Lög og regla
93 94 95 96 97 98 99 100 101 … 120 ›
Óhapp við umferðarljós Betur fór en á horfðist í allhörðum árekstri á Akureyri upp úr klukkan 14 í gær þegar tveir bílar skullu saman á umferðarljósum við Glerárgötu og Tryggvabraut. Flughált var á Akureyri í gær. Innlent 13.10.2005 15:23
Sprengjumönnum sleppt Lögreglan hefur sleppt þremenningunum sem sprengdu sprengju við veitingastaðinn American Style í nótt. Við yfirheyrslur gátu þeir litlar skýringar gefið á athæfinu en sögðu að ekki hafi verið um heimatilbúna sprengju að ræða heldur öfluga rakettu sem prikið hefði verið tekið af. Innlent 13.10.2005 15:23
Rúður brotnuðu í sprengingu Þrír ungir karlmenn eru í haldi lögreglunnar í Reykjavík, grunaðir um skemmdarverk. Laust fyrir klukkan eitt í nótt var tilkynnt um sprengingu við Skipholt. Þar hafði verið sprengd heimatilbúin sprengja með þeim afleiðingum að skyggni við veitingastaðinn American Style skemmdist, rúður brotnuðu og fleira. Innlent 13.10.2005 15:23
Bílvelta í Ásahreppi Ökumaður jeppa meiddist lítillega í fyrrinótt í bílveltu á Suðurlandsvegi, rétt austan við afleggarann að Ásmundarstöðum í Ásahreppi. Innlent 13.10.2005 15:23
Sprengdu þakskyggni Þrír tvítugir piltar voru handteknir í Reykjavík klukkan kortér fyrir eitt í fyrrinótt eftir að hafa sprengt rakettu fyrir utan veitingastaðinn American Style í Skipholti. Innlent 13.10.2005 15:23
Skemmdarverk unnin á níu bílum Unnin voru skemmdarverk á níu bifreiðum í Keflavík í nótt. Brotnir voru speglar á þremur þeirra, hægra afturljós var brotið á tveimur, hliðarrúða brotin í einum bíl, framrúða í einum og afturrúður voru brotnar í tveimur bílum. Bílarnir stóðu allir við Hátún og Sóltún í Keflavík. Innlent 13.10.2005 15:22
60 milljóna skaðabótakrafa Hæstiréttur fyrirskipaði í gær Héraðsdómi Vesturlands að taka til meðferðar sextíu milljóna króna skaðabótakröfu Sigurjóns Sighvatssonar á hendur Hótel Búðum og fleirum. Innlent 13.10.2005 15:22
Keyrði næstum undir flutningavagn Litlu mátti muna að alvarlegt umferðarslys yrði á Selfossi á hádegi í gær þegar malarflutningavagn rann þvert á móti umferð. Innlent 13.10.2005 15:22
Bjargaði stúlku úr brennandi íbúð Hinrik Ingi Guðbjargarson á Akureyri sýndi snarræði er hann bjargaði stúlku út úr brennandi íbúð í kjallaranum að Hafnarstræti 100 kl. 20.30 á föstudagskvöldið. </font /> Innlent 13.10.2005 15:22
Fjögur ungmenni handtekin Tvö minni háttar fíkniefnamál komu upp á Selfossi aðfaranótt laugardags. Innlent 13.10.2005 15:22
Eldur í eldgömlu húsi Elds varð vart í eldgömlu húsi á Svalbarðseyri um hádegisbil í gær, laugardag, en greiðlega gekk að ráða niðurlögum hans. Innlent 13.10.2005 15:22
Á slysadeild með reykeitrun Slökkvilið á Akureyri var kallað út í bruna í íbúðarhúsi við Hafnarstræti laust fyrir klukkan ellefu í gærkvöld. Íbúi á efri hæð hússins hafði orðið var við eld á neðstu hæðinni þar sem áður var skemmtistaðurinn H-100. Ung stúlka var flutt á slysadeild með reykeitrun. Innlent 13.10.2005 15:22
Þyrla kom til hjálpar 55 ára karlmaður hlaut skurði á höfði og brotið hné er honum varð fótaskortur í klettabelti í Esjunni í gær og hrapaði um 20 metra. Hann var sóttur á þyrlu. Innlent 13.10.2005 15:22
Þarf að greiða þrjátíu milljónir Maður á sextugsaldri var, í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, dæmdur til að greiða rúmar þrjátíu milljónir í sekt og í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda og brotum um virðisaukaskatt. Eins árs fangelsi kemur í stað sektarinnar verði hún ekki greidd. Innlent 13.10.2005 15:22
Eldsvoði í Mosfellsbæ Slökkvilið var fyrir stundu kallað að Tröllateig í Mosfellsbæ. Tilkynnt var um talsverðan eld í íbúð í nýbyggingu. Bílar frá tveimur stöðvum voru sendir á staðinn en ekki var frekari upplýsingar að hafa um eldsvoðann. Innlent 13.10.2005 15:22
Engin beiðni frá þýsku lögreglunni Engin beiðni hefur enn borist frá þýsku fíkniefnalögreglunni um aðstoð starfsbræðra hennar á Íslandi við að upplýsa smyglmálið sem tengist togaranum Hauki. Fíkniefnadeild Lögreglunnar í Reykjavík hefst því ekkert sérstakt að í málinu að svo komnu. Innlent 13.10.2005 15:22
Árekstur jeppa og fólksbíls Rétt fyrir klukkan tíu síðasta miðvikudagsmorgun lentu saman hvítur Toyota Land Cruiser jeppi og grár VW Golf fólksbíll á mótum Arnarnesvegar og Bæjarbrautar í Garðabæ. Innlent 13.10.2005 15:22
Ungar konur spenna beltin rangt Lögreglan í Keflavík hefur orðið vör við ranga notkun bílbelta meðal ökumanna og er algengast að beltið sé ekki látið liggja yfir öxl heldur sett undir vinstri handarkrika. Innlent 13.10.2005 15:21
Úr gæslu fyrir mistök Maður sem er þekktur af líkamsmeiðingum og hótunum gengur nú laus vegna mistaka lögreglu. Í janúar í fyrra var manninum gert að sæta nálgunarbanni og honum bannað að koma í námunda við heimili fólks sem hann hafði sýnt ógnandi tilburði. Maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald til klukkan tólf þann 3. janúar vegna brota á nálgunarbanninu. Innlent 13.10.2005 15:22
Sýslumaður skilar Muggsmyndum Sýslumaðurinn á Patreksfirði hefur fellt niður kæru á stuldi þriggja teikninga Muggs. Kærufrestur vegna ákvörðunarinnar rennur út á mánudag. Innlent 13.10.2005 15:22
Tveir í 30 daga fangelsi Tveir Eþíópíumenn voru í gær dæmdir í 30 daga fangelsi hvor um sig í Héraðsdómi Reykjaness. Þriðji maðurinn, sænskur ríkisborgari af eþíópískum uppruna, var úrskurðaður í gæsluvarðhald fram á miðvikudag í næstu viku. Innlent 13.10.2005 15:22
Áttu annað erindi á heimilið Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík, segir lögregluna hafa farið að heimili konu á þrítugsaldri rétt eftir miðnætti aðfaranótt sunnudags vegna kvartana nágranna um hávaða. Vegna útkallsins hafi lögreglan átt erindi á heimili konunnar aftur aðfaranótt þriðjudags. Innlent 13.10.2005 15:21
Sakfelling í 155 málum Sakfellt hefur verið í 155 af 176 skattsvikamálum efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra á árunum 1998-2004, samkvæmt upplýsingum frá embættinu. Tuttugu mál eru nú til meðferðar fyrir dómstólum og í einu tilviki var fallið frá ákæru fyrir aðalmeðferð. Samanlögð vanframtalin velta er talin nema um þremur milljöðrum króna í málunum 176 en heildarfjárhæð skattsvikanna er talin vera um 1,3 milljarðar króna. Innlent 13.10.2005 15:21
Nöfnin fari hugsanlega á Netið Samtök lögmanna í Noregi og Danmörku birta á Netinu nöfn þeirra lögmanna sem verða uppvísir að afglöpum í starfi. Slíkt er ekki gert hér á landi en formaður Lögmannafélagsins útilokar ekki að þessu fordæmi verði fylgt. Innlent 13.10.2005 15:22
Ríkissaksóknari vill frekari gögn Að ósk ríkissaksóknara er sýslumannsembættið á Seyðisfirði að afla viðbótargagna vegna banaslyssins á virkjunarsvæðinu við Kárahnjúka aðfaranótt 15. mars í fyrra. Að þeim gögnum fengnum mun ríkissaksóknari taka ákvörðun um hvort ákært verður í málinu. Innlent 13.10.2005 15:21
Stórmeistari fékk nálgunarbann Fertugur maður kemur fyrir dóm í dag, ákærður fyrir að hafa rofið nálgunarbann. Hann hefur haft í hótunum við Helga Áss Grétarsson stórmeistara í skák, sem á í sambandi við barnsmóður hans. Innlent 13.10.2005 15:22
Kannabisefni í bíl og heima Um hundrað grömm af kannabisefnum fundust hjá manni sem stöðvaður var á bíl sínum í vesturborginni undir kvöld í gær. Kannabisefni fundust í bílnum og síðan við húsleit heima hjá honum. Megninu hafði verið pakkað í litlar umbúðir eins og seldar eru á götunni og er maðurinn grunaður um að hafa ætlað að selja efnið. Innlent 13.10.2005 15:21
Rannsókn enn í höndum Þjóðverja Rannsókn á fíkniefnafundinum um borð í togaranum Hauki í Bremerhafen á fimmtudag er enn algerlega í höndum þýsku lögreglunnar og hefur enginn verið yfirheyrður vegna málsins hér á landi. Innlent 13.10.2005 15:21
Fylgjast með ferðum til Íslands Sérstaklega er leitað í skipum og flugvélum á leið til Íslands, að sögn upplýsingafulltrúa hjá tollinum í Bremerhaven, en tveir Íslendingar sitja í gæsluvarðhaldi í Þýskalandi eftir að sjö kíló af fíkniefnum fundust um borð í Hauki ÍS. Innlent 13.10.2005 15:21
Hlupu uppi tölvuþjóf Skjót viðbrögð lögreglunnar á Akureyri við boðum frá þjófavarnakerfi í verslun Office One í bænum urðu til þess að hún gómaði þjóf sem stolið hafði fjórum fartölvum að andvirði um níu hundruð þúsund krónur. Þegar lögregla kom á vettvang sást til þjófsins á harðahlaupum og tóku lögreglumenn þá líka til fótanna og eltu hann. Innlent 13.10.2005 15:21