„Ríkið á stóra sök á þessu“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 31. ágúst 2026 18:09 Páll Magnússon var fyrsti fréttastjóri Stöðvar 2. Vísir Fyrsti fréttastjóri Stöðvar 2 segir það að hluta til sök ríkisins að kvöldfréttir Sýnar, áður Stöðvar 2, hafi verið lagðar niður. Staðan sé dapurleg. „
Ríkið á stóra sök á þessu að hafa ekki fyrr gripið til hins augljósa,“ segir Páll Magnússon í Reykjavík síðdegis en hann var fyrsti fréttastjóri Stöðvar 2. Til umræðu voru endalok kvöldfrétta Sýnar en síðasti kvöldfréttatíminn verður sendur út núna klukkan hálf sjö. „Þetta er dapurlegt fyrst og fremst, auðvitað gagnvart fólkinu sem núna missir vinnuna sína í dag en líka í bara sögu íslenskrar fjölmiðlunar. Ég held að þeir sem muna þennan tíma og það sem fór í kjölfarið geri sér grein fyrir því að tilkoma fréttastofu Stöðvar 2 á sínum tíma, 1986, fól í sér algjöra byltingu í fréttamennsku og blaðamennsku á Íslandi.“ Páll var fenginn frá Ríkisútvarpinu á sínum tíma, árið 1986, til að leiða fréttastofu Stöðvar 2. Það hafi ekkert eitt breytt fréttum Ríkisútvarpsins líkt og tilkoma nýrrar fréttastofu. „Allt í einu fékk Ríkisútvarpið viðmiðun, samanburð, gat mælt sig við einhvern og fréttatíminn sem svona gat í rauninni hagað sér nokkurn veginn eins og hann vildi, missti aldrei áhorf. Allt í einu var hann kominn með samkeppni,“ segir Páll. Fljótlega var áhorf á kvöldfréttir Stöðvar 2 komið á par við fréttir Ríkisútvarpsins. Samkeppni um starfsfólk „Tilboðið sem ég fékk var sem sagt: Heyrðu, þú mátt búa til þá fréttastofu sem þú vilt, þú ræðir einn hvaða fólk þú ræður til starfa, hvernig fréttatíminn verður að uppleggi, hvenær hann verður,“ segir Páll. „Ég hugsaði með mér á endanum að þetta væri tækifæri sem ef ég myndi ekki grípa myndi ég sjá eftir alla ævi. Við tók auðvitað ævintýralegur tími.“ Við upphaf Stöðvar 2 hafi einnig orðið mikil samkeppni um starfsfólk. Allir, nema einn, sem Páll ræddi við voru tilbúnir að taka tækifærinu og þannig hafi fréttastofan verið afar vel mönnuð frá upphafi. Hins vegar hafi rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla breyst til muna. „Það hefur líklega aldrei verið þrengra og erfiðara frá því að rekstur útvarps og sjónvarps var gefinn frjáls á Íslandi,“ segir hann. Áhrif sjónvarpsins hverfi „Ég held að þetta hafi smám saman versnað. Ég held að samfélagsmiðlarnir séu að taka stærri og stærri hluta af auglýsingakökunni hér á Íslandi, það er eitt. Þeir eru líka þarna í friði, óskattlagðir og geta farið sínu fram eins og þeir vilja, þannig að smám saman hefur þrengt að þessu,“ segir Páll. Páll telur hins vegar að Ríkisútvarpið muni halda sínum fréttaflutningi áfram í sjónvarpi þrátt fyrir að hinir hefðbundnu fjölmiðlar hafi tapað talsvert af mikilvægi sínu. „Þeir skipta ekki eins miklu máli og þeir gerðu en einhver er nú ástæðan fyrir því að samt að þeim er haldið til haga hér í öllum löndunum hér í kringum okkur.“ Hann telur að ríkið eigi stóran hlut í því að sagan hafi farið svo. „Rekstrarumhverfið er þetta og það er ekki hægt að ætlast til þess að einkarekin fyrirtæki séu að halda úti einhverju sem engar viðskiptalegar forsendur eru til að gera lengur. Ríkið á stóra sök á þessu að hafa ekki fyrr gripið til hins augljósa,“ segir Páll. „Ég er ekki viss um að til þessarar lokunar væri að koma að minnsta kosti akkúrat núna ef ríkið léti þennan tekjumarkað í friði og hefði farið út af honum fyrr.“
Kvöldfréttir Fjölmiðlar Bylgjan Reykjavík síðdegis Sýn Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Tómas kominn aftur til starfa Innlent Fleiri fréttir Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Sjá meira