Erlent
190 191 192 193 194 195 196 197 198 … 334 ›
Mætir fyrir rétt í Ipswich Maðurinn, sem var handtekinn fyrir morðið á fimm vændiskonum í Bretlandi þann 19. desember á nýliðnu ári, mun koma fyrir rétt í dag. Erlent 2.1.2007 07:46
Bush fjölgar hermönnum í Írak George W. Bush, Bandaríkjaforseti, ætlar sér að kynna nýja áætlun fyrir Írak á næstu dögum. Helsta stefnubreytingin verður að fjölga bandarískum hermönnum í stað þess að leggja áherslu á að þjálfa íraska hermenn. Fréttavefur BBC skýrði frá þessu í morgun. Erlent 2.1.2007 09:03
Flak flugvélar fundið Björgunarmenn í Indónesíu fundu í morgun flakið af flugvél sem hafði farist í óveðri í gær. Flugvélin var á leið frá Jövu til Súlavesí. Embættismenn skýrðu frá að 90 væru taldir af og að 12 manns hefðu komist lífs af. Erlent 2.1.2007 07:40
Synt í ísköldu Atlantshafinu Hundruð manns í Coney Island í Bandaríkjunum fögnuðu nýja árinu með því stinga sér til sunds í ísköldu Atlantshafinu í gær. Sérstakur sjósundsklúbbur hefur verið starfræktur þar í bæ síðan 1903 og hefur staðið fyrir nýárssundi síðan 1920. Skipuleggjendur atburðarins sögðu að allt að 300 manns hefðu tekið þátt í sundinu þetta árið og að jafnvel enn fleiri hefðu komið að fylgjast með. Erlent 2.1.2007 07:34
Ríflegur barnastyrkur í Þýskalandi Þýskar konur, sem eignuðust börn í gær, voru þær fyrstu í landinu til þessa að njóta góðs af nýjum barnastyrkjum þýsku ríkisstjórnarinnar. Samkvæmt hinum nýju lögum mun það foreldri, sem er frá vinnu til þess að sjá um barn sitt, fá allt að tvo þriðju af fyrrum launum sínum í styrk frá ríkinu. Ekki mun þurfa að borga skatt af þessari upphæð og hún er líka óháð tekjum. Erlent 2.1.2007 07:29
Streyma til landa ESB Rétt þegar fagnaðarlátum vegna inngöngu Búlgaríu í Evrópusambandið var að ljúka í gær streymdu Búlgarir af stað að leita sér að vinnu í löndum Evrópusambandsins. Fólkið segir að litla sem enga vinnu sé að hafa í Búlgaríu og því verði það að yfirgefa heimahaga sína og gerast farandverkamenn. Erlent 2.1.2007 07:18
Kárahnjúkavirkjun mótmælt í Lundúnum í dag Kárahnjúkavirkjun var mótmælt með sérstökum hætti í Lundúnum í dag. Mótmælendur frá ýmsum löndum klifruðu upp á Sánkti Pálskirkju þar í borg og Tate Modern listasafnið til að vekja athygli á framkvæmdum á Íslandi. Erlent 1.1.2007 18:20
Loftárás í Írak Bandarískar orustuþotur gerðu snemma í morgun loftárás á húsaþyrpingu nærri skrifstofu háttsetts stjórnmálamanns súnnía vestur af Bagdad, höfuðborg Íraks. Vitni segja hermenn síðan hafa myrt meðlimi súnní-fjölskyldu í nálægu húsi. Árásin eykur enn á spennu sem hefur magnast í landinu frá aftöku Saddams Hússeins, fyrrverandi forseta, í fyrradag. Erlent 1.1.2007 18:18
Nýju ári og ESB aðild fagnað Flugeldar lýstu upp nýársnóttina víðar en á Íslandi. Skoteldar tóku á móti nýju ári í Lundúnum, Berlín og Búkarest. Á síðastnefnda staðnum var þó einnig verið að fagna inngöngu í Evrópusambandið en á miðnætti urðu Búlgarar og Rúmenar aðilar að bandalaginu og sambandsríkin eru því orðin 27. Erlent 1.1.2007 18:15
Nýju ári fagnað víða um heim Sinn er siður í hverju landi þegar kemur að því að fagna nýju ári. Í New York var ekki brugðið út af hefðinni og tímamótunum fagnað á Times-torgi. Erlent 1.1.2007 11:51
Uppreisnarmenn hraktir á flótta Íslamskir uppreisnarmenn hörkust í morgun frá hafnabroginni Kismayo í suðurhluta Sómalíu. Borgin var síðasta vígi uppreisnarmanna eftir að þeir hröktust frá höfuðborginni Mogadishu fyrir helgi. Forsætisráðherra í bráðabirgðastjórn Sómalíu hefur gefið uppreisnarmönnum þriggja daga frest til að leggja niður vopn. Þeim verði gefnar upp sakir geri þeir það ellegar afvopnaðir með valdi. Erlent 1.1.2007 11:45
Samið um gassölu til Hvíta-Rússlands Stjórnvöld í Hvíta-Rússlandi og fulltrúar frá rússneska orkurisanum Gazprom gerðu snemma í morgun samning sem tryggir Hvít-Rússum gas frá fyrirtækinu næstu fimm árin. Samningurinn var undirritaður örfáum klukkustundum áður en Rússar ætluðu að loka fyrir gas til Hvíta-Rússlands. Erlent 1.1.2007 10:17
Gefinn frestur til að leggja niður vopn Stjórnvöld í Sómalíu hafa heitið því að gefa þeim íslömsku uppreisnarmönnum upp sakir sem leggi niður vopn og hætti bardögum við sómalskar og eþíópískar hersveitir. Ali Mohamed Gedi, forsætisráðherra í bráðabirgðastjórn Sómalíu, hefur gefið þeim þriggja daga frest til að afhenda vopn sín ellegar verði þeir afvopnaðir með valdi. Erlent 1.1.2007 10:12
Stjórnarandstæðingum kennt um Þrír týndu lífi og tæplega fjörutíu særðust þegar átta sprengjur sprungu í Bangkok, höfuðborg Taílands, síðdegis í gær. Hinir látnu voru allir Taílendingar en sex úr hópi særðra voru erlendir ferðamenn frá Bandaríkjunum, Bretlandi, Ungverjalandi og Serbíu. Enginn hefur lýst árásunum á hendur sér en forsætisráðherra landsins telur víst að þar hafi andstæðingar stjórnvalda verið að verki. Erlent 1.1.2007 10:04
Fjölgar í ESB Búlgarar og Rúmenar gengu í Evrópusambandið á miðnætti nótt og var áfanganum fangnað kröftuglega í höfuðborgunum Búkarest og Sófíu. Þar með eiga 27 ríki aðild að sambandinu eða um hálfur milljarður manna. Erlent 1.1.2007 09:59
Nýju ári fagnað Nýju ári var fagnað víða um heim og gerði hver þjóð það með sínum hætti. Fjölmennt var á Times Sqare í New York og þar sem rúmlega milljón manns tóku á móti árinu 2007. Á Copacabana strönd í Brasilíu fögnuðu innfæddir sem og aðkomumenn með söng og dansi. Erlent 1.1.2007 09:56
Rúmenía og Búlgaría komin í ESB Kampavínið flaut í suðaustanverðri Evrópu þegar Rúmenar og Búlgarar fögnuðu í nótt inngöngu landanna tveggja í Evrópusambandið. Þá eru ríki sambandsins orðin 27. Innlent 31.12.2006 22:28
Samningar náðust um gassölu til Hvítarússlands Stjórnvöld í Hvítarússlandi tilkynntu í nótt að þau hefðu skrifað undir samkomulag við Gazprom olíufyrirtækið rússneska og þar með komið í veg fyrir að skrúfað yrði fyrir gassölu frá Rússlandi. Forstjóri Gazprom segir að samkomulagið geri ráð fyrir rúmlega að verð á gasi hækki úr 46 dollurum fyrir þúsund rúmmetra í 100 dolllara, sem er rúmlega tvöföldun. Erlent 31.12.2006 22:09
Gríðarleg íshella brotnaði frá Norðurskautinu Gríðarstór íshella hefur brotnað af eyju sunnan við Norðurpólinn, og kenna vísindamenn um hlýnandi loftslagi. Hellan er álíka stór og smáríkið Lichtenstein. Frekari bráðnun á heimskautasvæðinu gæti leitt til stóraukinna skipaferða framhjá Íslandi. Erlent 31.12.2006 11:10
Saddam og böðlarnir skiptust á fúkyrðum Saddam Hussein og böðlar hans skiptust á blótsyrðum og svívirðingum, fyrir aftökuna. Þetta má sjá og heyra á myndskeiði sem búið er að setja á netið. Það virðist tekið á farsíma, því myndirnar eru ekki mjög skýrar. Erlent 31.12.2006 09:06
Kóngurinn í Marokkó í hátíðarskapi Konungurinn í Marokkó fagnaði Eid al-Adha í dag með því að náða eða stytta dóm 585 fanga sem sátu í fangelsi fyrir hina ýmsu glæpi. Sjö þeirra sátu inni fyrir lífstíð en munu aðeins sitja inni í nokkur ár í viðbót eftir þetta hátíðabragð kóngsins. Erlent 30.12.2006 20:46
Lík Saddams afhent ættingjum hans Lögfræðingar Saddams Hússeins hafa skýrt frá því að ættbálkaleiðtogum í heimbæ hans, Tikrít, hafi verið afhent lík hans til greftrunar. Bandarísk herflugvél var notuð til flutninganna. Erlent 30.12.2006 19:49
Gas-stríðinu nánast lokið Hvíta-Rússland hefur samþykkt að greiða mun hærra verð fyrir gas frá olíu- og gasrisanum Gazprom, sem er í eigu rússneska ríkisins, en það gerði áður eða um 100 dollara fyrir þúsund rúmmetra í stað 46 áður. Erlent 30.12.2006 19:37
67 ára og nýbökuð móðir 67 ára gömul spænsk kona varð í dag elsta konan til þess að eignast börn í fyrsta sinn en hún eignaðist tvíbura. Konan varð ólétt eftir tæknifrjóvgun í Suður-Ameríku og voru tvíburarnir teknir með keisaraskurði. Bæði móður og börnum heilsaðist vel samkvæmt fregnum frá spítalanum sem þau eru á. Erlent 30.12.2006 17:01
Ögurstund nálgast í Sómalíu Yfirmaður íslamska dómstólaráðsins, Sheik Sharif Sheik Ahmed, sagði íbúum í hafnarborginni Kismayo, þar sem herafli þess er, að þeir hefðu ákveðið að berjast við óvininn. Stjórnarherinn, styrktur af eþíópískum hersveitum, streymir nú frá Mogadishu til Kismayo og er búist við lokabardaga á milli herjanna tveggja á næstu dögum. Erlent 30.12.2006 16:38
Sádi-Arabía gagnrýnir Íraka Stærsta ríki súnní múslima gagnrýndi í dag stjórnvöld í Írak fyrir að hafa tekið Saddam Hússein af lífi við upphaf helgustu hátíðar múslima, Eid al-Adha, en sjíar ráða ríkjum í Írak. „Við erum mjög hissa og vonsviknir yfir því að úrskurði dómstóla hafi verið framfylgt á þessum heilaga tíma, þessum fyrstu dögum Eid al-Adha,“ sagði kynnir á ríkissjónvarpsstöðinni í ríkinu þegar gert var hlé á dagskránni til þess að lesa upp tilkynninguna. Erlent 30.12.2006 15:37
Skotbardagar geisa enn í Rio de Janeiro Ofbeldi er enn útbreitt í Ríó de Janeiro í Brasilíu þrátt fyrir hertar aðgerðir lögreglu vegna stærsta áramótapartýs í heimi. Lögreglan drap fimm grunaða meðlimi eiturlyfjagengis í skotbardaga í gær og lenti síðan í skotbardaga við eiturlyfjasala sem réðust á lögreglustöð í morgun. Erlent 30.12.2006 14:20
Mannfólkið getur víst flogið Mannskepnuna hefur frá örófi alda dreymt um að geta flogið um loftin blá og það er akkúrat það sem einum svissneskum manni hefur tekist að gera. Hann smíðaði sér vængi, setti á þá hreyfla og hoppar svo úr flugvélum og flýgur uns eldsneytið klárast. Lendir hann þá mjúklega með aðstoð fallhlífar. Erlent 30.12.2006 15:03
Herinn á Sri Lanka gerir árásir á búðir Tamíltígra Herflugvélar stjórnarhers Sri Lanka gerðu í morgun sprengjuárásir á búðir Tamíltígra á austurhluta eyjunnar en árásin var gerð á einn síðasta griðastað þeirra á ströndinni. Önnur árás var síðan gerð á búðir sjóhers Tamíltígra. Erlent 30.12.2006 13:50
Kastró á batavegi Kúbverska ríkisstjórnin greindi frá því í dag að Fídel Kastró, hinn veiki leiðtogi þeirra, hefði hringt í sendiherra Kína á Kúbu í gær til þess að ræða samskipti ríkjanna tveggja. Kastró bað meðal annars fyrir nýárskveðjur til Hu Jintao, forseta Kína. Erlent 30.12.2006 13:46
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent