Einn af hverjum fjórum stjórnendum notar gervigreind daglega Kjartan Kjartansson skrifar 16. janúar 2026 11:17 Aragrúi gervigreindarspjallmenna og forrita hefur skotið upp kollinum undanfarin ár. Stjórnendur nýta sér þau í vaxandi mæli í daglegum störfum. Vísir/EPA Tæplega tvöfalt fleiri stjórnendur fyrirtækja segjast nú nota gervigreind mikið við dagleg störf sín en fyrir ári. Fjórðungur þeirra notar gervigreindina mikið en aðeins rúmur fimmtungur segist ekki nýta sér hana.
Hlutfall þeirra stjórnenda sem sögðust nýta gervigreind mikið í daglegum störfum jókst úr þrettán prósentum í 25 prósent á milli kannana sem Prósent gerði í loks árs 2024 annars vegar og í lok síðasta árs hins vegar. Hlutfallið var fimm prósent í byrjun árs 2024. Á sama tíma fækkaði verulega þeim sem sögðust ekki nota gervigreindina í störfum sínum. Þeir voru 53 prósent í byrjun árs 2024 en 22 prósent í lok árs 2025. Meirihluti stjórnendanna sem svöruðu könnuninni töldu gervigreindina hafa jákvæð áhrif á rekstur síns fyrirtækis, um 62 prósent. Hlutfallið var 55 prósent fyrir ári. Stjórnendur stærri fyrirtækja voru líklegri til þess að nota gervigreind en minni og helmingi fleiri stjórnendur á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni. Sumir sjá tækifæri til að fækka starfsmönnum Þeir stjórnendur sem sögðust nota gervigreindina mikið voru jákvæðari í garð hennar. Níutíu prósent þeirra sögðust telja hana hafa jákvæð áhrif næstu þrjú árin. Aðeins fimmtungur þeirra sem nýtti hana ekki var sama sinnis. Kostirnir sem stjórnendurnir nefndu helst við gervigreindina var að hún yki skilvirkni og framleiðni og að starfsfólk hefði meiri tíma til að sinna öðrum verkefnum. Fimmtungur taldi gervigreindina bæta upplifun viðskiptavina með hraðari þjónustu, til dæmis með spjallmennum. Þá sáu fjórtán prósent stjórnendanna tækifæri til þess að fækka starfsmönnum og draga úr kostnaði við starfsmannahald. Helstu hættuna við gervigreindina töldu stjórnendurnir óáreiðanlegar niðurstöður í gervigreindarkerfum eins og ChatGPT og skort á mannlegum þætti í ákvörðunartöku. Aðeins sautján prósent stjórnenda höfðu áhyggjur af breytingu sem gervigreindin hefði á störf og innan við þriðjungur af slæmum áhrifum á íslenska tungu. Könnunin byggði á svörum rúmlega sex hundruð stjórnenda og var gerð í nóvember og desember.
Gervigreind Skoðanakannanir Stjórnun Mest lesið Eftirförin endaði með hvelli Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira