Lög og regla

Tveir létust í bílveltu
Tveir menn biðu bana og fimm slösuðust þegar jeppi valt á Þjórsárdalsvegi rétt ofan við afleggjarann að Skriðufelli í Skeiða- og Gnúpverjahreppi í gærmorgun. Sjö manns voru í bílnum, tveir eru taldir hafa látist samstundis og fimm voru sendir á sjúkrahús í Reykjavík.

Skattrannsóknarstjóri þarf meira
Skattrannsóknarstjóri hefur farið fram á viðbótarfjárheimild í fjáraukalögum fyrir þetta ár upp á fjórtán milljónir króna. Þessarri fjárhæð er ætlað að mæta kostnaði vegna stórra mála sem eru til meðferðar hjá embættinu.

Lá við stórslysi á Laugarvatni
Við lá að ölvaður ökumaður ylli stórslysi á Laugarvatni í nótt með vítaverðum akstri. Lögregla hafði skömmu eftir miðnætti stöðvað bíl vegna vanbúins ljósabúnaðar og hugðist ökumaður lagfæra ljósin á staðnum. Í sömu mund og hann var að eiga við ljósin bar að annan bíl og þótti lögreglumönnum aksturslag þess grunsamlegt.
Lögreglumaður sýndi snarræði
Mikil hætta skapaðist á Laugarvatni í fyrrinótt þegar maður, sem grunaður er um ölvun, ók um svæðið á miklum hraða. Hópur fólks, sem stóð úti á götu á Laugarvatni í fyrrinótt, gat með naumindum forðað sér undan bíl mannsins.

Bíll sem ræsti sig sjálfur?
Undarlegur bílbruni í Vesturbæ Reykjavíkur í nótt er nú til rannsóknar lögreglu. Að sögn lögreglu er verið að skoða þá kenningu að rafkerfi bílsins hafi bilað, kviknað hafi í bílnum og hann síðan ræst sig sjálfur og ekið mannlaus á nærliggjandi húsvegg.

Gæsluvarðhald framlengt
Héraðsdómur Reykjavíkur framlengdi í dag gæsluvarðhald yfir tveimur mönnum sem grunaðir eru um aðild að einu stærsta fíkniefnamáli Íslandssögunnar. Gæsluvarðhald yfir mönnunum rann út í dag og varð Héraðsdómur við kröfu lögreglunnar í Reykjavík um tveggja vikna framlengingu.

Pizzasendill rændur í miðbænum
Pizzasendill var rændur í miðbæ Reykjavíkur um klukkan tíu í gærkvöldi en að sögn lögreglunnar veittist ölvaður maður að honum og tók hann hálstaki. Pizzasendillinn hafði meðferðis nokkur þúsund krónur og tókst ræningjanum að hrifsa peninginn af honum. Árásarmannsins er enn leitað.

Dæmdur í tveggja mánaða fangelsi
Ragnar Sigurjónsson, sem var framseldur frá Taílandi fyrr á árinu, var í dag dæmdur til sex mánaða fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjaness fyrir fjársvik. Þar af eru fjórir mánuðir skilorðsbundnir. Ákæruvaldið krafðist fimm mánaða fangelsisvistar.

Ofbeldismaður hótar ritstjóra DV
Ritstjóri DV hefur farið fram á að nálgunarbann verði sett á dæmdan ofbeldismann sem hefur haft í hótunum við hann og fjölskyldu hans að undanförnu. Maðurinn krefst þess að blaðið láti af umfjöllun um sig en ritstjórinn segist vera að vinna þjóðþrifaverk.
Eldur í skóla á Akureyri
Greiðlega gekk að slökkva eld sem kom upp á Akureyri í gærkvöldi í geymslurými í kjallara gamla gagnfræðaskólans þar sem nú er Brekkuskóli. Slökkviliðið fékk tilkynningu um eldinn rétt fyrir klukkan níu í gærkvöldi og að sögn lögreglunnar á Akureyri bendir allt til þess að kveikt hafi verið í. Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins en það er í rannsókn.

Stakk lögregluna af með ofsaakstri
Maður sem stal bifreið meðan hún var í gangi fyrir utan bensínstöð í Breiðholti um klukkan ellefu í gærkvöldi olli gríðarlegri hættu með ofsaakstri þegar lögreglan veitti honum eftirför. Maðurinn stakk lögregluna af og er hans og bifreiðarinnar enn leitað.

Kærir hótanir til lögreglu
Mikael Torfason, ritstjóri DV, hefur kært og beðið um nálgunarbann á margdæmdan ofbeldismann sem blaðið hefur fjallað um í vikunni. Mikael segir manninn hafa verið með stóran lögregluhund fyrir utan heimili sitt í fyrrakvöld og hringt í heimilissímann.

Neyðaraðstoð sinnt að norðan
Næsta föstudag verða opnuð ný þjónustuborð Neyðarlínunnar á Akureyri sem sinnt verður af slökkviliði og lögreglu nyrðra. Eftir breytinguna verða fjögur þjónustuborð staðsett á lögreglustöðinni í Þórunnarstræti á Akureyri, tvö í umsjá lögreglu og tvö sem slökkviliðið mannar.

Axarmaðurinn játar brot sitt
Ungur maður játaði fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær að hafa rænt Landsbankaútibúið við Gullinbrú, vopnaður öxi. Ránsfengnum var líklega komið til fíkniefnasala sem hann skuldaði fé. Gjaldkeri í bankanum sagðist hafa verið miður sín í langan tíma á eftir.

Sex í gæsluvarðhaldi
Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkniefnadeildarinnar í Reykjavík, segir ráðast í dag hvort farið verði fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir fjórum Íslendingum sem handteknir voru hér á landi í september í tengslum við eitt stærsta fíkniefnamál síðari ára. Rannsókn málsins er enn í fullum gangi að sögn Ásgeirs.
Skilorð fyrir kynferðisbrot
Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms Vesturlands yfir pilti sem dæmdur var í sex mánaða skilorðbundið fangelsi fyrir tvö kynferðisbrot gegn þrettán ára stúlku. Pilturinn var sjálfur rúmum þremur árum eldri en stúlkan þegar brotin áttu sér stað.
Sviðsetti umferðarslys
Hæstiréttur staðfesti fimm mánaða fangelsisdóm Héraðsdóms Austurlands, yfir manni, fyrir að hafa sett á svið umferðarslys í því skyni að svíkja út tryggingabætur.
Falsaði lyfseðil
Rúmlega þrítugur maður með langan sakaferil að baki var dæmdur, í Héraðsdómi Reykjavíkur, í fjögurra mánaða fangelsi fyrir líkamsárás og skjalafals.
Stálu fyrir milljónir
Hæstiréttur staðfesti eins og hálfs árs fangelsi yfir tveimur mönnum fyrir ýmis þjófnaðarbrot en mildaði dóm yfir þriðja manninum úr tólf mánuðum í átta.
Smygluðu fíkniefnum og koffíni
Hæstiréttur dæmdi tvíburabræðurna Jökul og Ægi Ísleifssyni í tveggja ára fangelsi annars vegar og eins árs fangelsi hins vegar fyrir innflutning og vörslu fíkniefna. Hæstiréttur mildaði þar með dóm Héraðsdóms Reykjavíkur sem dæmdi bræðurna í tveggja og hálfs árs fangelsi og tuttugu mánaða fangelsi.
Neyðarboð í búðarleik
Menn frá Securitas höfðu samband við lögregluna á Selfossi út af neyðarboði sem kom frá pósthúsinu á Eyrarbakka.
Tíu innbrot í Reykjavík
Tilkynnt hafði verið um tíu innbrot í Reykjavík frá klukkan sjö í gærmorgun til klukkan þrjú í gærdag. Brotist var inn í sjö bíla og inn á tvö heimili og á kvennadeild Landspítalans.
Sýknaður af skjalafalsi
Rúmlega fimmtugur maður var sýknaður, í Héraðsdómi Reykjavíkur, af ákæru um skjalafals. Maðurinn var ákærður fyrir að skrifa nafn annars manns á tilkynningu sem hann framvísaði hjá Umferðarstofu um sölu bifreiðar hans.

Þrír á sjúkrahús eftir árekstur
Þrír voru fluttir á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri eftir harðan árekstur tveggja fólksbíla sem varð á mótum Þórunnarstrætis og Þingvallastrætis á Akureyri um klukkan sjö í gærkvöldi. Að sögn lögreglunnar á Akureyri voru tveir menn útskrifaðir fljótlega eftir að þeir höfðu fengið aðhlynningu.

Enginn liggur undir grun
Rannsókn á meintri íkveikju í Votmúla, atvinnuhúsnæðinu á Blönduósi sem brann nánast allt til kaldra kola aðfaranótt þriðjudags í síðustu viku, hefur ekki skilað neinum árangri.
Bíll fauk út af
Mikið hvassviðri gerði fólki erfitt með að ferðast á milli staða á Höfn í Hornafirði í gær að sögn lögreglunnar.

Mæðgur í fangelsi
Fanta Sillah, 26 ára kona frá Sierra Leone, sem í Héraðsdómi Reykjaness var dæmd í fimm ára fangelsi fyrir e-töflusmygl í lok júlí, eignaðist stúlkubarn fyrir um mánuði síðan. Dóttir Fanta dvelur nú með henni í kvennafangelsinu í Kópavogi og heilsast báðum vel að sögn lögmanns Fanta.
Sýknaður af kynferðisbroti
Maður var sýknaður í Héraðsdómi Norðurlands eystra af ákæru um kynferðisbrot. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa í janúar haft samfarir við konu þegar ástand hennar var þannig að hún gat ekki spornað við verknaðinum sökum ölvunar og svefndrunga.
Ók á húsvegg
Maður var fluttur með höfuðáverka og fótbrot á fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri í fyrradag eftir að hafa ekið á húsvegg á Skagaströnd. Virðist sem ökumaðurinn hafi misst stjórn á bílnum í beygju en húsið stendur mjög nálægt götunni.
Tvær stúlkur í sjálfheldu
Tveimur stúlkum, tíu og ellefu ára, var bjargað úr sjálfheldu í Hamrinum, fjallinu fyrir ofan Hveragerði, skömmu eftir hádegi í gær. Fyrstu björgunarsveitarmennirnir úr Hjálparsveit skáta í Hveragerði voru komnir að Hamrinum fimm mínútum eftir útkall.