
Fjárlagafrumvarp 2020

Ríkisábyrgð á lánum til Icelandair verður að lögum í kvöld
Icelandair stefnir á hlutafjárútboð í þessum mánuði upp á allt að 23 milljarða. Eitt af skilyrðum þess að mati félagsins var að ríkið veitti félaginu ábyrgð á lánalínur. Frumvarp um ríkisábyrgðina verður að lögum í kvöld.

Ríkið fær veð í vörumerki og lendingarheimildum Icelandair gangi félagið á ríkisábyrgðina
Fari svo að Icelandair þurfi að ganga á lánalínuna sem íslenska ríkið hyggst ábyrgjast fyrir félagið er miðað við að ríkið fái veð í vörumerki Icelandair Group og Icelandair, vefslóð sömu félaga, bókunarkerfi Icelandair sem og lendingarheimildum í London og New York, ef unnt reynist að taka veð í lendingarheimildum.

Frekari vaxtalækkun komi til greina ef á þarf að halda
Meginvextir bankans eru í sögulegu lágmarki en seðlabankastjóri segir til greina koma að lækka vexti frekar ef á þarf að halda.

Fjárlög næsta árs á einni mínútu
Nýsamþykkt fjárlög næsta árs sýna hversu vel er búið að umræðu og afgreiðslu mála sem tengjast efnahagsstjórn landsins.

Andrés Ingi sat hjá við atkvæðagreiðslu um fjárlög
Fjárlög 2020 voru samþykkt á Alþingi nú rétt fyrir klukkan sex með 31 atkvæði þingmanna stjórnarflokkanna. Sjö greiddu atkvæði gegn frumvarpinu en nítján sátu hjá, þeirra á meðal Andrés Ingi Jónsson, sem sagði sig úr þingflokki Vinstri grænna fyrr í dag.

Þingmenn sprungu úr hlátri þegar Sigurður Ingi sagði að gleymst hafi að láta hann vita af „panikki í ríkisstjórninni“
Hlátrasköll og klapp brutust út í þingsal í umræðu um atkvæðagreiðslu fjárlaga 2020.

Rétt forgangsröðun
Í gær lauk umræðu um fjárlög næsta árs. Útgjöld ríkissjóðs verða um eitt þúsund milljarðar á næsta ári.

Gert ráð fyrir ríflega 100 milljóna lakari afkomu en eftir aðra umræðu
Nú stendur yfir á Alþingi þriðja umræða um fjárlög ársins 2019.

Heimila að Ægir og Týr verði seldir
Meðal breytingartillagna sem samþykktar voru við aðra umræðu fjárlaga er heimild til handa fjármálaráðherra að selja varðskipin Ægi og Tý og kaupa eða leigja hagkvæmari skip í staðinn. Í skriflegu svari við fyrirspurn Fréttablaðsins fagnar Landhelgisgæslan umræddri heimild.

Allar tillögur minnihlutans felldar
Annarri umræðu um fjárlagafrumvarp næsta árs lauk á Alþingi í gær.

Hallinn innan óvissusvigrúms
Ríkissjóður verður rekinn með tæplega tíu milljarða halla á næsta ári sé tekið mið af breytingartillögum meirihluta fjárlaganefndar. Stjórnarandstaðan í þinginu leggur fram fjölmargar tillögur til breytinga.

Samdráttur í samfélaginu dregur töluvert úr tekjum ríkissjóðs
Að teknu tilliti til breytinga á gjöldum og tekjum leggur meirihluti fjárlaganefndar til að fjárlög næsta árs verði afgreidd með 9,7 milljarða króna halla.

Gert ráð fyrir halla á fjárlögum í fyrsta skipti í sjö ár
Meirihluti fjárlaganefndar leggur til að fjárlög fyrir næsta ár verði afgreidd með tæplega tíu milljarða króna halla. Það yrði í fyrsta skipti í sjö ár fjárlagafrumvarp yrði afgreitt án afgangs.

Lýsa efasemdum um ýmis atriði fjáraukalaga
Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra mælti fyrir frumvarpi til fjáraukalaga á Alþingi nú í kvöld.

7,6 milljarðar vegna aukins atvinnuleysis í fjáraukalögum
Frumvarp til fjáraukalaga var dreift á þinginu í dag þar sem fjárheimildir eru auknar um 14,8 milljarða króna.

Segir skort á samráði vegna áforma um urðunarskatt
Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir að það gæti kostað heimilin í landinu allt að 12 þúsund krónur á ári í aukna skatta að þurfa að greiða sérstakt urðunargjald sem ríkisstjórnin hefur boðað.

ASÍ fer hörðum orðum um fjárlagafrumvarp stjórnvalda
Miðstjórn ASÍ fagnar því að nú liggi fyrir nýjar tillögur stjórnvalda að breytingum á tekjuskattskerfinu en segir breytingarnar skila sér of seint í vasa launafólks.

Geðshræring á Alþingi vegna tvíbókunar þingmanna
Öll gjöld sem ríkið leggur á eins og eldsneytisgjald, áfengisgjald og önnur gjöld hækka um 2,5 prósent milli ára samkvæmt bandormsfrumvarpi fjármálaráðherra sem hann mælti fyrir á Alþingi í dag.

Útgjöld eftirlitsstofnana aukast áfram
Umfang eftirlitsstofnana ríkisins hefur aukist umtalsvert á síðustu átta árum. Árið 2014 var sett vinna í gang við að fara yfir regluverk stofnananna með gögn OECD um hagkvæmni og skilvirkni til hliðsjónar en sú vinna rann út í sandinn vegna fjárskorts.

Segja fjárlagafrumvarpið hlífa hátekjufólki og einkennast af óskhyggju og draumsýn
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, mælti fyrir fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2020 á Alþingi í dag. Stjórnarandstaðan segir það einkennast af draumsýn og óskhyggju.

Framsetning Hlyns skýrir áhrif skattbreytinga á fólkið í landinu
Hlynur Hallgrímsson "fæst við örhermun og vélnám í R til spágerðar. Alltaf að plotta eitthvað“. Svo segir á Twitter-síðu Hlyns sem hefur sett fram afar skýra leið fyrir landsmenn að reikna út hvaða áhrif breytingar á tekjuskattkerfinu hefur fyrir það.

Björn Leví ræddi fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar
Þingmennirnir Björn Leví Gunnarsson, Oddný G. Harðardóttir og Willum Þór Þórsson ræddu um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í dag.

Enginn afgangur áætlaður á næsta ári
Ríkissjóður verður ekki rekinn með afgangi árið 2020 samkvæmt fjárlagafrumvarpi sem fjármálaráðherra kynnti í gær. Samdráttur er í efnahagslífinu og tekur frumvarpið mið af því.

Segir undarlegt að ríkisstjórn standi vörð um þá sem högnuðust mest á uppsveiflu
Skattar á lægstu laun verða lækkaðir um hátt í sex prósent á næstu tveimur árum í nýju skattþrepi

400 milljónir eyrnamerktar einkareknum fjölmiðlum
Samkvæmt fjárlagafrumvarpi næsta árs sem Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, kynnti í morgun er gert ráð fyrir því að 400 milljónum verði varið í styrki til einkarekinna fjölmiðla.

Hefði viljað meiri varfærni í útgjöldum og meiri metnað í fjárfestingaráformum
Þorsteinn segir áframhaldandi vöxt ríkisútgjalda varasaman. Hann óttast að efnahagslegar forsendur fjárlagafrumvarpsins muni ekki standast og að grípa þurfi til niðurskurðar.

Persónuafsláttur lækkar um rúmar 5.000 krónur á næstu tveimur árum
Lækkunin kemur til framkvæmda í lok innleiðingar nýs skattkerfis árið 2021.

Flest gjöld hækka um 2,5 prósent
Samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár stendur til að hækka öll helstu gjöld sem Íslendingar greiða um 2,5 prósent um áramótin.

Heilbrigðiskerfið kostar 729.526 krónur á mann
Í fjárlagafrumvarpi næsta árs sem Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynnti í morgun gætir þeirrar nýbreytni í kynningarefni frumvarpsins hafa útgjöld á mann eftir völdum málaflokkum verið reiknuð út.

Framlög til forsetans lækka
Framlög til embættis forseta Íslands lækkar um sjö milljónir króna frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum.