Skoðanakannanir
1 2 3 4 5 6 7 8 9 … 15 ›
Höllurnar taka forystuna en aðeins hársbreidd á milli þeirra og Katrínar Halla Hrund Logadóttir mælist með mest fylgi í nýrri könnun Prósents á fylgi forsetaframbjóðenda en afar litlu munar á henni og næstu tveimur. Innlent 27.5.2024 06:33
Enginn kemst sjálfkrafa í könnunarhóp Prósents Framkvæmdastjóri rannsóknafyrirtækisins Prósents segir að þrátt fyrir að boðið sé upp á að fólk skrái sig sjálft í könnunarhóp sem skoðanakannanir eru lagðar fyrir komist enginn þangað inn sjálfkrafa. Möguleikinn sé til staðar til að ná til hópa sem erfitt sé annars fá í hópinn. Innlent 25.5.2024 15:30
Enginn einn frambjóðandi augljós keppinautur Katrínar Prófessor í stjórnmálafræði segir nokkuð flókna stöðu vera að málast upp í aðdraganda forsetakosninga. Enginn einn frambjóðandi hafi markað sér stöðu sem augljós keppinautur Katrínar Jakobsdóttur. Innlent 25.5.2024 13:16
Katrín að taka afgerandi forystu Katrín Jakobsdóttir mælist með 27 prósent fylgi fyrir komandi forsetakosningar í nýjasta þjóðarpúlsi Gallup. Það er talsvert meira en aðrir frambjóðendur, en enginn annar nær yfir tuttugu prósent. Innlent 24.5.2024 16:51
Telur víst að sala á Landsvirkjun komi á borð næsta forseta Halla Hrund Logadóttir hefur verið að gefa eftir í síðustu skoðanakönnunum. Hún hefur verið að slást við Katrínu Jakobsdóttur um toppsætið en í gær gerðist það að nafna hennar Tómasdóttir skaust upp fyrir hana. Innlent 24.5.2024 15:03
Augljóst að fylgið er enn á verulegri hreyfingu Fylgi við forsetaframbjóðendur er enn á verulegri hreyfingu nú þegar rúm vika er til kosninga, að mati prófessors í stjórnmálafræði. Hann segir mjög athyglisvert að forystusauðurinn Katrín Jakobsdóttir mælist aðeins með fjórðungsfylgi. Innlent 23.5.2024 23:08
Halla T skýst upp í annað sæti en Katrín leiðir Halla Tómasdóttir skýst upp í annað sæti forsetaframbjóðenda í nýrri könnun Maskínu fyrir fréttastofuna. Katrín Jakobsdóttir er aftur á móti með afgerandi forystu og marktækur munur er á fylgi hennar og Höllu. Innlent 23.5.2024 19:11
Halla orðin vinsælasta plan B Tæplega fjórðungur landsmanna myndi kjósa Höllu Tómasdóttur ef þeirra fyrsti kostur væri ekki í boði. Þrisvar sinnum fleiri setja hana sem sitt plan B nú en fyrir mánuði. Á sama tíma og flestir myndu kjósa Katrínu eru enn fleiri sem geta ekki hugsað sér hana sem forseta. Innlent 23.5.2024 19:00
Þjóðin klofin hvað varðar hvalveiðar Samkvæmt nýrri könnun Maskínu eru 49 prósent þjóðarinnar andvíg því að leyfi Hvals hf. til veiða á langreyði verði endurnýjað. 35 prósent eru því hlynnt og 16,5 prósent eru hvorki hlynnt né andvíg. Innlent 22.5.2024 10:09
Líst best á Baldur og Höllu en verst á Ástþór Landsmönnum líst best á það að Baldur Þórhallsson eða Halla Tómasdóttir verði næsti forseti Íslands. Fjórum af hverjum fimm líst illa á að Ástþór Magnússon verði forseti. Innlent 21.5.2024 14:39
Stefnir í spennandi og sögulegar forsetakosningar Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur segir fylgi forsetaframbjóðenda að öllum líkindum verða á hreyfingu allt fram á kjördag og því útlit fyrir spennandi kosningar. Fylgi þriggja efstu frambjóðenda væri mjög jafnt og líklegt að forseti verði í fyrsta skipti kjörinn með innan við fjórðungi atkvæða. Innlent 21.5.2024 11:40
Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents Katrín Jakobsdóttur, fyrrverandi forsætisráðherra, leiðir í nýjustu könnun Prósent með 22,1 prósenta fylgi. Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri mælist með tæp tuttugu prósent sem er talsvert tap frá síðustu könnun Prósents. Baldur Þórhallsson mælist með 18,2 prósenta fylgi. Innlent 20.5.2024 21:03
Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Nokkrir frambjóðendur til embættis forseta Íslands hafa lýst andúð sinni á skoðanakönnunum í aðdraganda kosninga og að ekki megi draga ályktanir af þeim. Framkvæmdastjóri Prósents segir kannanirnar afar marktækar og að frambjóðendurnir sjálfir geti nýtt sér þær. Innlent 19.5.2024 21:31
Dregur saman með efstu frambjóðendum Ekki er tölfræðilega marktækur munur á fylgi þriggja efstu frambjóðendanna til forseta í nýrri skoðanakönnun Gallup. Fylgi Katrínar Jakobsdóttur og Höllu Hrundar Logadóttur minnkar milli kannana en Halla Tómasdóttir sækir á. Innlent 17.5.2024 18:39
Baldur vinsælasta plan B Baldur Þórhallsson er sá frambjóðandi sem flestir myndu kjósa í forsetakosningunum ef sá frambjóðandi sem aðspurðir segjast ætla að kjósa, væri ekki í framboði. Innlent 17.5.2024 08:26
Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Katrín Jakobsdóttir tekur forystuna á ný samkvæmt nýrri könnun Maskínu en þó er ekki marktækur munur á henni og Höllu Hrund Logadóttur. Halla Tómasdóttir er síðan í mikilli sókn og tæplega þrefaldar fylgi sitt. Innlent 16.5.2024 18:32
Mikill meirihluti hlynntur dánaraðstoð Um 77 prósent þjóðarinnar eru hlynnt því að dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi, um fimmtán prósent eru hvorki hlynnt né andvíg og aðeins um sjö prósent eru andvíg. Innlent 15.5.2024 18:40
Halla þótti standa sig best Flestir þeirra sem fylgdust með kappræðum á RÚV vegna forsetakosninganna föstudagskvöldið 3. maí töldu Höllu Tómasdóttur hafa staðið sig best. Skammt á hæla Höllu komu Baldur Þórhallsson og Katrín Jakobsdóttir. Innlent 15.5.2024 10:05
Fleiri sniðgengu en ekki Fleiri slepptu því að horfa á keppniskvöld Íslands í Eurovision þriðjudagskvöldið 7. maí heldur en horfðu. Þetta er meðal niðurstaðna nýrrar könnunar Prósents en þar kemur fram að tæplega þriðjungur þjóðarinnar hafi horft á umrætt Eurovision kvöld. Lífið 14.5.2024 11:26
Sýnist stefna í kapphlaup tveggja en útilokar þó ekki vendingar Stjórnmálafræðiprófessor segir að sú mynd sem nú teiknist upp í baráttunni um Bessastaði sé kapphlaup tveggja en þó sé alls ekki útilokað að fleiri geti blandað sér í það, enda ekki langt undan. Halla Tómasdóttir er hástökkvari í nýrri könnun Prósents. Innlent 13.5.2024 12:03
Halla Tómasdóttir tekur stökk í nýrri könnun Prósents Halla Hrund Logadóttir mælist með mest fylgi í nýrri skoðanakönnun Prósents. Á meðan fjórir efstu tapa allir fylgi frá síðustu könnun bætir Halla Tómasdóttir verulega við sig. Innlent 13.5.2024 06:23
Aðrir frambjóðendur en efstu tveir eigi töluvert langt í land Prófessor í stjórnmálafræði segir allt útlit fyrir tveggja hesta kapphlaup fram að kjördegi. Katrín Jakobsdóttir og Halla Hrund Logadóttir mælast jafnar í nýjustu könnun Gallup. Kappræður Ríkisútvarpsins fyrir rúmri viku virðast hafa haft talsverð áhrif á hug kjósenda. Innlent 11.5.2024 19:55
Kappræðurnar höfðu talsverð áhrif á kjósendur Kappræður Ríkisútvarpsins þann 3. maí virðast hafa haft talsverð áhrif á hug kjósenda. Frammistaða frambjóðenda hafði þó meiri áhrif á konur en karla og meiri áhrif á ungt fólk en eldra. Innlent 11.5.2024 13:44
Grafa skoðanakannanir undan lýðræðinu? Ég velti stundum fyrir mér markaðsrannsóknum og tilgangi þeirra þegar kemur að lýðræðislegum kosningum. Nú hafa slíkar rannsóknir augljóst mikilvægi á ýmsum sviðum og geta m.a. veitt dýrmæta innsýn í ýmiss samfélagsleg mál sem krefjast endurbóta. Skoðun 10.5.2024 09:01
Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Marktæk breyting varð á fylgi Höllu Hrundar Logadóttur, forsetaframbjóðanda, eftir kappræðurnar á RÚV 3. maí síðastliðinn. Fyrir kappræðurnar sögðust 33 prósent ætla að kjósa Höllu en tæplega 23 prósent eftir kappræðurnar. Innlent 9.5.2024 14:58
Efstar með ómarktækan mun á milli sín Halla Hrund Logadóttir mælist með mest fylgi í nýrri skoðanakönnun Maskínu. Katrín Jakobsdóttir kemur á hæla henni, en ómarktækur munur er á þeim tveimur. Þar á eftir koma Baldur Þórhallsson og Jón Gnarr, en marktækur munur er á stuðningi við Katrínu og Baldur annars vegar og við Baldur og Jón hins vegar. Innlent 8.5.2024 18:34
Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir 63 prósent landsmanna hafa mikinn áhuga á forsetakosningunum sem fram fara í júní. Fjórðungur kveðst hafa hvorki mikinn né lítinn áhuga og tólf prósent hafa lítinn áhuga. Stuðningsmenn Katrínar Jakobsdóttur eru með meiri áhuga á kosningunum en stuðningsmenn annarra frambjóðenda. Innlent 8.5.2024 14:30
Halla Hrund áfram efst Halla Hrund Logadóttir mælist með 29,1 prósent fylgi í nýrri könnun markaðsrannsóknarfyrirtækisins EMC. Næst á eftir er Katrín Jakobsdóttir með 22,9 prósent fylgi og Baldur Þórhallsson með 21,8 prósent fylgi. Innlent 8.5.2024 12:08
Fleiri svartsýnir á gott gengi Heru Fleiri eru svartsýnir á gott gengi Íslands í Eurovision söngvakeppninni í ár heldur en bjartsýnir. Leita þarf aftur til ársins 2018 þegar Ari Ólafs keppti fyrir Íslands hönd til þess að finna álíka fjölda þeirra sem telja að Ísland muni hafna í einu af neðstu sætunum. Lífið 6.5.2024 13:06
Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Halla Hrund Logadóttir mælist með 29,7 prósent fylgi í nýjustu skoðanakönnun Prósents vegna forsetakosninganna, Katrín Jakobsdóttir með 21,3 prósent og Baldur Þórhallsson með 20,4 prósent. Innlent 6.5.2024 06:22