmi í kosningum sem fara fram í næsta mánuði. Hún segist íhuga það alvarlega. Innlent 15.10.2024 08:40
„Loksins!“ segja ungir sjálfstæðismenn Samband ungra sjálfstæðismanna fagnar ákvörðun Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra um að binda enda á ríkisstjórnarsamstarfið. Innlent 14.10.2024 22:03
Starfsstjórn með nýjum forsætisráðherra „bara einhver furðukenning“ Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segist ætla að biðjast lausnar úr embætti, en segir það hafa legið fyrir frá því að hann tilkynnti um að hann óski eftir þingrofi á sunnudag. Honum finnist eðlilegast að mynda starfsstjórn með stuttan forgangslista sem geti komið mikilvægum málum, líkt og fjárlögum, í gegn sem fyrst. Innlent 14.10.2024 21:06
Ekki einhugur meðal formanna flokkanna um framhaldið Ekki er einhugur um það meðal leiðtoga á Alþingi hvort forseti Íslands eigi að verða við ósk forsætisráðherra um þingrof, eða hvort honum beri að biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt. Forsetinn ræddi við leiðtoga allra flokkanna í dag. Formaður Vinstri grænna lýsti því yfir snemma í kvöld að hún gæti vel séð fyrir sér minnihlutastjórn hennar flokks með Sigurð Inga Jóhannsson formann Framsóknarflokksins í embætti forsætisráðherra fram að kosningum. Innlent 14.10.2024 20:13
„Við erum ekkert ofboðslega hrifin af þessari dramatík“ Lilja Dögg Alfreðsdóttir þingmaður Framsóknarflokksins segir stjórnarsamstarfinu augljóslega lokið. Það þurfi að klára lykilmál eins og fjárlög en það séu kosningar framunda. Framsóknarflokkurinn sé tilbúinn. Það skipti mestu máli að vextir halda áfram að lækka og koma efnahagsmálunum í lag. Lilja ræddi við fréttamann að loknum þingflokksfundi. Innlent 14.10.2024 14:57
Staðan óljós eftir atburðarás gærdagsins Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins segir þingflokkinn hafa farið yfir stöðuna í stjórnmálum í dag á þingflokksfundi. Staðan sé óljóst eftir atburðarás gærdagsins. Hann ætlar á fundi með forsetanum síðar í dag að ræða það hvort ríkisstjórnin starfi saman fram að kosningum eða hvort skipa þurfi starfsstjórn. Innlent 14.10.2024 14:32
Það henti VG að vera í „svolitlum slag“ við Sjálfstæðisflokkinn Bæði formaður VG og formaður Framsóknar hafa lýst ákvörðun Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra um stjórnarslit, sem óvæntum. Þetta hafi komið þeim í opna skjöldu. Ólafur Þ Harðarson, stjórnmálafræðiprófessor var beðinn um að meta stöðu flokkanna eftir ákvörðun Bjarna. Innlent 14.10.2024 13:21
Stuttur tími til að „komast í kjólinn fyrir jólin“ Nú þegar stefnir í kosningar fyrir jól, keppast flokkarnir við að smíða lista til að tefla fram. Uppstilling þykir líkleg víða, og aðeins einn flokkur hefur þegar tekið ákvörðun um að fara í prófkjör. Formaður eins flokksins segir þá ekki hafa langan tíma til að „komast í kjólinn fyrir jólin“. Innlent 14.10.2024 12:26
Annar fyrrverandi Miðflokksmaður til liðs við Arnar Þór Baldur Borgþórsson, fyrrverandi varaborgarfulltrúi Miðflokksins, hefur gengið til liðs við Lýðræðisflokk Arnars Þórs Jónssonar. Árið 2021 hætti hann í Miðflokknum og gekk í Sjálfstæðisflokkinn. Innlent 14.10.2024 11:56
„Mér gæti ekki verið meira sama um alla spekingana“ Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segir að honum sé sama um það sem stjórnmálaskýrendur munu segja um ákvörðun hans að boða þingrof. Hann þurfi sterkara umboð og stærri þingflokk til þess að ná fram markmiðum Sjálfstæðisflokksins. Innlent 14.10.2024 10:31
Segir Svandísi aðeins eiga einn kost eftir „svipugöng niðurlægingar“ „Eftir það sem á undan er gengið, og eftir þau svipugöng niðurlægingar sem Bjarni og ráðherrar Sjálfstæðisflokksins leiddu Svandísi í gegnum í atburðarrás gærdagsins, þá á Svandís því varla annan kost en þann að draga VG formlega út úr ríkisstjórninni.“ Innlent 14.10.2024 09:07
Erindinu er lokið Mér er létt að við séum búin að taka ákvörðun um að slíta ríkisstjórnarsamstarfinu. Það liggur fyrir að það er ekki lengur til staðar nægur vilji og sameiginleg sýn til þess að halda samstarfinu áfram. Skoðun 14.10.2024 08:16
Hætt að hugsa um það sem liðið er og horfa fram á við Þingflokksfundi Framsóknarflokksins lauk rétt fyrir klukkan tíu í kvöld. Þar komu þingmenn Framsóknar saman og ræddu óvæntar vendingar dagsins og næstu skref í ljósi þess að Bjarni Benediktsson forsætisráðherra tilkynnti í dag að stjórnarsamstarfinu yrði slitið. Innlent 13.10.2024 22:43