Samgönguslys

Átta kerti til minningar um þau sem hafa látist í ár
Alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa er í dag.

Átta hafa látið lífið í umferðinni á árinu
Árlegur alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa verður sunnudaginn 15. nóvember. Átta hafa látist í umferðinni það sem af er ári en sex létust í fyrra.

Hafa hvorki getað rætt við ökumann né farþega
Karl og kona sem lentu í alvarlegu umferðarslysi í Öxnadal í Hörgársveit á föstudag liggja enn mikið slösuð á sjúkrahúsi.

Fjórir slasaðir eftir umferðarslys á Suðurlandi
Fjórir slösuðust þegar bíll valt og hafnaði utan vegar milli Selfoss og Hellu.

Bíll alelda eftir veltu og tveir slasaðir
Bílvelta varð á þjóðvegi 1 við Bægisá í Hörgársveitá þriðja tímanum í dag.

Einn fluttur til skoðunar eftir árekstur á Arnarneshæð
Einn var fluttur á slysadeild til skoðunar eftir árekstur á Arnarneshæð í kvöld.

Lenti vél Icelandair án heimildar eftir óhapp á Keflavíkurflugvelli
Rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsakar nú tvö atvik sem komu upp á Keflavíkurflugvelli eftir að sjúkraflugvél rann út af flugbrautarenda sem varð til þess að flugvöllurinn lokaðist.

Ungmenni flutt á sjúkrahús eftir bílveltu
Fjögur 17 ára ungmenni voru flutt til aðhlynningar á Sjúkrahúsið á Akureyri eftir bílveltu í nótt.

Þreyttur eftir langt flug fjölskyldunnar morguninn fyrir banaslysið
Ökumaður bíls sem hafnaði út af við bæinn Gröf á Snæfellsnesi í október í fyrra, með þeim afleiðingum að einn lést, sofnaði sennilega undir stýri.

Fjögur ungmenni á slysadeild eftir árekstur í Kópavogi
Bíl var ekið gegn rauðu ljósi yfir gatnamót og inn í hlið bifreiðar með fjórum ungmennum undir lögaldri um borð á tólfta tímanum í gærkvöldi. Ungmennin voru flutt á bráðadeild en upplýsingar um meiðsli þeirra liggja ekki fyrir, að sögn lögreglu.

Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut
Þriggja bíla árekstur varð á Reykjanesbraut til móts við Garðahraun á fimmta tímanum í dag.

Ekki nógu mikil árvekni orsakaði strand Ópals
Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur að orsök strands farþegaskipsins Ópals við Lundey í febrúar á þessu ári hafi verið sú að mikilvæg árvekni við stjórn skipsins hafi ekki verið viðhöfð í aðdraganda strandsins.

Fjögur ungmenni flutt á sjúkrahús eftir bílveltu í Eyjafirði
Fjögur ungmenni voru flutt á Sjúkrahúsið á Akureyri eftir bílveltu á malarkafla á Hólavegi, Innarlega í Eyjafirði, skömmu eftir miðnætti.

Vörubíll valt milli Hveragerðis og Selfoss
Lokað hefur verið fyrir umferð um Suðurlandsveg í austurátt við Kotströnd eftir að vörubíll valt á þriðja tímanum.

Vörubíll á hliðina á mótum Suðurlandsvegar og Þrengslavegar
Einhverjar lokanir eru á mótum Suðurlandsvegar og Þrenglsavegar sem stendur vegna umferðaróhapps.

Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi við Heydalsveg
Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi við Heydalsveg þann 4. október var Halldór Erlendsson.

Harmar vantraustsyfirlýsingu Snigla
Forstjóri Vegagerðarinnar harmar vantraustsyfirlýsingu sem stjórn Snigla, samtök áhugamanna um öruggan akstur bifhjóla, lýstu yfir á hendur stofnuninni og Bergþóru Þorkelsdóttur, forstjóra hennar, í vikunni.

Lýsa yfir „fullkomnu vantrausti“ á Vegagerðina
Stjórn Snigla bifhjólasamtaka lýsir yfir „fullkomnu vantrausti“ til Vegagerðarinnar og forstjóra hennar, Bergþóru Þorkelsdóttur, í kjölfar umfjöllunar fréttaskýringaþáttarins Kveiks um ástand vegakerfis á Íslandi í kvöld.


Malbikið á Kjalarnesi stóðst alls ekki kröfur
Miklu munaði á að malbik sem lagt var á kafla á Kjalarnesi í sumar stæðist kröfur. Tveir létust á hálu malbikinu í sumar og leiða niðurstöður rannsóknar í ljós að hvorki kröfum um hemlunarviðnám hafi verið fullnægt né kröfum um holrýmd. Kaflinn hefur verið malbikaður upp á nýtt.

Einn fluttur á slysadeild eftir umferðaróhapp í Hvalfirði
Umferðaróhapp varð í Hvalfirði um klukkan 12:30 í dag.

Banaslys við Heydalsveg
Karlmaður á sextugsaldri lést eftir að bifreið sem hann var í hafnaði utan vegar við Heydalsveg.

„Ég skil ekki hvernig þú lifðir þetta af“
„Ég sagði strax að mamma hefði vakað yfir mér og kippt í mig. Ef bíllinn hefði hitt mig eins og hundinn þá væri ég ekki hér,“ segir Jóhanna Ásmundsdóttir, kennari á Akureyri.

Þakklát fyrir að tennurnar séu heilar
„Þetta hefði getað farið miklu verr en þetta hefði líklega farið betur ef ég hefði verið með hjálm,“ segir Chantelle Carey danshöfundur í samtali við Vísi.

Ekið á barn á reiðhjóli í Njarðvík
Ekið var á barn, sem var á reiðhjóli, á Njarðvíkurbraut. Drengurinn sem um ræðir fann til verkja og var fluttur með sjúkrabifreið á Landspítala.

Um 60 kindur drápust eftir bílveltu
Fjárflutningabíll valt í gær á Dynjandisheiði með þeim afleiðingum að um 60 fjár ýmist drápust eða voru aflífaðar á staðnum eftir slysið.

Hlaut banvæna áverka eftir að hafa verið með bílbeltið undir handarkrika
Farþegi jepplings sem lést í árekstri á Borgarfjarðarbraut á síðasta ári var með bílbeltið ranglega spennt. Hafði hann sett axlarbeltið undir handarkrikann og í árekstrinum hlotið banvæna brjóst- og kviðarholsáverka.

Fluttur með sjúkraflugi suður eftir alvarlegt slys í Önundarfirði
Alvarlegt slys varð í spennistöð Orkubús Vestfjarða á fjórða tímanum í dag. Einn var fluttur slasaður með sjúkrabíl til Ísafjarðar en var skömmu síðar fluttur með sjúkraflugi Mýflugs suður til Reykjavíkur. Straumleysi varð í Önundarfirði eftir að slysið varð og er verið að skoða aðstæður.

Fimm milljóna styrkur í rannsóknir samgönguslysa
Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra mætti í morgun á lögreglustöðina á Selfossi til að undirrita samning um að Lögreglan á Suðurlandi haldi áfram að sinna rannsóknum ökutækja úr alvarlegum umferðarslysum um land allt.

Bílslys á Snæfellsnesi: Einn fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út nú fyrir skömmu vegna bílslyss á Snæfellsnesi.